Umbrot - 18.01.1978, Blaðsíða 10
UMBROT
18. janúar 1978 Verð kr. 120
Fjárveitingar ríkisins
fyrir árið 1978
Fjárveitingar á fjárlögum rík
isins til Akraness árið 1978
eru þessar: þús. kr.
Barnaskóli, kyndist. og lóð 5.000
Barnaskóli, nýr 3.000
Iþróttahús 6.000
íþróttahús, íþróttasj. 100
Iþróttavöllur, endurgr. 248
íþr.v. hlaupabr. endurgr. 3.491
Bjarnalaug, endurgr. 860
Sjúkrahús 45.000
Akraneshöfn 100.000
Sjóvarnargarður 1.000
Nýtt skip bættist í flota Ak-
urnesinga fyrir tæpum hálfum
mánuði, en þá kom Bjarni Ólafs
son AK-70 í fyrsta skipti til
heimahafnar. Skipið er í eigu
Runólfs Hallfreðssonar útgerð-
armanns og skipstjóra og verð-
ur hann sjálfur skipstjóri, 1.
stýrimaður er Jóhann Kísel og
1. vélstjóri Þráinn Sigurðsson.
Bjarni Ólafsson er 556 tonna
stálskip, 54 metra langt og tæp
ir 10 metrar á breidd þar sem
skipið er breiðast. Það er út-
búið til nóta- og togveiða.
Skipið fer nú á loðnuveiðar en
í sumar er reiknað með að fara
á kolmunnaveiðar með flottroll.
Skrokkur skipsins var smíð-
Ólafur Ásgeirsson, skólameist
ari Fjölbrautaskólans, hefur
ritað bæjaryfirvöldum bréf, þar
sem hann tilkynnir að Fjöl-
brautaskólinn muni ekki geta
hýst 7. bekk grunnskólans næsta
vetur.
Eins og nú háttar er 7.—9.
bekkur Grunnskólans til húsa
í Fjölbrautaskólanum. Er fyrir-
sjáanlegt að fjölgun í Fjöl-
brautaskólanum verður það mik
il strax næsta haust, að ekki
verður rúm fyrir 7. bekk.
Þá má geta þess að Ólafur
Ásgeirsson er ráðinn skólameist
ari Fjölbrautaskólans, en ekki
Grunnskólans og samkv. því
mun Njáll Guðmundsson vera
skólastjóri Grunnskólans, þ.e.
1.—9. bekk.
I samtali við Njál kom fram
Iðnskóli, endurgr. 2.000
Leikskóli 13.000
Fjölbrautask., stofnkostn. 9.758
189.457
Fjárveitingar árið 1977 voru
samtals 137,194 Mkr. og er
þetta 38,1% hækkun milli ára.
Þess má geta að á fjárlögum
er launakostnaður fjölbrauta-
skóla áætlaður 66,921 Mkr.
aður í Karlstad í Svíðþjóð en
innréttingar eru unnar hjá Ör-
skoves Værft í Danmörku. Smíði
skipsins hófst í apríl sl. Kaup-
verðið er 16 milljónir sænskra
króna eða um 730 milljónir ís-
lenskra króna en sænska skipa-
smíðastöðin tók Bjarna Ólafs-
son eldri upp í kaupin og var
hann metinn á um 270 milljónir
íslenskra króna.
Nýja skipið reyndist mjög vel
á heimleiðinni en það hreppti hið
versta veður. Ganghraði þess
var 14 mílur í reynslusiglingu.
Það er búið öllum þeim fullkomn
asta tækjabúnaði sem þekkist
og í því er kæliklefi, sem tekur
30 tonn.
að til að leysa þetta vandamál
með 7. bekk, væri fyrirhugað
að kaupa hreyfanlegar stofur,
sem yrðu settar niður á Barna-
skólalóðinni. Skólastjóri og yfir-
kennari hefðu talið að fá þyrfti
minnst 3 slíkar stofur, en bæjar
yfirvöld hafa ekki tekið ákvörð-
un ennþá.
Njáll sagði að þetta væri
bráðabirgðalausn, en um þessar
mundir er verið að ljúka við
teikningu nýs Barnaskóla, sem
staðsettur verður á Garðagrund
og í vor er fyrirhugað að byrja
á 1. áfanga þessa skóla.
Að lokum sagði Njáll, að
hvorki fræðslu- né bæjaryfir-
völd hefðu sent sér skriflegar
upplýsingar um þessar fyrirhug
uðu breytingar.
Óvissa
með
Öldunga-
deildina
I desemberblaði Umbrots var
auglýsing frá fjölbrautaskólan-
um um stofnun Öldungadeildar
við skólann. Haldinn var kynn-
ingarfundur 14. des og þar létu
43 skrá sig til væntanlegs náms.
I samtali við Ólaf Ásgeirsson
skólameistara kom fram að
þetta mál er nú til afgreiðslu
hjá fjármálaráðuneytinu. Tals-
verður áhugi virtist vera fyrir
stofnun deildarinnar á fundinum
sem haldinn var í desember, og
var stefnt að því að byrja nú
eftir áramót, en eins og sakir
standa er allt óvíst um þáð
hvort hægt verður að byrja fyrr
en í haust.
Ólafur sagði að inntökuskil-
yrði í öldungadeildina væri 21
árs aldur.
Eftir því sem Umbrot hefur
frétt hefur verið tekið vel í þetta
mál hjá menntamálaráðuneyt-
inu, en eins og áður segir er
það fjármálaráðuneytið sem
fjallar nú um málið.
Hætti við
að hætta
Þorvaldur Þorvaldsson sem
verið hefur fræðslufulltrúi á
Akranesi hafði sagt starfi sínu
lausu frá 1. janúar sl. Nú mun
Þorvaldur hafa verið endurráð-
inn til bráðabirgða og er hann
því hættur við að hætta, a.m.k.
í bili.
Nú fyrir jólin var hin árlega
umferðagetraun Umferðarráðs,
„1 jólaumferðinni“ lögð fyrir
nemendur Barnaskóla Akraness.
Alls bárust 430 úrlausnir á Lög-
reglustöðina á Akranesi. Af
þeim reyndust 278 réttar. Úr
þeim voru síðan dregnir 14
bókavinningar, 7 úr fl. stúlkna
og 7 úr drengjafl.
Eftirtalin börn höfðu heppn-
ina með sér að þessu sinni:
Elfur Sig Sigurðardóttir,
Bjárkargrund 5
Ágústa Friðriksdóttir,
Vesturgötu 3
Hildigunnur Guðmundsdóttir,
Furugrund 24
Emilía P. Jóhannsdóttir,
Esjubraut 8
Anna Júlía Þorgeirsdóttir,
Bjarkargrund 39
Hulda Gestsdóttir,
Háteigi 6
Sylvía Rós Helgadóttir,
Skólabraut 10
Sigurður Bjarni Jónsson,
Garðabraut 13
Ársæll Jóhannsson,
Vesturgötu 59
Sveinbjörn Reyr Hjaltason,
Furugrund 17
Nýársbarn
Fyrsta barnið, sem fæddist á
Sjúkrahúsi Akraness á þessu
ári, var stúlka. Hún fæddist
5. janúar kl. 17,49 og vó 4410
grömm og var 56 cm á lengd.
Foreldrar eru Sigurlín Gunn-
arsdóttir og Eiríkur Jónsson,
Arnarholti 3, Akranesi. Þetta er
annað barn foreldra.
Síðasta barnið sem fæddist
hér á árinu var drengur. Hann
fæddist 28. desember kl. 11,02
og vó 3470 gr. og var 55,5 cm á
lengd. Foreldrar eru Elín Árna
dóttir Suðurgötu 16, Akranesi
og Kjartan Kjartansson.
164 fæðingar voru á Sjúkra-
húsi Akraness árið 1977. Er það
mikil fækkun frá því árið áður,
en þá voru 225 fæðingar.
Sigurbjörn tók meðf. mynd
af nýársbarninu og móðurinni,
Sigurlín Gunnarsdóttur, 7. jan.
sl.
Gísli Eyleifsson,
Stekkjarholti 17
Karvel L. Hinriksson,
Hjarðarholti 17
Kristján Þór Guðmundsson,
Sandabraut 16
Sigurdór Bragason,
Bjarkargrund 46
Á aðfangadag jóla sl. heim-
sótti Brandur Fróði Einarsson,
lögregluvarðstjóri, ofanrituð
börn, og afhenti bækurnar við
fögnuð viðtakenda. Bækurnar
eru gefnar af Bæjarsjóði Akra-
neskaupstaðar.
Bifreiö fyrir
slökkviliöið
Gengið hefur verið frá kaup-
um á bifreið fyrir slökkviliðið.
Hér er um að ræða nokkuð
stóra sendibifreið til að aka
slökkviliðsmönnum svo og laus-
um tækjum, s.s. vatnsdælum, á
brunastað.
Verð bifreiðarinnar óinnrétt-
aðrar er áætlað 3,3 Mkr. en
verð hennar tilbúinnar er áætl-
að 4,5Mkr.
Nýtt skip í flotann:
Bjami Ólafsson AK-70
7. bekk grunnskól-
ans úthýst
„1 jólaumferöinni”