Umbrot - 18.01.1978, Síða 5
Skipst á gjöfum. Bæjarstjórinn og Betlehem og sr. Björn. Myndin
er tekin á aðfangadagskvöld í ráðhúsinu í Betlehem.
kynntur sem fiskimennirnir frá Is-
landi. Vakti kórinn mikla athygli og
stóð sig mjög vel. Var söngnum sjón-
varpað til 26 landa, þar á meðal til
Bandaríkjanna um gervihnött. Alls
komu þar fram 11 kórar víðsvegar að
úr heiminum.
Jóladagur
Meðan Islendingar heim á Fróni
voru enn í fasta svefni fór Islendinga-
hópurinn i skoðunarferð um Jerúsal-
emborg utan múra. Borgin skiptist
í tvo hluta, gömlu Jerúsalem, sem
er umgirt múrum frá 16. öld og svo
nýi hluti borgarinnar, sem hefur
byggst upp að mestu á síðastliðnum
30 árum. í Jerúsalem búa 370 þús.
manns, 225 þús. Gyðingar og 115
þús. Arabar.
í skoðunarferðinni var farið upp
á Olíufjallið og í Getsamanegarðinn
sem haldið er að mestu óbreyttum frá
Krists dögum. Einnig var farið til
Betaníu sem er í útjaðri Jerúsalem
og staðnæmst var þar við gröf Lasar-
usar.
Eftir hádegisverð var haldið inn
fyrir múra Jerúsalemborgar og hlýtt
á fyrstu íslensku messuna sem fram
hefur farið í Jerúsalem. Við það tæki
færi gaf séra Björn Jónsson þau
Þóreyju Jónsdóttur og Gilbert M.
Skarphéðinsson saman í hjónaband.
Við þessa hátíðlegu athöfn söng
kórinn sérstaklega fallega.
Um kvöldið voru tónleikar í Þjóð-
leikhúsinu í Jerúsalem, svo kallaðir
Maraþontónleikar, sem stóðu frá kl.
18—23,30. Kirkjukór Akraness tók
þátt i söngnum ásamt þeim kórum,
sem komu fram á Betlehemstorgi á
jólanótt.
Það má með sanni segja að Kirkju-
kór Akraness söng sig inn í hjörtu
áheyrenda, því móttökurnar voru
stórkostlegar. Kórinn söng fyrst 3
íslensk þjóðlög og síðan 3 ísraelsk
þjóðlög. Var krórinn þrívegis klapp-
aður upp og söng 2 aukalög. Var
það eini kórinn sem söng aukalög.
2. dagur jóla (leið 3)
Jerúsalem var kvödd snemma morg-
uns og keyrt í norðurátt, yfir land
sem tilheyrði Jórdaníu fyrir 6 daga
stríðið 1967.
Stoppað var við ána Jórdan og gafst
fólki tækifæri til að fá sér heilagt
vatn til að taka með sér heim.
Sóknarprestur fór þess á leit við
hópinn að hver og einn gæfi nokkra
dropa af vatninu til Akraneskirkju
þannig að á næstunni munu böm
skírð úr heilögu vatni úr ánni Jórdan
eins og Jesús forðum.
Staðnæmst var í borginni Tiberius
við Genesaretvatnið og bauðst hópn-
um að borða þar Pétursfisk, það er
samskonar fiskur og veiddist þar á
dögum Jesú. Bragðaðist fiskurinn
mjög vel.
Frá Geneseratvatni var ekið til
borgarinnar Nazareth en á leiðinni
var keyrt í gegnum borgina Kana,
þar sem Jesú gerði eitt af sínum
fyrstu kraftaverkum, er hann breytti
vatni í vín í brúðkaupsveislu einni.
1 Nazareth hefur verið byggð ný-
tísku kirkja yfir boðunarstað Maríu.
Er það með sérkennilegustu kirkjum
sem ég hef séð. Mosark myndir frá
flestum kristnum löndum heims
prýða veggi kirkjunnar. Allar mynd-
irnar eiga það sameiginlegt, að þær
fjalla um Maríu guðsmóður á ein-
hvern hátt.
Kórinn fékk leyfi til að syngja
í kirkjunni og hljómaði söngurinn
undurfagurlega. Ferðamenn sem
leið áttu um kirkjuna staðnæmdust
og hlustuðu á með aðdáun.
Frá Nazareth var keyrt til Haifa,
stærstu hafnarborgar fsraela og
þaðan til Tel Aviv, var þá klukkan
langt gengin í níu að kvöldi.
27. desember (leið 4)
Þennan dag sem aðra daga, var
farið snemma á fætur og keyrt til
borgarinnar Jericho: „Pálmaborgin"
eins og hún er stundum nefnd, liggur
270 m neðan við sjávarmál. Þar fryst-
ir aldrei og er borgin því vinsæll
vetrardvalarstaður fyrir ferðamenn.
En Jericho er fræg fyrir annað og
þá einna helst fyrir fornar rústir sem
hafa fundist þar og sýna að borg
hefur staðið þama 7 þús. árum fyrir
Krist. Skoðuðum við rústir þessar
Frá Jericho var haldið til Jerúsalem
að nýju og borgin skoðuð innan
múra, þ.e. eldri hlutinn. Fyrst var
komið að Grátmúmum og síðan
gengu Jórsalafarar píslarleiðina „Vía
Dolarcsa" undir leiðsögn séra Bjöms
Jónssonar.
Það verður að viðurkennast að ég
varð fyrir vonbrigðum með Golgata,
ég hafði alltaf séð staðinn fyrir mér
sem klettahæð og þótti mér því und-
arlegt, er ég stóð á marmaragólfi
á annarri hæð í kirkju og vera tjáð
að ég stæði á hæsta stað Golgata, þar
sem krossinn stóð!
Yfir alla merkisstaði i landinu
helga er búið að reisa kirkjur. Þótti
mér sem skrautið og marmarinn
drægju verulega úr raunveruleikablæ
helgistaðanna. Kapella hefur verið
reist yfir gröf Krists. Bjóst ég við
að sjá látlausa gröf, þar sem ríkti
friður og ró, en þegar inn var komið
var þar fyrir munkur að selja mönn-
um kerti og stóð peningakassinn á
hvilustað frelsarans.
Að píslargöngu lokinni var haldið
út á markaðstorg Jerúsalemborgar.
Þar prúttuðu allir af hjartans list og
mátti ekki á milli sjá hvort Islend-
ingarnir eða Arabarnir vom ánægð-
ari með viðskiptin.
28. og 29. desember
Hótelið var kvatt með söng síð-
degis þann 28. des. og flogið í tveim-
ur hópum til Rómar. Þar mætti
okkur samskonar blessun og í Israel,
þ.e. rigning. Andrúmsloftið í Róm
var annað en við höfðum kynnst í
Israel, þar voru ekki vopnaðir verðir
eða hermenn; að vísu er Rómarflug
völlur með eitt lélegasta öryggiseftir-
lit sem um getur.
Inn á Hotel Nord Roma í mið-
borginni var allur hópurinn kominn
um miðnætti.
Ferðirnar í Israel voru ansi erfið-
ar og fólk orðið langþreytt og lasleiki
farinn að gera vart við sig í ferða-
hópnum. Ferðaáætlunin var því tek-
in til gagngerðar endurskoðunar og
ýmsar fyrirhugaðar ferðir felldar út
og fólk fékk rýmri tíma til eigin
þarfa.
Eftir hádegi þann 29. des. var farið
í skoðrmarferð um Róm, en varla
er hægt að snúa sér í hálfhring í
þeirri frægu borg, nema að rekast é
fornar minjar.
30. desember
Hópurinn var vakinn kl. 6 að
morgni keyrt eftir hraðbraut til
Napóli. Borgin er mjög fögur og
stendur á hæðum umhverfis Napoli-
flóa. Þaðan sést til eyjarinnar Caprí.
Sagt er um íbúa Napoli að þeir séu
rólegir, léttlindir og skapgóðir en
afskaplega latir.
Frá Napoli var keyrt til sögufrægu
borgarinnar Pompei, sem grófst í
ösku 79 e.Kr. eftir gos í Vesuvíusi.
Því miður var stansað allt of stutt við
þessar viðfrægu rústir, þvi áfram var
haldið suður með ströndinni til lítils
bæjar sem heitir Sorrento. Ferða-
skrifstofan Sunna hefur þar aðsetur
á sumrin. Keyrt var síðan í einni
striklotu til Rómar og komið þangað
laust fyrir kl. 9 um kvöldið.
Gamlársdagur
Hópnum gafst tækifæri til að
skoða Vatikanið fyrir hádegi en kl.
1 var borðuð síðasta sameiginlega
máltíðin á árinu. Eftir matinn var
skoðunarferð í katakompumar fyrir
þá sem þess óskuðu. Þá brugðu nokkr-
ir úr hópnum sér á fótboltaleik á
gamla ólympíuleikvanginum í Róm.
Klukkan 6 fjölmenntu ferðalangam
ir á þýsk-íslenska messu í Róm. Séra
Bjöm Jónsson flutti íslenska messu,
en þýskur kvenprestur flutti þýska
messu. Kirkjukórinn söng. Að messu
lokinni fór fram altarisganga.
Sönggleði kórfélaga var og er
mjög mikil, en hún náði eflaust
hámarki með kóræfingu á gamlaárs-
kvöld kl. 9,30.
Minna var um skemmtan á gamla
árskvöld heldur en fólk hafði almennt
búist við. Illa gekk að fá inni fyrir
svo stóran hóp, sem þennan og þar
að auki var mjög dýrt inn á alla
skemmtistaði þetta kvöld. T.d. kost-
aði miði fyrir hjón inn á nætur-
klúbb 25 þús. kr. ísl. þannig að víðar
er dýrt en á Islandi.
Hópurinn dvaldi þvi á hótelinu síð
asta kvöld ársins og fagnaði þar
nýja árinu.
Nýársdagur
Allur hópurinn var vakinn með
símahringinu kl. 7 til að vera við
messu hjá páfanum. Það er ekki
oft sem það gerist að fólk vakni
svo snemma á nýársmorgun til að
hlýða á messu.
Messan byrjaði kl. 10, en vegna
mikillar aðsóknar þurfti hópurinn að
mæta ekki síðar en upp úr kl. 8 til
að fá sæti. Kirkjukórinn söng kirkju-
tónlist í hálf tíma áður en messan
byrjaði. Er páfi kom í kirkju ríkti
mikil fagnaðarstemning og líktist
einna helst fjörugum fótboltaleik, þar
sem hæði var klappað og hrópað.
Klukkan 6 á nýársdagskvöld hélt
Kirkjukórinn tónleika í St. Fransesku
Roman kirkjunni. Þetta voru einnig
orgeltónleikar, þar sem ítalskur vin-
ur Hauks Guðlaugssonar lék á orgel.
Aðsókn að tónleikunum var mjög
mikil og var kirkjan þéttsetin og
staðið meðfram öllum bekkjum. Var
kómum afburða vel tekið og klappað-
ur upp í lokin. Voru þetta síðustu
tónleikar kórsins í þessu velheppn-
aða söngferðalagi.
2. og 3. janúar
Islendingamir vom orðnir „búðar-
þyrstir“ þar sem lítill tími hafði
gefist til innkaupa fram að þessu, og
var dagurinn því notaður til inn-
kaupa.
Þann 3. janúar kvaddi Islendinga-
hópurinn Róm og flaug í 2 hópum
til London. 40 manns urðu þar eftir
í 2 daga en hinn flaug áfram heim
til Islands, og voru það þreyttir en
ánægðir ferðalangar, sem komu heim
til Akraness kl. 2 aðfaranótt 4. jan.
1978.
Aðal-
fundur
Aðalfundur Kirkju-
kórs Akraness verður
haldinn í Framsóknar-
húsinu á morgun,
fimmtudag 19. janúar,
kl. 8,30 sd.
5