Fréttablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 15
Við sjáum það að þegar drengir með einhverjar raskanir, sem kallaðir eru öðruvísi, fá áhuga á einhverju þá eru þeir afbragðsgóðir í því. Þorkell Máni Péturs- son markþjálfi Þorkell Máni Péturs-son er markþjálfi sem star far með ungum mönnum, hann er einn-ig faðir drengs sem er greindur með athyglis- brest. Hann er vægast sagt harð- orður í garð kerfisins og segir hægt að gera miklu betur. „Í þessu kerfi er ein ógeðfelldasta stéttaskipting sem ég hef orðið var við á ævinni,“ segir Máni. „Við hjónin fórum með son okkar í greiningu fyrir tæplega fimm árum. Það tók alveg 12 til 18 mánuði að klára ferlið. Þegar ferlinu lýkur og sonur okkar er kominn með greiningu með athyglisbrest og kvíðaröskun, er okkur tilkynnt að hann komist á námskeið fyrir börn með þessar greiningar. Biðtíminn er 12 mánuðir, en ef við borguðum 70 þúsund krónur kæmist hann á námskeið í næstu viku. Við áttum ekki til orð.“ Sem betur fer þurfti sonur þeirra ekki á námskeiðinu að halda og hjónin höfðu efni á að greiða fyrir aðra þjónustu fyrir hann. „Þá hugs- ar maður óneitanlega til allra þeirra stráka sem ég hef kynnst í gegnum tíðina í 12 spora samtökunum, drengir sem þurftu á greiningu að halda en voru ekki aldir upp við þær aðstæður að mæður þeirra hefðu efni á að borga þennan 70 þúsund kall.“ Máni segir son sinn einnig hafa verið heppinn að hafa stundað nám í Hjallastefnunni. „Hann fékk gríðarlega hlýju. Ég hef ekki orðið var við slíkt á öðrum stöðum, ekki fékk ég neitt slíkt á sínum tíma. Það voru frjálsari reglur í skólanum, hann var sendur út að hlaupa þegar hann var fullur af orku og fékk að vinna verkefnin þar sem honum hentaði.“ Hann segir mikinn misskilning að vandamálin séu smám saman að hverfa með tímanum. „Við höldum að einhverju leyti að unglingar í dag séu öðruvísi. Rannsóknir sýna að þeir reykja og drekka minna en áður, staðreyndin er líka sú að þeir eru nú að nálgast Evrópumet í klámáhorfi. Ég spyr mig, eru ungir menn ekki alveg jafn kvíðnir og óstýrilátir og þeir voru fyrir nokkr- um áratugum, en í staðinn fyrir að drekka og reykja þá eru þeir að horfa á klám og spila Fortnite allar nætur?“ Kerfið getur gert mun betur þegar kemur að unglingsdrengjum að mati Mána. „Mín reynsla af því að vinna með unga menn er að þá vantar oft stefnu og tilgang. Skóla- kerfið á að rækta það sem þeir eru góðir í. Þjóðverjar eru góðir í þessu. Við sjáum það að þegar drengir með einhverjar raskanir, sem kallaðir eru öðruvísi, fá áhuga á einhverju þá eru þeir af bragðsgóðir í því,“ segir Máni. Einstaklingar sem passa ekki inn í kassalaga mót geta skarað fram úr á mörgum sviðum og þekkir Máni mörg dæmi um íþróttamenn, tónlistarmenn og aðra í skapandi greinum. „Ég held að ég geti fullyrt að hálft A-landslið karla í fótbolta sé ofvirkt eða með athyglisbrest.“ Máni segir það gríðarlegt tap fyrir samfélagið að taka ekki vel utan um stráka sem eru öðruvísi, finna fyrir þá leiðir og örva þá í að verða sterka einstaklinga. „Ef við gerum það ekki erum við að glutra niður fjármunum. Ég er búinn að kynnast svo mörgum strákum úr myrkrinu og get oft verið gríðar- lega reiður yfir því að það hafi ekki verið tekið utan um þá og gerðar úr þeim betri manneskjur. Þetta geta oft verið hinir mestu snillingar og karakterar, en samfélagið hefur brugðist þeim.“ arib@frettabladid.is CHEVROLET SPARK Nýskráður: 2016 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 22.000 km. * B irt m eð fyrirvara um m ynda- og textabrengl. Kíktu í sýningarsali okkar Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Verð: 2.390.000 kr. Verð: 2.590.000 kr.Verð: 1.190.000 kr. SUBARU FORESTER LUX Nýskráður: 2014 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 81.000 km. Tilboð: 2.490.000 kr. SSANGYONG REXTON HLX Nýskráður: 2014 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 112.000 km. Verð. 2.890.000 kr. Tilboð: 1.990.000 kr. SSANGYONG KORANDO Nýskráður: 2016 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 141.000 km. Verð. 2.490.000 kr. Tilboð: 1.690.000 kr. OPEL ASTRA NOTCHBACK Nýskráður: 2016 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 39.000 km. Verð. 1.990.000 kr. Tilboð: 2.490.000 kr. RENAULT MEGANE Nýskráður: 2018 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 24.000 km. Verð. 2.890.000 kr. Tilboð: 2.790.000 kr. SSANGYONG TIVOLI HLX Nýskráður: 2017 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 52.000 km. Verð. 3.190.000 kr. Tilboð: 1.090.000 kr. OPEL ASTRA Nýskráður: 2015 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 78.000 km. Verð. 1.490.000 kr. Tilboð: 1.490.000 kr. CHEVROLET CRUZE Nýskráður: 2013 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 44.000 km. Verð. 1.790.000 kr. VOLVO S60 Nýskráður: 2013 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 88.000 km. RENAULT KADJAR INTENS Nýskráður: 2017 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 32.000 km. Verð: 3.490.000 kr. CITROEN C3 SEDUCTION Nýskráður: 2014 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 34.000 km. Verð: 1.090.000 kr. Rað.nr. 150354Rað.nr. 150346Rað.nr. 445518Rað.nr. 150331Rað.nr. 445368 Rað.nr. 720047Rað.nr. 445379Rað.nr. 445507Rað.nr. 445289Rað.nr. 720017 Rað.nr. 445227Rað.nr. 445155 Gott úrval notaðra bíla benni.is TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ 4x 4 TI LB OÐ 4x 4 TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ 4x 4 4X 4 Samfélagið brást strákunum í myrkrinu F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 1 4 . M A R S 2 0 1 9 1 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 8 E -9 5 1 8 2 2 8 E -9 3 D C 2 2 8 E -9 2 A 0 2 2 8 E -9 1 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.