Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 50
H j a l t i H u g a s o n 50 TMM 2013 · 4 Hrunið hafi verið víðtækara en svo að það hafi einvörðungu snert efnahags- líf og fjármálakerfi landsins eða er Hrunið smættað með slíkri nálgun og gert takmarkaðra en efni standa til? Risti það svo dúpt að líta megi á það sem kreppu og jafnvel áfall eða tráma í lífi fjölmargra einstaklinga og hugsanlega samfélagsins í heild? Sé svo gæti guðfræðin haft töluvert fram að færa við greiningu þess og úrvinnslu en „krísur“ og „trámu“ eru mikilvæg stef í guð- fræðilegri orðræðu; bæði fyrirbærin blasa við í sinni hreinræktuðustu mynd í dauðanum sem er eitt af lykilþemum guðfræðinnar auk þess sem líta má á hann sem frummynd eða erkitýpu kreppa og áfalla í mannlegri tilveru. Hagtölur og félagsfræðilegar greiningar sýna ótvírætt að Hrunið rís undir því að kallast kreppa í efnahagslegu og félagslegu tilliti. Afleiðingar þess fyrir fjölda einstaklinga og fjölskyldna staðfesta það mat. Atvinnuleysi snarjókst, skuldir heimila hækkuðu margfalt og margar fjölskyldur misstu húsnæði sitt og fundu sig jafnvel tilneyddar að yfirgefa landið og leita sér framtíðar annars staðar. Dýpt og inntak Búsáhaldabyltingarinnar sýnir það sama. Fleyg upphrópun frá þeim tíma – Helvítis fokking fokk! – endurspeglar reiði og örvæntingu sem ekki hafði einkennt íslenskt samfélag fram til þess tíma. Lítill vafi leikur því á að raunhæft er að líta á Hrunið sem kreppu eða „krísu“ í lífi fjölmargra einstaklinga og þar með samfélagsins sem náði út fyrir það svið sem einvörðungu er bundið við fjármál eða efnahag. Það hafði einnig tilfinningalegar, sálrænar og jafnvel andlegar hliðar þar sem það ýtti undir víðtæka vanlíðan í samfélaginu. Augljóst virtist að veturinn 2008–2009 greip öryggisleysi og sorg um sig meðal þjóðarinnar og mörg okkar fundu til ráðaleysis og jafnvel lömunar. Fljótt tók reiði einnig að grípa um sig og leita útrásar eins og fram kom í langvinnum og endurteknum mótmælum þar sem fleiri tóku þátt og beittu ágengari aðferðum en almennt gerist í mótmælum hér á landi. Ný mótmæla- menning ruddi sér til rúms í landinu. Sjálfur átti ég leið til útlanda skömmu eftir Hrun og þurfti þar beinlínis að koma fram sem Íslendingur. Þá fann ég til sterkrar blygðunarkenndar og skammar. Svo kann að hafa verið um fleiri sem töldu að blettur hefði verið settur á ímynd þjóðarinnar. Þennan vetur bar mikið á harkalegum ásökunum í garð þeirra sem helst voru taldir bera ábyrgð á Hruninu, athafna-, banka- og stjórnmálamanna auk opinberra eftirlitsaðila sem enn voru ekki vel ígrundaðar þar sem skýrsla Rann- sóknarnefndar Alþingis lá t.d. enn ekki fyrir. Þeir sem urðu fyrir ásökunum afneituðu hins vegar eindregið allri ábyrgð. Á þjóðfundinum haustið 2010 fór svo fram áköf leit að nýjum, sameiginlegum og „æðri“ gildum þar sem jafnrétti, lýðræði, heiðarleiki, mannréttindi, réttlæti, virðing, frelsi og ábyrgð skoruðu hæst.2 Ferli sem einkennist af lamandi öryggisleysi og sorg, reiði, ásökunum, skömm, afneitun, ákalli um uppgjör og leit að æðri gildum rís vissulega undir því að kallast „krísa“ ef ekki áfall eða „tráma“. Um margt líkjast þær tilfinningar sem hér var lýst ástandi í fjölskyldu eða öðru nærsamfélagi þar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.