Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Blaðsíða 132

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Blaðsíða 132
132 TMM 2017 · 4 Einar Már Jónsson Múrarinn Þegar sagnfræðingar tvíhenda sína breiðu og mjóu pensla til að draga upp mynd af horfnum tíma, útmála þá brokkgengu atburði sem á því méli hringveltust um sviðið, teikna stífudans hugmyndanna bæði hlutrænt og abstrakt, bregða upp kraftbirtingum eyðileggingar og nýsköpunar, og sýna jafnframt, eins og í spegilmynd, við- brögð einstaklinga eða þá alls almenn- ings við þessum sjónhverfingum líðandi stundar, komast þeir gjarnan að þeirri niðurstöðu að samtímamennirnir hafi ekki skilið mikið af því sem þá var á seyði, þeir hafi túlkað það og metið ranglega og gert sér hugmyndir sem síðan reyndust rangar, jafnvel ekki einu sinnu tekið eftir atburðum sem seinni tíma mönnum þóttu boða þáttaskil. Það þykir í frásögur færandi ef einhver hugsandi maður gerir sér fulla grein fyrir því sem er að gerast á hans tímum. Um þetta má nefna ýmis dæmi bæði í smáu og stóru. Kannske finnst mönnum ekki mikið mark takandi á orðum gömlu konunnar sem heyrði frá því sagt 1914 að Þjóðverjar æddu yfir Belgíu með stefnuna í átt að Frakklandi og mælti þá: „Þetta endar með því að þeir drepa ein- hvern.“ En yngri menn og skarpari eru heldur ekki alltaf miklu glöggsýnni eins og dæmi franska bréfritarans Madame de Sévigné á 17. öld er til vitnis um, en hún leit svo á að súkkulaðidrykkja væri, eins og vinsældir harmleikjaskáldsins Racine, tískufyrirbæri sem myndi senn hverfa af sjónarsviðinu og falla í gleymsku. Eitthvað svipað var sagt um tónlist Bítlanna í mínu ungdæmi: „þetta er engin tónlist heldur bara hávaði“, menn bjuggust við að hún myndi hljóðna með nýrri hártísku. Í gamalli kennslubók í hljómfræði var nemendum eindregið ráðlagt að grandskoða útsetn- ingar Bachs á sálmalögum, „þær verða jafnan fyrirmynd þegar hinar löngu og drungalegu tónsmíðar hans sem tískan hampar nú eru öllum gleymdar“, sagði höfundur. Abstrakt málarar og fylgjend- ur raðtækni í tónlist litu hins vegar svo á að þeir væru tímamótamenn að leggja drög að alveg nýjum stefnum í list fyrir komandi tíma, menn með þekkingu á sveiflum tónlistarsögunnar reiknuðu út að hin strangasta raðtækni hlyti að verða ríkjandi langt fram eftir 21. öld, eftir það færi hún kannske að verða eitt- hvað sveigjanlegri. Menn krotuðu ártöl á töflu til að sanna það: þau sýna, börn- in góð, að það verða jafnan mikil enda- skipti á tónlist á þrjú hundruð ára fresti, 1300 … 1600 … 1900 …, „art nouveau“, „nuove musiche“, „musica nova“ … Þetta gildir ekki síður þegar stærri og dramatískari atburðir eru að gerast. Á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar, þegar báðir aðilar drápu mann og annan svo bragð var að, var sú kenning útbreidd að þessi hildarleikur væri „stríð til að binda enda á öll stríð“, semsé að fyrir 1914 hefðu verið mörg óútkljáð mál í Evrópu sem styrjöldin myndi gera upp, eftir það væru engin deilumál eftir og þá myndi vera friður um aldur og ævi, engar landamæraþrætur né rígur milli þjóða. Síðan var því trúað að Versalasamning- arnir 1919 væru það lokauppgjör sem menn hefðu beðið eftir. Það þurfti sér- staklega glöggan mann, John Maynard H u g v e k j a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.