Skemmtiblaðið - 09.12.1921, Blaðsíða 2

Skemmtiblaðið - 09.12.1921, Blaðsíða 2
166 SKEMMTIBLAÐIÐ eins og fyrir hann var lagt. En Pinkerton og Bob hjeldu yíir í eina af aðalgötum New-York- borgar — þangað sem Úníon-hótelið er — og hlupu við fót. 4. kafli. Glæpamaðurinn AFHJÚPAÐUR. Forstjóri og eigandi Úníon-hótelsins sat inni á skrifstofu sinni og ritaði brjef í óða önn. Hann þóttist alveg fullviss um það, að enginn mundi ónáða sig núna. En allt í einu vissi hann ekki fyrri til, en hurðin hjá honum er opnuð og tveir prúðbúnir menn vaða óboðnir inn á skrifstofuna til hans. — Hótelstjórinn sneri sjer snúðugt við og hrökk í -hasti upp af stólnum. Það var tœpast að hann gæti komið upp orði — svo reiður var hann yfir þessarri dæmalausu ósvífni. En von bráð- ar hægði honum þó í skapi, því þeir Pinkerton og Bob gerðu grein fyrir sjer. — >En hvernig í ósköpunum stendur á því, að þið eruð á ferð hjer?< spurði hótelstjórinn. >Guð veit það, að hjerna á hótelinu fyrirfinnast engir glæpa- menn. Eða vitið þið ekki, hvílíkt snilldarorð fer af hótelinu mfnu?< >Jú-jú<, sagði Pinkerton. >En mannvalið hjerna á hótelinu, mun nú samt ekki vera alveg engil- hreint í þetta sinn, herra minn! — En hvernig er það .— er ekki einhver brúðkaupsveizla á ferðinni hjerna hjá yður núna?< >Brúðkaupsveizla?< át hótelstjórinn eítir. >0, ekki held jeg það!< >Nú, jeg hjelt satt að segja, að brúðkaupsveizla Barrýls lávarðar og ungtrú Capley færi hjer fram einmitt þessa stundina!< sagði Plnkerton. >Já — en það er alls engin veizla, í venjulegri merkingu, heldur aðeins borðhald nánustu aðstand- enda, sem fer fram í >gulu stotunni< á lottinu hjerna fyrir ofan. — Lávarðurinn, sem sennilega er andvfgur umsvifamiklum skvaldursveizlum, lagði áherzlu á það, að allt færi fram með kyrrð!< >Ja, þá stendur heima!< sagði Pinkerton. >En hverjir eru viðstaddir þar efra?< Hótelstjórinn brosti. >Ef þjer gerið ráð fyrir því, að finna einhverja glæpakind á þeirri samkomu, þá er mjer óhætt að fullyrða það, að þjer sjeuð staddur á römmustu villigötum. Samkoman samanstendur aðeins áf fjórum manneskjum: brjúðhjónunum og foreldrum brúðurinnar<. >Ef ekki eru aðrir viðstaddir<, sagði Pinkerton, þá getur það tæpast færra verið<. >En ef þjer reiknið litla dverg-rakkann lávarðar- ins með, þá verða persónurnar auðvitað fimm að tölunni tiU, bætti hótelstjórinn við í gázka-rómi. Pinkerton tók snöggt viðbragð: >Hvað! — Segið þjer að það sje Iftill dverg- rakki þar uppi líka! — !>að er hreint ekki ómerki- leg nýjung! — Heyrirðu það, Bob — lítill dverg- hundur f veizlunni!< Hótelstjórinn var mjög í vafa um það, hvernig hann átti að taka þessa athugasemd Pinkertons — og hann varð blátt áfrám hálf-klumsa af undrun yfir því, hvernig eitt meinlaust dverghunds-krýli virtist geta lagt undir sig alla athyggli hins stór- fræga glæpamanna-veiðara<. >Heyrðu Bob<, sagði Pinkerton. >Við skulum fara uppU Hótelstjórinn fjell í stáfi af nndrun yfir jafn- dæmafárri ósvífni, og hrökk út að hurðinni, í veg fyrir þá fjelaga: >Já, en sjáið þjer það ekki, herra Pinkerton, að það er miskunnarlaus ókurteisi, ef ekki annað enn verra, að raska friðhelgi fjölskyldunnar á meðan húu situr að máltíð. Það er blátt áfram ósæmi- legt! — Auk þess sem Barrýi lávarður gaf mjer ákveðna og stranga skipun um það, að veita eng- um aðgang, nema þjónum sínum, sem gengju um beinac. >Jú, jeg skil!< sagði Pinkerton. Og án þess að svara áhugamáli hótelstjórans, eins og við átti, bar hann fram þessa spurningu: >Eruð þjer kunnugur Capleys-fóikinu?< >Já, það er jeg — því jeg hef um mörg ár undanfarin átt þeim heiðri að fágna, að hafa það undir mínn þaki sem gesti, og það er þess vegna, að það hefur kosið mitt hótel, sem tryggan og rólegan verustað í þarfir þessa sjerstaka tæki- færis<, sagði hótelstjórinn. >Það er svo<, sagði Pinkerton, >En haldið þjer að þáð sje rjett álitið, að Capley sje vellríkur maður?< >Vafalaustl— Hann er margra miljóna eigandi<, sagði hótelstjórinn. >0g dóttir hans, Evelyn, sem nú er gift Bariýl — er hún einkaerfingi þeirra hjóna?< >Já, hún kvað eiga að erfa alit, þegar þar að kemur. — Barrýl lávarður hefur því verið meir en lítið heppinn í kvennamálunum — enda er það vel farið, því hann kvað vera gölugmenni !< sagði hóteleigandinn, >Þetta er víst algert oflof, herra minn<, sagði Pinkerton og horfði allhvasst framan í hússbónd- ann. >Barrýl þessi er samansaumaður glæpamað- ur, skal jeg segja yður. Og nú fer jeg rakleitt upp á loft og tek hann fa*tan<. Hótelstjórinn hörfaði nú ennþá óttaslegnari út að hurðinni en áðúr: >Guð minn góður! Hvað-hva-hvað segið þjer! — Eruð þjer orðinn alveg brjálaður, Pinkerton! — Jeg vona til guðs og treysti því, að þjer látið ógert að flana út í aðra eins voða-fásinnu!< stam- aði hótelstjórinn fiam úr sjer í oinlægnm bænar- rómi. >Nei-nei, jeg ekki brjálaður<, sagði Pinkerton. >Þetta, sem jeg hef sagt, er laukrjett<. — Komdu Bob!< — >í öllum guðanna bænuml< sagði hússbóndinn hástöfum. >Barrýl lávarður er ekki glæpamaður. Það er ómögulegur hlutur. Hann er göfugmenni! Fyrir alla lifandi muni, herra Pinkerton — Reynið til að neitá yður um aðra eins mannheimsku og þetta!< >Látið mig um það, og verið þjer rólegur!< sagði Pinkerton og greip um hurðarhúninn til útgöngu. — En á sama augnabliki brá svo við, að andvarp og stynjandi mannsrödd ljet til sín heyra á gang- inum fyrir framan. — Pinkerton opnaði skrifstofu- hurðina, en náfölur þjónn, óstyrkur og óðamála, álpaðist kjökrandi inn í stofuna til þeirra. — Hótelstjórinn sá strax, að þarna var kominn þjónn sá, er gekk um beina við brúðkaups-borð- haldið uppi hjá Barrýl lávarði. >Herra Cavley! — Herra Cavley . . . «, stamaði

x

Skemmtiblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtiblaðið
https://timarit.is/publication/1328

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.