Umbrot - 15.03.1978, Side 9
Karl Benediktsson:
„Hafa skal það,
sem sannara reynist...”
I grein minni í Umbroti 15. febrúar
s.l., sagði ég að fargjöld með Akra-
borg væru kr. 1.200,- á milli Akraness
og Rvíkur, það var ekki rétt, þau voru
kr. 1.300,- og bið ég viðkomandi aðila
afsökunar, sem stafa af því, að aug-
lýsing hefur farið framhjá mér, ef
komið hefur, þó flestum hafi fundist
nóg komið. Reyndar hefur kvissast
að ekki muni vera langt í frekari
hækkun, það kemur í ljós ef satt
reynist. Það virðist sem engin tak-
mörk séu fyrir hvað hægt er að bjóða
fólki og gengið á það lagið, að borgað
sé orðalaust.
Mig langar til, í leiðinni, úr því að
mér urðu á þessi mistök, að koma
aðeins inná fargjöld ellilífeyrisþega
og öryrkja. Fá þeir ekki afslátt af
fargjaldi eins og víðast tíðkast? þar
á meöal með ms. Herjólfi, sem svo
oft er vitnað í, en þar er elli- og
öryrkjaþegum veittur helmings af-
sláttur af fargjaldi ofan á mikið lægra
Starf innan Skagaleikflokks-
ins hefur verið mjög öflugt í
vetur og urffu sýningar á „Höf-
uðbólið og hjáleigan“ alls tólf,
og eru þá meðtaldar sýningar
utaln bæjarins. Svo hægt sé að
gera sér grein fyrir þeim mikla
kostnaði sem verður við svið-
setningu leikverks, má upplýsa
það til fróðleiks, að í dag er út-
lagður kostnaður vegna þessa
íslenska verks 2,1 Mkr.
Sl. haust barst félaginu boð
frá Helsingfors í Finnlandi um
að koma og sýna gestaleik þar.
Nú í janúar barst eiinnig tilboð
til Skagaleikflokksins frá Næst
ved í Danmörku og var því boði
tekið, þar sem það var á allan
hátt hagstæðara. Farið verður
með Höfuðbólið og hjáleiguna
og það sýnt á hátíð í bænum
Næstved sem haldin verður 2.-
5. júní nk. Æfingar eru hafnar á
ný og hafa verið skipulagðar
sýningar víða úti á landi í mars
og apríl, en sýningar verða hér
í Bíóhöllinni laugardaginn 25.
mars kl. 20 og 22,10.
22. apríl verður sett upp vor-
hátíð hjá Skagaleikflokknum.
Þar munu koma fram skemmti-
kraftar og æfingar eru hafnar
á stuttum einþáttungum og ef
vel tekst til verður mynduð úr
þessu skemmtidagskrá til al-
memnra sýninga.
Þá má geta þess að hafin
er undirbúningur að veglegu
blaði fyrir bæjarbúa, sem koma
mun út á þessu ári. Þar verður
kynnt starf leikflokksins, kynn
ing á leiklist, auk greina frá leik
listarfrömuðum.
Námskeið er nú í gangi á veg
um félagsins og er það fyrir
nemendur Fjölbrautaskólans.
Einnig komu förðunarmeistarar
fargjald en með Akraborg. Strætis-
vagnar veita þennan afslátt og flug-
félög í innanlandsflugi. En hvernig
er þessu háttað hjá Skallagrími hf. ?
— Því er fljót svarað. Þessir aðilar
borga eins og aðrir, sem ekki eru á
fríu fari eða aðrir borga fyrir ef
þeir ætla að fara með. £>ess vegna
vil ég spyrja, er ekkert sem heitir
sómatilfinning til, hjá þeim sem þess-
um málum ráða. Skildi fara um þá
einhver sælukennd, að sitja við hlið-
ina á þessu fólki sem hefur kannske
látið sinn síðasta eyri, til að leita
læknis eða heimsækja ættingja. Þetta
fólk er ekki á neinu óþarfa flakki.
Ætli þeim þætti ekki naumur farar-
eyrir sem þetta fólk hefur milli hand-
anna, sem er í mörgum tilfellum
ekki annað en, ellilífeyrir eða ör-
orkubætur, en ferðast sjálfir á fríu
fari, ofan á kannski góð laun?
Þetta sem hér hefur verið vikið að,
sannar kannske best, hvað þarf að
frá Þjóðleikhúsinu sl. haust og
leiðbeindu í förðim.
Grundvöllur þess hve starfið
vex og er að verða fjölbreytt-
ara er sú aðstaða sem félagið
hefur í kjallara Iþróttahússins
og má segja að það aðsetur
ráði mestu um leikstarfið, þar
sem á sl. árum hefur orðið mikil
auknilng á eigum og tækjum.
ganga langt, þegar jafnvel gamal-
menni og öryrkjar fá ekki notið sömu
kjara og veitt eru víða annarsstaðar,
eins og bent hefur verið á hér að
framan, þrátt fyrir, í kringum 100
þúsund króna stvrk frá ríkinu á dag
sem duga ekki til að halda þessari
útgerð á floti.
Af gefnu tilefni ætla ég að koma
aðeins inn á gjaldskrá hafnarinnar,
það virðist fara í taugarnar á sumum
mönnum að ég hef verið að ræða þau
mál sem hafa snúið að vöruflutningum
með Akraborg sem ekki hafa verið
tekin vörugjöld af og rökstutt það
með svo mikilli samgöngubót.
Ég skal ekki gera lítið úr því, enda
dýru verði keypt, og er fordæmt af
öllum sem hugsa eitthvað um hag
hafnarinnar. Þann 17. febr. sl. kom
nafnarverkstjóri niður að höfn á
verkstjórabílnum nýkomnum úr 560
þúsund króna viðgerð og nú úr
Reykjavík. Erindið var að sýna mér
blað með breytingu á gjaldskrá hafn-
arinnar, þess efnis, að ekki skuli
taka gjöld af vörum eða bílum sem
flutt eru með ferjuskipum, undirritað
af einum af alþingismönnum okkar og
ráðherra Halldóri E. Sigurðssyni, þá
vitum við það, ekki þýðir að deila við
dómarann. Ég vil þakka verkstjóran-
um fyrir þá hugulsemi að sína mér
þennan boðskap, sem sýnir hvaða
brögðum er hægt að beita við Akur-
nesinga fyrir þá sök að vörur eru
fluttar hér í gegn vestur og norður
um land vegna legu staðarins. Um
þessa breytingu vissi ég ekki, og
hefði ekki trúað að yrði til í þeirri
mynd sem raun ber vitni. Af því til-
efni ætla ég að sýna með einföldu
dæmi, ef það gæti gefið bæjarbúum
litla mynd af hvernig þessi boðskapur
virkar. Nú fyrir stuttu var viðtal við
sveitastjóra Þorlákshafnar, þar sem
meðal annars kom fram að vöruflutn-
ingar, á bílum að mestu, með ms.
Herjólfi sennilega mest fyrir Vest-
mannaeyinga um 7000 tonn. Ef við
segðum að Akraborg flytti sama magn
en hún fer í kringum 700 fleiri ferðir
á ári en Herjólfur, hann getur ekki
farið nema eina ferð á dag vegna
vegalengdar sem er yfir 80 sjómílur
fram og til baka en eins og kunnugt
er, fer Akraborg þrjár ferðir á dag
og fjórar á sumrin. Vörugjöld eru á
bilinu 210-1230 kr. fyrir 1000 kg. Ef
við reiknum með að 4000 tonn væru
í 445 króna flokki, þá er vörugjald kr.
1.780.000,00 og 3000 tonn í 210 króna
ílokki eru 630.000,00 kr. á þessu myndi
höfnin tapa kr. 2.410.000,00.
Nú um síðustu mánaðarmót var talað
um að Háifoss kæmi hingað með járn
í Grundartanga. Háifoss kom ekki, en
járnið kom með Akraborg, rúm 70
tonn, vörugjald af þessari vöru er
445 krónur á tonn svo að höfnin hefði
átt að fá kr. 31.150,00 og ef skipið
hefði komið kr. 56.970 til viðbótar. Þar
missir höfnin kr. 88.120,00 af þessu
eina skipi, þetta er ekkert einsdæmi,
því miður. Þess vegna finnst mér það
koma .úr hörðustu átt, þegar einn áf
starfsmönnum bæjarins, og það verk-
stjóri hafnarinnar, getur varla leynt
ánægju sinni yfir að geta sýnt mér
þennan boðskap sem ég vil endur-
taka þakklæti mitt fyrir, því annars
hefðu þessar línur aldrei orðið til, þó
mér finnist það varla sæma manni
sem er verkstjóri þess fyrirtækis sem
stendur í hundraða milljóna króna
framkvæmdum og trúlega veitir ekki
£>f að fá þær tekjur sem hún á með
réítu að fá samkvæmt gjaldskrá, en
veifa þess í stað plaggi sem flytur
þann boðskap að skerða tekjur hafn-
arinnar eins og bent hefur verið á,
sem lenda hjá heildsölum og kaup-
félögum vestur og norður um allt
land og öðrum, sem með skipinu
flytja og erlendir aðilar komnir inn
í dæmið, þá hefði ég haldið að mæl-
irinn væri fullur. Eða hvað finnst
ykkur Akurnesingar sem viljið veg
og viðgang bæjarfélags okkar sem
bestan ?
í mars 1978,
Karl Benediktsson.
Látið dmuminn rætast...
NJÓTIÐ LÍFSINS
í FERÐ MEÐ SUNNU
Nú býður Sunna upp á dagflug til allra eftirsóttustu
sólarlandanna. Hvergi fjölbreyttara ferðaval.
SPANN MALLORCA - COSTA DEL SOL - COSTA BRAVA -
KANARÍEYJAR
ÍTALÍA SORRENTO - KAPRÍ - RÓM
GRIKKLAND aþenustrendur - eyjarnar rhodos
OG KORFÚ - SKEMMTIFERÐASKIP
PORTÚGAL ESTORIL - LISSABON
Skrifstofur Sunnu á öllum dvalarstöðum með þjálfuðu íslensku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Barnagæsla og leikskóli með íslenskum fóstrum.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Dagflug með rúmgóðum þotum.
SVNNA
BANKASTRÆTI 10. SÍMAR 16400 - 12070 - 25060 - 29322
U'mboðsmaður á Akraaresi: Sveinn Guðmundsson
Skagaleikflokkurinn:
Sýnir í Danmörku
9