Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 5

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 5
M a r g r a h e i m a s ý n TMM 2013 · 4 5 íslenskan, er eina tungumálið í heiminum sem gefur milliliðalausan aðgang að þessum handritum, að þeirri veröld sem í þeim birtist, hvort sem það eru Íslendingasögurnar, Sturlunga, Eddukvæðin eða hvað annað sem ritað er á hin gömlu skinn. Það er ekki svo lítil meðgjöf. Íslenskan er lykillinn að þessum fornu sögum og um leið eru handritin lykillinn að íslenskunni. Þetta samspil hefur þjónað okkur vel í gegnum tíðina og mun gera það áfram og tryggja viðgang tungumálsins vegna þess að sögur og kvæði sem handritin geyma búa yfir þeim galdri að höfða til okkar á öllum tímum. Það er engin ástæða til þess að ætla að það breytist neitt í framtíðinni. Tíminn hefur ekki megnað að draga úr þýðingu handritanna af þeirri einföldu ástæðu að þau geta aldrei verið okkur dauður hlutur, hafður upp á punt í sérsmíðuðum hirslum. Þvert á móti eru þau síkvik í menningarheimi okkar og alsjáandi á mannlegt eðli – það eðli sem lítið breytist þótt ár og dagar líði. Það á ekki minnstan þátt í hinu ákjósanlega samspili fornritanna og tungunnar. Þau eru í senn forgömul og síung. Í þeim eru settar fram athugasemdir og spurningar um hegðun mannsins og þeim er svarað með þeim hætti að enn í dag er litlu við að bæta. Í þeim má finna vísdómsorð sem gilda á öllum tímum og eiga við um alla tíma og svara spurningum um okkur sem manneskjur í fortíð og nútíð og framtíð – um kosti okkar vissulega en ekki síður galla. Fornritin eiga alltaf erindi við okkur. Við höfum getað leitað til þeirra beint og fundið þar einskonar þjóðarsál eða kjarna í tilvist okkar fámennu eyþjóðar. Meðal þess sem þau kenna okkur er að fara varlega þegar við sýslum með fé. Dýrkeypt hefur okkur reynst að hundsa þau varnaðarorð. Handritin kenna okkur að reyna að vera ekki eitthvað annað en við erum. Þau kenna okkur að gleyma ekki uppruna okkar. Við erum ekki bankaþjóð. Við erum hin fullkomna andstæða við bankaþjóð. Við erum bókaþjóð. Við ættum ekki að gleyma því eða gera lítið úr því eða þykja það síðra hlutskipti en við- skiptavafstur hverskonar. Staðreyndin er sú að þótt við séum kannski ung að árum ef litið er til sögu Evrópu, erum við gömul menningarþjóð. Handritin hafa séð til þess. Þau eru í raun ómetanleg stærð í okkar menningarlegu til- vist og því er óþarfi að gleyma. Það má vera að allt hafi farið í vaskinn hjá bankaþjóðinni en kannski að upp úr öskunni hafi bókmenntaþjóðin risið á ný og sé sterkari en áður. Við erum of fámenn til þess að einblína í sífellu á hagvöxt í peningum. Miklu fremur eigum við að mæla hagsæld í menningu og þekkingu og menntun. Það er sú eina vísitala sem máli skiptir. Hagvöxtur menningar. Þetta tvennt vinnur auðvitað saman ef menn fara ekki fram úr sér og halda skynsamlega á spilunum. Því verður ekki neitað að á Íslandi ríkti hámenning á miðöldum. Þá var hér velsæld með ábatasamri verslun og siglingum til fjarlægustu staða, eins og Helgi Guðmundsson rekur í fróðlegri ritgerð í bók sinni Handan hafsins. Hann telur upp nokkrar ástæður þess að hagfelldar aðstæður sköpuðust hér á Norður-Atlantshafi til þess að leggja grunninn að hámenningu, sem skýrast kom fram í ritlistinni. Hann bendir á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.