Fréttablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 62
BÍLAR
ALPHA ONE
2.380.000,-
MOUNTAIN CAT
2.380.000,-
A Arctic Cat velsledum' '
-
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
sími 557 4848 / www.nitro.is
Miðhrauni 13 / 210 Garðabæ
S 578 0820 / www.arcticsport.is
Takmarkad magn!
-
VORTILBOÐ
Í á æt lu nu m Vol k s wagen Group fyrir síðasta ár var gert ráð fyrir 4-5% hagnaði af veltu, en uppgjör VW Group leiddi í ljós 3,8% hagnað af veltu síðasta árs. Hagnaður af
veltu árið áður var 4,2% og féll því
um 0,4% á milli ára. Helsta vanda-
mál flestra bílamerkja Volkswagen
Group á síðasta ári tengdist nýrri
WLTP-mengunarreglugerð þar
sem framleiðendurnir þurftu tíma-
bundið að taka margar bílgerðir
sínar úr sölu þar sem þær uppfylltu
ekki nýju reglugerðina. Sérstak-
lega hitti reglugerðin illa fyrir bíla-
merkin Audi og Bentley. Fyrir vikið
varð tap af rekstri Bentley upp á
288 milljónir evra en hagnaður var
á rekstri Bentley árið áður upp á 55
milljónir evra.
WLTP olli erfiðleikum
Forsvarsmenn Volkswagen Group
segja að nýja WLTP-reglugerðin
muni áfram á þessu ári hafa nei-
kvæð áhrif á rekstur samstæð-
unnar, en þó í mun minna mæli
en í fyrra. Heildarhagnaður Volks-
wagen Group í fyrra nam 13,92
milljörðum evra, eða um 1.900
milljörðum króna. Það voru fyrir-
tækin Audi og Porsche sem áttu sem
fyrr vænan skerf í hagnaðarsköpun
VW Group, en Audi skilaði 4,7 millj-
örðum evra í hagnað og Porsche 4,1
milljarði og því áttu þessi tvö bíla-
merki 63% af hagnaði Volkswagen
Group. Volkswagen-merkið skilaði
hins vegar 3,2 milljörðum evra í
hagnað og skapaði því minni hagn-
að en bæði hin miklu minni bíla-
merki Audi og Porsche. Sem fyrr er
stærðin ekki allt! Sala Volkswagen
Group minnkaði í Ameríkuálfun-
um tveimur um 2% í fyrra, ekki síst
vegna þess að fyrirtækið dró sig út
úr taprekstri á ákveðnum svæðum
í Mexíkó og vandamálum í Brasilíu
og Argentínu. Salan í Bandaríkj-
unum jókst hins vegar um 2%.
Kína með 39% af sölu VW Group
Salan í Kína jókst um 0,5% og þar
seldi Volkswagen Group 4,5 millj-
ónir bíla í fyrra og er landið stærsta
markaðssvæði samstæðunnar.
Salan í Kína er 39% af allri fram-
leiðslu VW Group. Þar sem sam-
dráttur var almennt í bílasölu í
Kína í fyrra jók VW Group við
markaðshlutdeild sína í landinu
og var hún 18,5% í fyrra. Í áætl-
unum Volkswagen Group fyrir
árið í ár er gert ráð fyrir 5% hagn-
aði af sölu og hann á svo að hækka
í 6,5-7,5% á næsta ári. Ein afleiðing
þeirrar viðleitni Volkswagen Group
að ná fram meiri hagnaði af sölu er
fækkun starfsfólks og því má búast
við uppsögnum eða samningum
um starfslok hjá fyrirtækinu í ár
og á næstu árum. Forsvarsmenn
Volkswagen Group segja að það
rími ágætlega við nýjar áherslur á
smíði rafmagnsbíla sem krefjast um
30% færra starfsfólks í samsetningu
þar sem þeir eru einfaldari smíði en
bílar með brunavélar.
Minni hagnaður Volkswagen Group
Merkin Audi og Porsche skiluðu hvort um sig meiri hagnaði en Volkswagen-merkið sjálft.
VW Group hagnað-
ist um 1.900 millj-
arða króna og 63%
hagnaðarins komu
frá bílamerkjunum
Audi og Porsche.
SALA VOLKSWAGEN
GROUP Í KÍNA ER 39% AF
ALLRI FRAMLEIÐSLU SAMSTÆÐ-
UNNAR OG MARKAÐSHLUT-
DEILDIN ÞAR 18,5 PRÓSENT.
1 4 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
E
-B
C
9
8
2
2
8
E
-B
B
5
C
2
2
8
E
-B
A
2
0
2
2
8
E
-B
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K