Fréttablaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAKÞANKAR
FYRIR SVANGA
FERÐALANGA
*0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni.
Tilbúin vara, ekki hægt að breyta.
PANINI
OG GOS*
COMBO VERÐ:
499KR
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is
Vertu með allt
upp á S10!
Samsung Galaxy S10e
129.990 kr. stgr.
S10 144.990 kr.
S10+ 159.990 kr.
Í eina tíð var þetta samfélag með þá reisn að fannhvítir trukkabílstjórar upphófu
mótmæli við hjartarætur íslensks
samfélags, bensínstöðvarnar. En
kölluðu um leið yfir sig vígbúna
lögreglu sem þurfti að horfast Ray-
Ban í Ray-Ban á við Stulla og félaga
sem ekki höfðu lengur efni á að
kaupa olíu á yfirveðsetta bíla sem
keyptir höfðu verið sólgleraugna-
laust í bjartsýniskasti því þörf var
á því að grunnstoðir efnahagslífs-
ins, fjárfestingarfyrirtækin, gætu
vélað síðustu krónurnar út úr vel
meinandi fjölskyldum sem ætluðu
sér aldrei annað en „að vera með í
lífinu“.
Þá var lögreglan töff og gargaði
„Gas! Gas!“ og úðaði gasi gengdar-
laust yfir atvinnubílstjóra enda
vígvöllurinn áfyllingarstöð. Sumir
vilja meina að þessi átök hafi
markað upphaf búsáhaldaóþekkt-
arinnar sem síðar leiddi til þess að
Geir Haarde varð sendiherra sem
svo opinberaði að Steingrímur J.
væri misskilningur sem endaði
með því að Bjarna Ben var treyst
fyrir peningum landsmanna.
En nú er öldin önnur. Lögreglan
vanbúin og hefur ekki annað en
piparsprey og gólar vanmáttug á
framandi fólk „Krydd! Krydd!“ en
þykjast þó miklir menn og hand-
taka pappaspjöld því að mögulegt
er að kveikja í þeim, séu menn
með eldspýtur og ef menn eru í
skjóli, og ætli menn að kveikja í
þeim. Sem þó er alls ósannað – en
hverju skiptir það í réttarríki þar
sem dómstólarnir eru ekki annað
en lögleg en illa hirt tjaldstæði
fyrir f lokksgæðinga.
Piparúði! Því skríkir ekki
löggan bara: „Eigum við að henda
í ykkur Drakúlabrjóstsykri?“
Það myndi hæfa tilefninu, meintu
uppþoti. Mótmælum fólks sem fór
niður á Austurvöll vegna þess að
það langar „að vera með í lífinu“.
Gas! Gas!
1
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
3
-5
2
7
C
2
2
9
3
-5
1
4
0
2
2
9
3
-5
0
0
4
2
2
9
3
-4
E
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K