Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 34
Skotsilfur Hart sótt að stjórnendum Boeing
Stjórnarmenn og helstu stjórnendur Boeing sættu harðri gagnrýni á aðalfundi flugvélaframleiðandans sem haldinn var í Chicago fyrr í vikunni en hlut-
hafar kröfðust á fundinum skýringa á því hvernig félagið hygðist bregðast við kyrrsetningu Boeing 737 MAX véla þess. Einkar hart var sótt að Dennis
Mull enburg, forstjóra og stjórnarformanni Boeing, og samþykktu 34 prósent hluthafa tillögu um að hann léti af stjórnarformennsku. NORDICPHOTOS/GETTY
Áratugur endurreisnar efnahagslífsins er að baki og skiluðu skýr sýn og mark-vissar aðgerðir sterkri stöðu til að takast á
við áskoranir fram undan. Tvennt
stendur upp úr við endurreisn efna-
hagslífsins eftir fall bankanna 2008.
Annars vegar er það endurskipu-
lagning skulda þar sem heildstæð
áætlun um losun fjármagnshafta vó
þyngst. Hins vegar er það kröftugt
viðbragð atvinnulífsins þar sem
ferðaþjónusta blómstraði og varð að
undirstöðugrein í útflutningi ásamt
iðnaði og sjávarútvegi. Niðurstaðan
af þessari markvissu uppbyggingu
er sú að hagkerfið er gjörbreytt og
stendur miklu sterkar nú en áður.
Í sama anda á að efla samkeppnis-
hæfnina þannig að öflugt atvinnulíf
geti tryggt verðmætasköpun með
tilheyrandi lífsgæðum fyrir lands-
menn alla. Það þarf að gera – og verð-
ur gert – með mótun atvinnustefnu
sem tengir saman stefnumótun í
ólíkum málaflokkum.
Sterk efnahagsleg staða
Endurskipulagning skulda var þrí-
þætt og olli algerum viðsnúningi.
Með losun fjármagnshafta fékk
ríkissjóður „hvalreka“ sem nam um
20% af vergri landsframleiðslu auk
þess sem erlendar eignir þjóðarbús-
ins eru nú meiri en erlendar skuldir,
í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins.
Þessi staða, til viðbótar við öflugan
gjaldeyrisforða, er mikilvæg festa
fyrir hagkerfið. Í öðru lagi voru
skuldir heimila endurskipulagðar
og munaði þar mest um Leiðrétt-
inguna. Skuldir heimilanna eru nú
um 76% af vergri landsframleiðslu og
hafa ekki verið lægri á þessari öld en
námu 122% þegar mest var árið 2009.
Í þriðja lagi voru skuldir fyrirtækja
endurskipulagðar í gegnum banka-
kerfið og eru nú um 40% af því sem
var þegar mest lét.
Stöðugleiki
Lífskjarasamningurinn er samsett
lausn sem miðar að hærri launum,
auknum sveigjanleika og lægri
sköttum. Með hliðsjón af sterkari
efnahagslegri stöðu eins og að
framan greinir, kólnun hagkerfisins
og fyrirhuguðum umbótum á hús-
næðismarkaði skapast skilyrði til
lækkunar vaxta líkt og seðlabanka-
stjóri nefndi í grein sinni í Morgun-
blaðinu í gær. Þannig skapast skil-
yrði fyrir stöðugleika á næstu árum.
Lífskjarasamningurinn og yfirlýs-
ing ríkisstjórnarinnar samhliða gerð
hans marka kaflaskil enda eru þeir
viðbragð við breyttum aðstæðum.
Hagkerfið er að kólna eftir gjöfult
hagvaxtarskeið þar sem kaupmáttur
hefur vaxið mikið og viðskiptakjör
hafa farið versnandi. Erlend sam-
keppni í skjóli lægri launa, lægri
vaxta og lægri skatta knýr á um
hagræðingu fyrir íslenskan iðnað.
Nauðsynlegt er að bregðast við svo
Ísland dragist ekki aftur úr öðrum
ríkjum og það verður aðeins gert
með aukinni samkeppnishæfni.
Eflum samkeppnishæfni
Samkeppnishæfni er heimsmeist-
aramót þjóða í lífsgæðum enda er
aukin samkeppnishæfni ávísun
á aukin verðmæti. Fjórar mikil-
vægustu stoðir samkeppnishæfni
eru menntun og mannauður, efnis-
legir innviðir, nýsköpun og starfs-
umhverfi fyrirtækja. Umbætur á
þessum fjórum sviðum gagnast því
öllum fyrirtækjum enda lyftast öll
skip á flóði.
Atvinnustefna varðar veginn
At v innustef na er samhæf ing
aðgerða til þess að skapa aukin verð-
mæti, auka framleiðni og efla sam-
keppnishæfni. Um þessar mundir
vinna stjórnvöld að mótun stefnu í
ýmsum lykilmálaflokkum. Það er
vel en við munum ekki ná árangri
nema hugsa stórt og á heildstæðan
hátt, líkt og við endurreisn efna-
hagslífsins undanfarinn áratug,
þannig að stefnumótun í ólíkum
málaf lokkum vinni að sameigin-
legu markmiði. Tengja þarf saman
stefnumótun á sviði menntamála,
nýsköpunar, innviðauppbyggingar
og bætts starfsumhverfis fyrirtækja
með það að markmiði að auka verð-
mætasköpun á Íslandi. Einnig þarf
að horfa til orku- og loftslagsmála.
Með því að læra af reynslu síðasta
áratugar og hugsa heildstætt getum
við bætt stöðu Íslands svo um munar.
Þetta er ekki val heldur nauðsyn.
Nýtt skeið er runnið upp
Sigurður
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
Engin páskaegg
í Arion
Hefð hefur verið
fyrir því innan
Arion banka,
rétt eins og
flestum fyrir-
tækjum landsins,
að starfsmenn fái
páskaegg að gjöf frá
bankanum til að hafa meðferðis í
páskafríið. Þeirri hefð var hins vegar
slitið í ár en Höskuldur Ólafsson,
sem hætti á dögunum sem banka-
stjóri Arion banka, lét það verða eitt
af sínum síðustu verkum að ákveða
að engin páskaegg yrðu gefin í
þetta sinn, við afar litlar vinsældir
starfsmanna bankans.
Sjóðirnir
lúffuðu
Ný stjórn Eimskips
var kjörin á fram-
haldsaðalfundi
flutningarisans í
síðustu viku eftir
að þrátefli hafði
myndast á milli líf-
eyrissjóðanna og stærsta
hluthafans, Samherja, á fyrri aðal-
fundi í lok mars. Deilan leystist eftir
að sjóðirnir gáfu eftir og Vilhjálmur
Vilhjálmsson, sem naut stuðnings
þeirra og hlaut næst flest atkvæði
á fyrri fundinum, dró framboð sitt
til baka. Í fimm manna stjórn njóta
nú þrír stuðningsmenn Samherja.
Áhugavert verður að fylgjast með
framhaldinu í fleiri skráðum fé-
lögum. Munu lífeyrissjóðirnir halda
áfram að leyfa einkafjárfestum í
meiri mæli að leiða félögin?
Beðið eftir
hæfisnefndinni
Meira en mán-
uður er liðinn frá
því tilkynnt var
um þá sextán
umsækjendur
sem sækjast eftir
embætti seðla-
bankastjóra. Það
hefur því vakið athygli að ekki sé
búið að ganga frá skipan þriggja
manna hæfisnefndar sem mun fara
yfir umsóknirnar og meta hæfni
þeirra sem sóttu um. Sagt er að
búið sé að leita til Þórunnar Guð-
mundsdóttur, lögmanns og vara-
formanns bankaráðs Seðlabankans,
og Eyjólfs Guðmundssonar, rektors
Háskólans á Akureyri, um að taka
sæti í nefndinni. Beðið er hins vegar
eftir því að Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra skipi þann þriðja
en hann verður jafnframt formaður
hæfisnefndarinnar.
Athygli vakti í liðnum mánuði þegar breska verslanakeðjan Debenhams, sem var stofnuð
fyrir ríflega 240 árum, fór í greiðslu-
stöðvun og var í kjölfarið tekin yfir
af kröfuhöfum sem hyggjast draga
verulega úr umsvifum keðjunnar. Á
sama tíma greindi ráðgjafarfyrirtækið
Coresight frá því að bandarískir smá-
salar hefðu í hyggju að loka allt að sex
þúsundum verslunum í ár sem yrðu þá
2,2 prósent fleiri verslanir en í fyrra.
Allt ber að sama brunni. Á sama
tíma og netverslun stóreykst berjast
rótgrónar verslanakeðjur í bökkum.
Gjörbreytt samkeppnisumhverfi
– með aukinni netverslun, minna
trausti neytenda og breyttri hegðun
nýrrar aldamótakynslóðar – hefur
leitt til þess að hefðbundnar versl-
anir hafa þurft að leita leiða til þess
að hagræða í rekstri, draga saman
seglin og laga sig að breyttum veru-
leika. Að öðrum kosti blasir gjaldþrot
við, eins og eigendur Claire’s, Sears og
Toys R Us, svo dæmi séu nefnd, hafa
fengið að kenna á. Ris Amazon, eins
verðmætasta fyrirtækis heims, er hin
hliðin á sama peningi.
Íslenskar verslanir hafa vitaskuld
ekki farið varhluta af þessari þróun.
Stærsta smásölufyrirtæki lands-
ins, sem rak á sínum tíma Topshop,
Debenhams, All Saints, Day, Coast og
Dorothy Perkins, hefur til að mynda
dregið verulega úr fataverslun á
umliðnum árum. Verslun víða í mið-
borginni á jafnframt undir högg að
sækja og standa mörg verslunarrými
þar á besta stað nú auð.
Þessi hraða þróun – sú breyting sem
er að verða á verslunarmynstri fólks –
er ein helsta áskorunin sem íslenskir
verslunareigendur standa frammi
fyrir um þessar mundir, fremur en
göngugötur og skortur á bílastæðum,
eins og stundum mætti halda af
umræðunni.
Fyrir utan þá staðreynd að nær
hvergi í evrópskum miðborgum er
eins mikið af niðurgreiddum bíla-
stæðum og miðsvæðis í Reykjavík
hefur umferð um miðborgina stór-
aukist frá því sem áður var. Reykvísk
borgaryfirvöld mættu í því sambandi
líta til miðborga í evrópskum stór-
borgum, til dæmis Kaupmannahöfn
og Ósló, þar sem markvisst er verið að
þrengja að einkabílnum og auka þess í
stað rými fyrir gangandi.
Um leið mættu reykvískir stjórn-
málamenn taka skattastefnu borgar-
innar til gagngerrar endurskoðunar
en þau himinháu fasteignagjöld sem
hún leggur á verslunarhúsnæði í mið-
borginni eru vafalaust einn helsti
þröskuldurinn í vegi þess að verslun
þar blómgist og dafni. Engum dylst að
miðað við arðsemi fasteignafélaganna
eiga þau ekki annarra kosta völ en að
velta tugprósenta hækkunum á fast-
eignagjöldum út í leiguverð – versl-
unarfyrirtækjum til tjóns.
Ljón á vegi blómlegrar verslunar
Kristinn Ingi
Jónsson
SKOÐUN
Lífskjarasamning-
urinn er samsett
lausn sem miðar að hærri
launum, auknum sveigjan-
leika og lægri sköttum.
1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
7
-A
5
3
C
2
2
E
7
-A
4
0
0
2
2
E
7
-A
2
C
4
2
2
E
7
-A
1
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K