Umbrot - 21.11.1978, Side 2
ÍJMBROT
Útgefandi: UMBROT sf.
Blaðstjórn og ábyrgðarmenn:
Indriði Valdimarsson, ritstj. og Sigurvin Sigurjónsson
augl.stj.
Auglýsingasimir 1127 — Pósthólf 110.
Gíróreikn. nr. 22110-4 — Veró kr. 150
Setning og prentun: Prentverk Akraness hf.
I........... 1—
Notum endurskinsmerki
Umbrot vill vekja sérstaka athygliá því að á næstu kvöldum mun
Björgunarsveit Slysavarnadeildanna á Akranesi bjóða til kaups
endurskinsmerki og Ijósabúnað á reiðhjól. Það er full ástæða til að
hvetja fólk til að nota slík merki, sérstaklega nú þegar myrkasti
árstíminn er, því oft er nær ógerningur fyrir ökumenn að sjá
gangandi vegfarendur ef þeir eru t.d. í dökkum fatnaði. Mörg slysin
hafa einmitt orðið til vegna þessa og því er nauðsynlegt að þú,
vegfarandi góður, gerir þér grein fyrir að eitt endurskinsmerki getur
bjargað lífi þínu.
Sem betur fer hefur á undanförnum árum aukist notkun þessara
merkja, sérstaklega hjá börnum og mörg félög hafa gefið endur-
skinsmerki í skólana, sem þeir hafa síðan afhent nemendunum.
En þetta er ekki nægjanlegt. Fullorðna fólkið þarf ekki síður á
endurskinsmerkjum að halda. Oft hefur það heyrst hjá eldra fólkinu
að það telji enga þörf á því að nota slíkt, og sumir hreint og beint
skammast sín fyrir að bera merten og halda jafnvel að það verði gert
grín að þeim. Þessu hugarfari þarf að breyta og hvetur blaðið hér
með alla Akurnesinga, unga sem aldna, að nota endurskinsmerki og
reyna þannig að koma í veg fyrir slys, því hver vill að hann, eða
nánustu ættingjar lendi í slysi, sem hefði verið hægt að forða ef
endurskinsmerki hefði verið notað?
Þá er ekki síður ástæða til að hvetja hestamenn til að nota merki á
hestana, því ófá slysin hafa orðið vegna þess að ökumenn hafa alls
ekki séð hestana fyrr en of seint.
Umbrot vill að lokum gera orð Umferða'rnefndar Akraness að
sínum, en þau eru:„ ENDURSKINSMERKI ERU NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA.“
Skýrsla tœknideildar
Þá liggur fyrir skýrsla tæknideildar vegna verklegra fram-
kvæmda. Það er mjög ánægjulegt að tæknideildin skuli hafa orðið
við ósk blaðsins, og væri æskilegt að slíkar skýrslur bærust, án þess
að blaðið þurfi að „krefjast" þess að tæknideildin geri grein fyrir
störfum sínum.
Það er ekkert skrýtið að þetta uppátæki blaðsins, að fara að ræða
um mistök, skuli fara svolítið í taugarnar á tæknifræðingi, en ritstjóri
Umbrtos vill upplýsa, að heimildamenn blaðsins um umrædd mál,
voru margir, enda mikið rædd í bænum, hvort sem tæknideild hefur
heyrt þess getið eða ekki.
Vegna þessa sá blaðið sér ekki annað fært en ræða þessi mál á
opinberum vettvangi og gefa þannig tæknideildinni tækifæri til að
bera þessar ásakanir af sér.
Blaðið ætlar engan dóm að leggja á umrædda skýrslu, en það
stendur öllum opið til umræðu um þessi mál sem og önnur.
í lok greinar tæknifræðings kemur fram, að „tæknideild bæjarins
sé reiðubúin til að láta ritstjóra Umbrots í té allar upplýsingar um
framkvæmdir á vegum bæjarins, ef svo illa vildi til að heimildamaður
hans forfallaðist."
Svo illa vill til að „heimildamaðurinn" hefur forfallast, og því óskar
ritstjórann eftir því að tæknideildin láti honum í té allar upplýsingar
varðandi mistökin á íþróttavellinum, en það er einmitt sá punktur
sem einhverra hluta vegna hefur fallið niður úr skýrslunni, þó svo
minnst hafi verið á hann í hinni „mjög uppbyggilegu ritstjórnargrein."
| Vantar |
í laghenta menn 1
| i skamman tíma j
! <m. \
| ^ÉIningartijönustan hf. j
) Stillholfi 14 - Akranesi - Sími (93) 1740 ;
S
S
S
S
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
S
s
l
s
s
s
í
5
1
)
\
Nýtt Nýtt
Málningarvinna
Tökum að okkur alhliða málningar-
vinnu úti sem inni
Leiðbeinum með litaval
Gerum verðtilboð ef óskað er
Greiðsluskilmálar eftir samkomulagi
Upplýsingar hjá Gler og Málning, sími
1354 og hjá Aðalsteini Aðalsteinssyni,
sími 1397
MÁLNINGARVERK sf.
Akranesi
Akraneskaupstaður
Eftirstöðvar
útsvara 1978
Gjalddagar útsvara og aðstöðugjalda
eru: 1. okt., 1. nóv. og 1. des.
TIL ATHUGUNAR:
Vangreiðsla á hluta gjalda, veldur því að öll gjöld
á gjaldárinu falla í eindaga 15 dögum eftir gjald-
dagann, 15. næsta mánaðar eftir að álagningu er
lokið, og eru þá lögtakskræf. Sé skuld gjaldfallin
skv. ofangreindum reghun, er hún öll tilgreind I
gjalddaga 1. ágúst.
Þegar bæjarsjóður Akraness krefst, er kaupgreið-
anda skylt að halda eftir af kaupi starfsmanna fjár-
hæð, sem nægir til greiðslu útsvars, sbr. lög nr.
8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga.
3% dráttarvextir verða reiknaðir á öll vanskil skv.
lögum. Ársvextir verða því 36% og verður þeim bætt
við skuld gjaldandans.
Bæjarskrifstofan er opin mánudaga-föstu-
daga kl. 9,30—12 og 12,30—15,30
INNHEIMTUSTJÓRI
Hr'aatin hp Hilaleiqa
Dalbraut 15 - Akranesi - Símar 2157 og 2357
Ford Coríánur
Ford Escort
Ford JBronco
2