Umbrot - 21.11.1978, Blaðsíða 1
8. tbl. Þriðjudagur 21. nóvernber 1978 5. árgangur
GARÐASKÓLIs
SAMÞYKKT AÐ FULLVINNA ÁFANGA A
Á fundi bæjarstjórnar Akraness
hinn 12. sept. 1978 var sam ykkt að
láta fullvinna áfanga A samkvæmt
frumdráttum að Garðaskóla og að
hann skyldi verða 1. byggingar-
áfangi skólans. Þar með var
byggingarnefnd skólans falið að
leita samþykkis Menntamálaráðu-
neytisins um byggingu þess áfanga.
Áfangi A er stærsti áfangi
væntanlegrar skólabyggingar, er
rísa mun vestan Grundahverfisins
og ofan íþróttavallar. Stærð hans er
um 1150 m2 að grunnfleti og tvær
hæðir. Á 1. hæð er ráðgert að koma
fyrir hand-, mynd-, hús- og tón-
mennt auk forskóla og aðstöðu
fyrir kennara og stjórnun.
Á 2. hæð eru 10 kennslustofur
auk hópherbergja og ,,innigötu“
sem ætluð er til afnota fyrir
nemendur í frímínútum svo og til
hvers kyns tómstunda- og félags-
starfsemi í skólanum.
Teikningar af þessum áfanga eru
nú til afgreiðslu í Menntamálaráðu-
neytinu og er þess að vænta að
endanleg umsögn berist nú næstu
daga.
Vetur konungur gengin í garð. (Ljósm.: Sigurbj.)
Á sl. ári var veitt byrjunarfé á
fjárlögum og fjárhagsáætlun til
þess að vinna að teikningum og er
þess að vænta að á fjarlögum næsta
árs verði veitt fé til beinna
framkvæmda. Jafnhliða yrði þá
gerður samningur milli aðila til 4
ára um framkvæmdir og fjár-
mögnun og við það miðað að nægar
fjárveitingar yrðu til þess að ljúka
verkinu á því tímabili.
Ef tilskilin leyfi fást og fé til
framkvæmda, er við það miðað að
bjóða verkið út og hefja
framkvæmdir að vori.
Fundur
um hitaveitumál
Mánudaginn 13. nóv. boðaði
bæjarstjóri og bæjarráð til
fundar með þeim íbúum Akra-
ness sem fá eiga hitaveitu inn-
an skamms. Vel var mætt á
fundinum og málin rædd vítt og
breitt. Það kom fram að verð-
lag á vatninu er áætlað 294 kr.
pr.m3, sem er 85% af upphit,-
unarkostnaði með olíu.
Fyrir stuttu fengu áður-
nefndir íbúar bréf frá bæjar-
stjóra þar sem skýrt er frá að
Landsbanki fslands veiti lán
sem nemur % hlutum af heim-
æðargjaldi, með þrenns konar
kjörum:
Skuldabréf til eins árs, vextir
nú 26% - Skuldabréf til tveggja
ára, vextir nú 29,5% - Skulda-
bréf til þriggja ára, vextir nú
33%. I bréfinu var þass farið
á leit að umsóknir um heimtaug
ar í húsin yrðu staðfestar með
því að ganga frá greiðslu á
heimtaugagjaldi fyrir 15. nóv.
sl., en hægt væri að fá greiðslu-
frest til 15. febr. 1979 á helm-
ingi þess gjalds, er fyrirgreiðsla
bankans nær ekki til.
I samtali við bæjarstjórann
kom fram að þeir sem ekki
myndu taka inn hitaveitu núna
yrðu þá væntanlega að bíða þar
til aðveita verður lögð til bæj-
arins.
Ekki er enn ljóst hvenær
vatni verður hleypt á veituna,
m.a. vegna þess að nokkur
dráttur hefur orðið erlendis á
afgreiðslu á efni til hennar.
Að lokum skal þess getið að
viðskiptaráðuneytið hefur stað-
fest að þeir aðilar, sem eiga
hús er tengd verða olíukyndi-
stöðinni, og rétt eiga til olíu-
styrks, skuli hljóta olíustyrk
áfram, samkv. reglum og ákvæð
um þar um.
IJTBOÐ
á málningu í Leikskóla við
Skarðsbraut.
Eftirtalin tilboð bárust:
Málningarþjónustan hf.
kr. 2.600.758.
Ríkharður Jónsson sf.
kr. 2.600.758.
Hallur og Sveinn sf.
kr. 2.600.758.
Málningarverk sf.
kr. 1.943.000.
Þá gerði Málningarverk sf. til-
boð í efni í dúkalögn
kr. 1.062.000.
Samþykkt að taka tilboði
Málningarverks sf. í málning-
una.
á tréverki og innihurðum í
Leikskóla við Skarðsbraut.
Eitt tilboð barst, frá Guðmundi
Samúelssyni og hljóðaði upp á
kr. 13.164.000,00.