Umbrot - 18.01.1978, Qupperneq 1
1. tbl. Miðvikudagur 18. janúar 1978 5. árgangur
FJÁIÍHAGSÁÆTLUN
í UNDIRBÚNINGI
Þessa dagana er unnið af
fullum krafti við gerð f járhags-
áætlunar Akraneskaupstaðar
fyrir árið 1978. Umbrot sneri
sér til eins af bæjarráðsmönn-
unum, Guðmundar Vésteinsson-
ar og innti hann frétta af gerð
áætlunarinnar.
Guðmundur sagði að í lok
desember hefði bæjarráð farið
að vinna við gerð fjárhagsáætl-
unar. Farið er í gegnum allan
bæjarreksturinn og teknar fyrir
allar óskir og tillögur um endur-
bætur á hinum ýmsu stofnun-
um bæjarins.
Þá sagði Guðmundur að bæj-
arráð hefði tekið upp það ný-
mæli að fara í skoðunarferðir
á ýmsa staði, s.s dagheimilið,
skólana, íþróttahúsið o. fl. stofn
anir, og rætt þar við starfsfólk
og fengið upplýsingar um ýmsa
hluti sem til greina þyrfti að
taka við gerð áætlunarinnar.
„Þetta er allt mikil vinna,“ sagði
Guðmundur „og vart við því að
búast að hægt verði að leggja
fjárhagsáætlunina fyrir næsta
bæjarstjórnarfund, sem verður
24. janúar.“
Að lokum var Guðmundur Vé-
steinsson spurður um það hvort
þessi áætlun myndi bera ein-
hver merki þess að kosningar
verða að vori.
Ekki kvað hann svo vera.
„Það er fjármagnið sem ræður
ferðinni, og þetta gengur allt
svipað fyrir sig, hvort sem kosn-
ingar eru eða ekki.“
SAMNINCUR VIÐ JÁRNBLENDIFÉLAGIÐ
VECNA LEICUÍBÚÐA
Bæjarstjórn hefur gert samn-
ing við Járnblendifélagið um
leigu á 4 íbúðum af 14, sem ver-
ið er að byggja skv. samningi
við Húsnæðismálastjórn. Félag-
ið vildi tryggja sér 4 íbúðir hér
gegn því að lána bænum 13 Mkr.
íbúðirnar á að nota fyrir starfs-
menn félagsins meðan þeir eru
að koma sér upp framtíðarhús-
næði, og er hámarks dvalartími
hvers manns í íbúðunum bund-
inn að jafnaði við 6 mánuði.
Samningurinn gildir í fimm ár
og skv. því að hver fjölskylda
má aðeins búa sex mánuði í
íbúð, þýðir það að á hverju ári
koma átta fjölskyldur til bú-
setu á Akranesi og á samnings-
tímanum verða þær 40.
Gamli tíminn — Þessa skemmtilegu mynid tók
Sigurbjörn Guðmundsson upp við Byggðasafn fyr-
ir nokkrum dögum.
Lögreglunni
sagt upp húsnæði
Jórsalaferð Kirkjukórsins
Ferðahópurinn samankominn fyrir framan Omar moskuna svo-
kölluðu í Jerúsalem, 27. desember sl.. — Þórdís Arthúrsdóttir ritar
dagbók frá ísrael, sjá opnu.
Bæjarfógetinn á Akranesi hef
ur auglýst eftir húsnæði til leigu
fyrir lögregluvarðstofu á Akra-
nesi.
I samtali við Björgvin Bjarna
son kom fram að fyrir ári síð-
an sögðu bæjaryfirvöld lögregl-
unni upp húsnæði því sem þeir
eru nú í og átti sú ákvörðun að
taka gildi frá síðustu áramótum.
Akraneskaupstaður á þetta hús-
næði.
Björgvin sagði að þetta væri
mjög óþægilegt fyrir lögregluna
því nýlega væri búið að kosta
mörgum milljónum í að innrétta
fangageymslur sem eru við hlið-
ina á lögregluvarðstofunni, en
ríkið á það húsnæði Þessi breyt-
ing hefði það í för með sér að
ráða þyrfti fangavörð, en eins
og háttar í dag sér lögreglan
um fangageymsluna. Vegna
þessa er um fyrirsjáanlegan
kostnaðarauka að ræða.
Að lokum sagði Björgvin að
lögreglan hefði séð um ýmsa
þjónustu fyrir bæinn, s.s. sjúkra
flutninga og brunaútköll, en nú
mætti búast við að þessari þjón
ustu yrði hætt.
Söluverðlaun
UMBROTS
Söluverðlaun í desember
hlutu Kristín Kristmanns-
dóttir, Grenigrund 9 og Elfur
Sif Sigurðardóttir, Bjarkar-
grund 5.
Þær eru beðnar um að
hafa samband við auglýsinga
stjóra blaðsins, Sigurvin Sig
urjónsson.