Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 10
Þessi stuðningur
endurspeglar hug
landsmanna.
Juan Guaidó,
leiðtogi venesú-
elsku stjórnar-
andstöðunnar
JAPAN Akihito Japanskeisari afsal-
aði sér krúnunni í keisarahöllinni í
Tókýó í gær. Hann varð þannig fyrsti
japanski keisarinn til þess að taka
þetta skref í rúmar tvær aldir. Naru-
hito krónprins og sonur þeirra Aki-
hito og Michiko, tók við á miðnætti
að staðartíma með keisaraynjuna
Masako sér við hlið.
Akihito byrjaði sinn síðasta dag
sem keisari á því að taka þátt í shinto-
trúarathöfn þar sem hann bað goð-
fræðilega forfeður keisaraættarinnar
um leyfi fyrir því að afsala sér krún-
unni, að því er BBC greindi frá.
Hinn 85 ára gamli fyrrverandi
keisari vildi stíga til hliðar sökum
heilsu sinnar og aldurs. Í síðustu ræðu
sinni sem keisari óskaði hann Japan
og heiminum öllum alls hins besta
og þakkaði kærlega samfylgdina í
gegnum þá þrjá áratugi sem hann sat
á keisarastóli.
Hefð er fyrir því að valdatíð hvers
keisara fái sérstakt nafn í Japan. Nú
er sum sé tekið við Reiwa-tímabilið
en Heisei-tímabilið er liðið undir lok.
Reiwa hefur verið þýtt sem fallegur
samhljómur á meðan Heisei þýðir
friður.
„Við keisarahjónin vonum að
Reiwa-tímabilið einkennist af
stöðug leika og velsæld. Ég bið fyrir
því af öllu hjarta að Japanar og allir
íbúar jarðar njóti friðar og ham-
ingju,“ sagði Akihito.
Hinn 59 ára gamli Naruhito á eitt
barn, prinsessuna Aiko sem fæddist
árið 2001. Japönsk lög heimila konum
ekki að erfa keisarastólinn og er föð-
urbróðir Aiko, Fumihito, því orðinn
krónprins. – þea
Akihito afsalar sér krúnunni og óskar heimsbyggðinni allri friðar
UTANRÍKISM ÁL Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra fundaði
með Nicola Sturgeon, fyrsta ráð-
herra skosku heimastjórnarinnar,
í Skotlandi í gær. Þetta kom fram í
tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Þær ræddu um samstarfsverkefni
smærri ríkja á sviði hagsældar,
loftslagsmála og um samstarf á sviði
sjálf bærrar ferðaþjónustu.
„Það eru sterk tengsl á milli
Íslands og Skotlands og ég fagna
mjög samstarfi okkar á sviði hag-
sældar og sjálf bærrar ferðaþjón-
ustu. Við lítum til stefnumótunar
skoskra stjórnvalda í þessum mála-
flokkum og fleirum, þar á meðal að
því er varðar stafrænt kynferðisof-
beldi og heimilisof beldi. Þá rædd-
um við sérstaklega um loftslagsmál
enda löngu tímabært að þau mál
skili sér inn í stefnumótun á öllum
öðrum sviðum,“ sagði Katrín. – þea
Katrín fundaði
með Sturgeon
BANDARÍKIN Joe Biden, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, hefur
tekið mikinn kipp í skoðanakönn-
unum frá því hann tilkynnti form-
lega um framboð sitt í forvali Demó-
krata fyrir forsetakosningarnar
2020 í síðustu viku ef marka má
nýja könnun frá CNN.
Samkvæmt könnun Monmouth,
sem var birt níu dögum fyrir til-
kynningu Bidens, hafði hann stuðn-
ing 27 prósenta en Bernie Sanders
og Kamala Harris voru með 20 pró-
sent og átta prósent.
CNN birti í fyrrinótt einu stóru
könnunina sem gerð hefur verið
eftir tilkynningu varaforsetans
fyrrverandi. Þar mælist Biden með
mikið forskot; 39 prósent gegn 15
prósentum Sanders og fimm pró-
sentum Harris en þau eru í öðru og
þriðja sæti samkvæmt meðaltali
kannana.
Aðrir frambjóðendur hafa tekið
kipp eftir tilkynninguna. Sá kippur
er þó venjulega tímabundinn og
verður forvitnilegt að sjá hvort það
sama gildir um Biden. – þea
Biden tekur
mikinn kipp
Akihito keisari og Michiko keisaraynja á lokasprettinum sem keisarahjón.
Hin nýju, Naruhito og Masako, sjást svo hér í bakgrunni. NORDICPHOTOS/AFP
Það eru sterk tengsl
á milli Íslands og
Skotlands og ég fagna mjög
samstarfi okkar á sviði
hagsældar og sjálfbærrar
ferðaþjónustu.
Katrín Jakobs-
dóttir forsætis-
ráðherra
Joe Biden. NORDICPHOTOS/AFP
VENESÚELA Átök brutust út á milli
stjórnarsinna og stjórnarandstæð-
inga í Venesúela í gær. Stjórnarliðar
sögðu ríkisstjórnina vera að kveða
niður „minniháttar valdaráns-
tilraun“. CNN í Venesúela, sem
ríkisstjórnin lét loka fyrir í gær-
kvöldi, greindi frá því að 52 hefðu
særst í átökunum. Þar af 32 vegna
gúmmíbyssukúlna og einn vegna
raunverulegrar byssukúlu.
Ástandið í Venesúela hefur verið
á suðupunkti mánuðum saman eða
allt frá því að venesúelska þingið
lýsti því yfir í janúar að Juan Guaidó
þingforseti tæki við sem starfandi
forseti af Nicolás Maduro. Þingið,
þar sem stjórnarandstaða hefur
meirihluta, lítur svo á að Maduro
hafi ekki verið endurkjörinn í for-
setakosningunum 2018 þar sem
hann á að hafa svindlað.
Maduro er ekki á sama máli og
þingið enda álítur hann það í raun
valdalaust. Hann stofnaði sérstakt
stjórnlagaráð árið 2017 þar sem
samflokksmenn hans halda öllum
sætum. Forsetinn álítur ráðið eins
konar arftaka þingsins.
Eftir að þingið lýsti Guaidó starf-
andi forseta bárust stuðningsyfir-
lýsingar frá Vesturlöndum. Banda-
ríkin hafa verið einna háværust í
stuðningi við Guaidó. Rússar hafa
hins vegar verið einir dyggustu
stuðningsmenn Maduro-stjórnar-
innar.
Atburðarás gærdagsins hófst
þegar Guaidó birti myndband af sér
þar sem hann sást með einkennis-
klæddum hermönnum fyrir utan La
Carlota-herstöðina í höfuðborginni
Karakas. Guaidó sagði að hermenn
hefðu svarað kalli stjórnarand-
stöðunnar og sagði að gærdagurinn
markaði „endalok valdaránsins“.
Við hlið Guaidó stóð einnig Leo-
poldo López, samflokksmaður hans
sem var dæmdur í stofufangelsi árið
2014 fyrir að hafa skipulagt mót-
mæli. López greindi síðar frá því
á Twitter að hermenn hefðu leyst
hann úr haldi. „Nú þurfa allir að
fara í viðbragðsstöðu. Það er tími
til þess að vinna frelsissigur,“ tísti
hann.
Guaidó sagði við blaðamenn að
fjöldi hermanna styddi hann nú.
„Það eru hershöfðingjar, ofurstar,
majórar. Þessi stuðningur endur-
speglar hug landsmanna.“
Maduro brást samkvæmt The
New York Times við með því að
segja að herinn væri hliðhollur
ríkisstjórn hans. Jorge Rodríguez,
upplýsingamálaráðherra Maduros,
fylgdi í kjölfarið og sagði ríkis-
stjórnina nú vera að „takast á við
og leysa upp hóp landráðamanna
úr hernum sem hefðu tekið yfir
herstöðina til þess að framkvæma
valdarán“.
Upp úr hádegi að staðartíma
höfðu um 2.000 safnast saman til
stuðnings Guaidó við herstöðina
og um 200 stuðningsmenn Mad-
uros við forsetahöllina. Átök brut-
ust út við herstöðina og varpaði
þjóðvarðlið og lögregla táragasi
á stjórnarandstæðinga. Sjá mátti
brynvarinn bíl þjóðvarðliðsins aka
yfir mótmælendur á myndbandi
sem birtist á veraldarvefnum. Sam-
kvæmt Reuters í Venesúela höfðu
mótmælendur grýtt bílana.
Rússneska utanríkisráðuneytið
sakaði stuðningsmenn Guaidó í
tilkynningu um að beita of beldi til
þess að ná sínu fram. „Í staðinn fyrir
að leysa pólitískan ágreining á frið-
samlegan hátt hafa þeir ákveðið að
stofna til átaka.“
Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna, sagðist fylgjast náið með
gangi mála. „Bandaríkin standa
með venesúelsku þjóðinni og frelsi
hennar,“ tísti forsetinn og átti þar
við stuðningsmenn Guaidó.
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti
til stillingar að sögn upplýsinga-
fulltrúa hans, Stephane Dujarric.
„Hann biðlar til alla hlutaðeigandi
um að forðast of beldi og leitast við
að koma á friði á ný.“
Ekki hafði tekist að stilla til friðar
þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gær. The Guardian hafði eftir
venesúelska blaðamanninum Luz
Mely Reyes að Guaidó hefði ekki
ætlað sér að stíga þetta skref í gær.
Honum hefði hins vegar fundist
hann knúinn til þess þar sem ríkis-
stjórnin var við það að handtaka
hann, sagði Reyes.
thorgnyr@frettabladid.is
Átök brutust út á milli stjórnar
og andstöðunnar í Venesúela
Lögregla og þjóðvarðlið vörpuðu táragasi á stuðningsmenn stjórnarandstöðuleiðtogans og starfandi
forsetans Juan Guaidó í höfuðborg Venesúela eftir að hann birti myndband af sér með hermönnum og
hvatti fólk til þess að grípa til aðgerða gegn stjórn Nicolás Maduro forseta. Tugir sagðir vera særðir.
Stuðningsmenn Juan Guaidó flykktust að herstöð í höfuðborginni Karakas þar sem þeim lenti saman við lögreglu og þjóðvarðliðið. NORDICPHOTOS/AFP
1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
7
-9
6
6
C
2
2
E
7
-9
5
3
0
2
2
E
7
-9
3
F
4
2
2
E
7
-9
2
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K