Umbrot - 21.11.1978, Qupperneq 3
Reynir Kristinsson:
Skýrsla tæknideildar
vegna verklegra framkvæmda
í síöasta blaði Umbrots, var í mjög
uppbyggilegri ritstjórnargrein,
gerö úttekt a verklegum
framkvæmdum á vegum bæjarins
og verkefnum tæknideildar.
í ofannefndri ritstjórnargrein er
þess „krafist“ að tæknideildin geri
grein fyrir störfum sinum.
Ég vil hér veröa viö þessari
kurteislegu ósk ritstjórans og vil
um leið Iýsa ánægju minni meö
áhuga biaðsins á verkum okkar og
sameiginlegum hagsmunum á
skynsamlegum rekstri bæjar-
félagsins og velferð þess.
I byrjun hvers árs, ákveður bæjar-
stjórn í fjárhagsáætlun, hve stór
hluti þess fjármagns, er við öll
greiðum til reksturs bæjarfélagsins
renni til verklegra framkvæmda og
að hvaða verkefnum skuli unnið í
því sambandi.
Þegar fjárhagsáætlun liggur fyrir,
útbýr tæknideildin verkáætlun
fyrir viðkomandi fjárhagsár og er
verkum þá raðað á flokkstjóra og
verkin tímasett, þannig að þau
komi í sem réttastri röð, hvað
varðar önnur verk, sem eru tengd
t.d. tengsl Skarðsbrautar við
lagningu olíumalar Þjóðveginn
og einnig með tilliti til árstíða.
Reynt er að raða verkum á allt
fjárhagsárið, því tekjur bæjarsjóðs
dreifast yfir árið og rett hefur þótt
að veita föstum starfsmönnum
vinnu allt árið.
Út frá verkáætlun er síðan ákveðið
hversu mörgum starfsmönnum
þurfi að bæta við yfir sumartímann
og efnispantanir eru gerðar svo og
endanleg hönnun verkanna.
Það, sem helst setur gerða verk-
áætlun úr böndunum eru ýmis
ófyrirsjáanleg verk, sem bæjar-
stjórn samþykkir og vinna verður,
með þeim mannafla og tækjakosti,
sem þegar er ráðstafað.
Ofanrituðu er ætlað að skýra það,
hvers vegna sum verk eru unnin
seinna en önnur, en öllu ekki lokið
af á einum mánuði.
Við gerð síðustu fjárhagsáætlunar
voru samþykktar eftirfarandi
framkvæmdir:
Nýjargötur (malargötur)
Garðagrund 540 m
Einigrund 520 m
Espigrund 110 m
Víkurbraut 110m
Höfðasel 150 m
Æðaroddi 210 m
8100 m2
3520 m2
990 m2
1045 m2
1800 m2
2100 m2
1440 m 17555 m2
Víðigrund, frágangur.
Síðar lagfæringar á neðri hluta
Háholts.
Varanlegt slitlag.
Kalmansbraut 405 m 4085 m2
Háholt 97 m 730 m2
Krókatún 81 m 850 m2
Skarðsbraut 318 m 2226 m2
og síðar Innnesvegur210 m!371 m2
1111 m 9262 m2
Holræsi og vatn.
Viðigrund
Garðagrund
Einigrund
Espigrund
Aðalvatnsæð í Höfðasel
Skarðsbraut
Meðfram Þjóðvegi
Síðar samþykkt:Holræsi og vatn að
miðbæjarsvæði.
Auk viðhalds vatnsveitu og
holræsakerfa, eru framkvæmdir
við ræktunarmál, sem hér eru
ótalin.
Að ofannefndum verkum hafa aðal-
lega starfað tveir vinnuflokkar.
Varðandi einstakar framkvæmdir.
Kalmansbraut.
Árið 1977 var unnið að jarðvegs-
skiptum við Kalmansbraut og lagt í
hana nauðsynlegt holræsi þ.e. ný
lögn var lögð í vestri hluta
götunnar, en í eystri hluta hennar
voru niðurföll tengd inn á ca. 15
ára gamla lögn er þar lá, nokkuð
grunnt. Lögnin var fremur léleg,
en gat þó annað því að flytja regn-
vatn af götunni i a.m.k. nokkur ár
og þar sem hún lá utan við
væntanlegt slitlag, þá var hún Iatin
halda sér.
Árið 1977 og 1978 var unnið að
deiliskipulagi framtíðarmiðbæj ar-
svæðis. Skipulag þetta var langt
komið um það bil er hefja átti
framkvæmdir við Kalmansbraut.
Samhliða skipulagningu
framkvæmda við Kalmansbraut
var gerð úttekt á öllu lagnakerfi
umhverfis hinn væntanlega miðbæ,
sem þá var ekki sam ykktur og
haldinn var sérstakur fundur með
verzlunarmönnum til að ræða ýmis
mál, varðandi skipulag
miðbæjarins og þar á meðal
nauðsyn þess að hafa kjallara.
Nauðsynlegt þykir að hafa vöru-
geymslu í kjallara.
Að fengnum þessum upplysingum
svo og upplýsingum um vatnsþörf á
svæðinu, var einsýnt að lagnakerfi
umhverfis svæðið gat ekki uppfyllt
settar kröfur.
Lagði ég þá til við bæjarráð að
heimilað yrði að gera viðhlítandi
ráðstafanir svo hægt yrði að
uppfylla þessar kröfur, og gat ég
þess þá, að ekki væri ráðlegt, að
grafa svo djúpa og erfiða lögn
meðfram Kalmansbraut, eftir að
hún væri steypt, vegna hættu á
missigi. Féllst bæjarráð á þessa
beiðni mina 29. júni sl. og var þá
gamla lögnin endurnýjuð með
nýrri víðari og dýpri lögn, sem
þjóna mun framtíðar miðbæjar-
svæði og sem regnvatnslögn fyrir
Kalmansbraut.
Samtímis holræsalagningunni var
lögð 6“ vatnslögn inn á sama svséði.
Af þessu vona eg að ljóst sé að
þarna var ekki verið að rífa upp
verk fyrra árs, heldur var verið að
taka tillit til framtiðarinnar, og
reyna að forðast það að stórkost-
legar skemmdir yrðu á Kalmans-
braut, þegar byggingafram-
kvæmdir á miðbæjarsvæðinu kalla
á lagnir að því. Þessi framkvæmd
tafði að vonum lítillega fyrir vinnu
við steypu á Kalmansbraut, en
sparar aftur á móti dýrar endur-
bætur eftir örfá ár. Ef skipulags-
vinna við maðbæjarsvæðið hefði
verið lengra komin, hefði verið
hægt að gera viðeigandi ráðstafanir
fyrr, en verkið var hið sama.
Háholt.
Þegar kom að vinnu við Háholt, var
gatan sett í hæð samkvæmt
teikningum frá okkar hönnunar-
aðila. Langsnið götunnar og
tenging við fyrri framkvæmdir var
fullkomlega samkvæmt viður-
kenndum hönnunaraðferðum.
Alltaf má deila um hæð gatna og
getur oft orðið æði erfitt að aðlaga
hæð þeirra lóðahæðum í eldri
íbúðarhverfum, því einnig þarf að
sjá svo um að nægilegur vatnshalli
fáist. Af þessu getur leitt að
einhverjar lóðir verði lægri en
endanleg götuhæð. í umræddu til-
'felli var þess farið á leit við okkur
þegar hæð götunnar var ljós, að
reynt yrði að lækka hana. Að
lokum var fallist á að verða við
þessari ósk, þrátt fyrir að það hefði
nokkurn kostnað í för með sér og
var hæð götunnar lækkuð á 50 m
kafla frá 0-15 cm hæð.
Krókatún.
Varðandi framkvæmdir við
Krókatún, þá hafa þær gengið
eðlilega fyrir sig. Fyrripart sumars
voru holræsalagnir lagðar í götuna
frá Bakkatúni. Síðar í sumar var
undirbygging götunnar sett í rétta
hæð og að lokum voru mótin sett
upp og steypt í þau og nú þegar
þetta er skrifað er verið að leggja
síðustu hönd á verkið. Sagan um
steypubqla og hæðarskekkjur á
þessum stað mun vist eitthvað hafa
ruglast hjá heimildarmanni rit-
stjórans, því starfsmenn bæjarins
kannast ekki við þetta mál og óska
ég því eftir nánari upplýsingum að
hálfu ritstjórans svo ég geti skýrt
þetta mál hans nánar.
Skarðsbraut.
Um Skarðsbraut er sjálfsagt að
ræða, eins og aðrar framkvæmdir.
Byrjað var á að setja undirlag
götunnar í rétta hæð undir
jöfnunarlag, og setja á hana réttan
hliðar- og lengdarhalla. Þegar farið
var að hefla neðri hluta götunnar,
næst Garðabraut, þá kom fljótlega í
Ijós, að undirbygging var af
skornum skammti, enda nokkuð
langt síðan sá hluti var lagður.
Var skipt um jarðveg á þessum
kafla, þá þegar, svo og skipt um
gamla vatnsheimtaug og sett plast-
lögn í stað gömlu asbestlagnar-
innar. Síðan kom margumtalaður
víbróvaltari til að þjappa undir
jöfnunarlagið. Við þjöppunina
losnaði lítillega um té-stykki á
vatnslögninni við Garðabraut og
flæddi þá að sjálfsögðu upp
nokkurn vatnsmagn. Var síðan
grafin smá hola og stykkið fest
aftur og gengið vel frá því.
Að þessu loknu var fengið efni hja
Vegagerðinni í jöfnunarlag undir
oliumölina.
Ekki reyndist unnt að fá efni það,
sem lofað hafði verið í fyrstu, því
sá haugur hafði allur farið í
Þjóðveginn og Innnesveg.
Það eina efni, sem fáanlegt var hér
í nágrenninu, var frá Ferstiklu.
Efnið var mjög blautt og mikið átti
síðan eftir að rigna í það, eftir að
það kom i vegarstæðið.
Þar sem lag þetta var yfirleitt mjög
þunnt, þá seig fljótt úr því nema á
tveimur stöðum, þ.e. niður við
Garðabraut og ofan við beygjuna.
Þegar hér var komið sögu, var
framkvæmdum Vegagerðarinnar
lokið og röðin komin að okkur með
útlagningu.
Fengum við að láta götuna bíða
einn dag, en næsta morgun var
spáð rigningu seinni part dags og
nú var annað hvort að bíða í nokkra
daga eða setja strax á götuna.
Var þess farið á leit við verk-
takann, að verkið fengi að bíða i
nokkra daga.
Slíkt reyndist ekki unnt, því önnur
verk biðu eftir tækjunum og var
tilkynnt að ekki væri víst að þau
yrðu laus aftur fyrr en mjög seint í
haust eða næsta vor.
Var nú um það að velja; að leggja á
götuna, vitandi vits, að ske kynni
að taka þyrfti upp eitthvað lítils-
háttar og lagfæra.
Að loka götunni alveg í nokkra
mánuði, í von um að tæki fengjust.
Að fresta verkinu þýddi að alla
undirvinnu, svo og afréttingu á
niðurföllum, þyrfti að endurtaka
og er það nokkurra daga vinna, auk
leigu á mjög dýrum tækjum og
nýju efni í jöfnunarlag, svo og
flutningskostnaður á útlagningar-
búnaði, þessi kostnaður skiptir
milljónum.
Viðgerð á götunni, eins og hún er
nú, verður þannig, að skafið verður
um 10 cm lag ofan af þessum
tveimur blettum og sett i nýtt lag,
eru blettir þessir um 2% af stærð
götunnar.
Á forsíðu'síðustu útgáfu Umbrots
er mynd af Akursbökkum og með
henni texti eftir K.B. þar er þess
getið, að í fyrrahaust hafi verið
ekið mold í bakkann og sáð i með
ærnum tilkostnaði.
Vil ég hér leiðrétta þennan mis-
skilning, því ekki var ekið neinni
mold í bakkann eftir að gagan var
steypt og þeim fagra gróðri, sem
þar var, sáði móðir náttúra sjálf, án
nokkurs kostnaðar eða heimildar
bæjaryfirvalda.
Að lokum vil ég minnast lítils-
háttar á hina „svokölluðu tækni-
deild.“
Tæknideild bæjarins er skipuð
tveimur mönnum og til hennar var
ráðinn námsmaður til aðstoðar yfir
sumartímann s.l. sumar og meðan á
sumarleyfum stóð.
Tæknideildin er til húsa á neðstu
hæð bæjarskrifstofunnar og hefur
fram að þessu haft heilt herbergi
til umráða, ásamt garðaráðsmanni.
Undir tæknideildina heyra eftir-
talin verkefni:
Áætlanagerð og stjórn verklegra
framkvæmda.
Byggingareftirlit.
Skýrslugerðir fyrir Fasteignamat
ríkisins og Þjóðhagsstofnun.
Sorphirða, sorpgæzla og sorp-
haugar.
Umsjón og eftirlit keð viðhaldi
bygginga í eigu bæjarins.
Eftirlit með einstaka
nýbyggingum.
Undir tæknideild heyrir einnig:
Áhaldahús, með vélaverkstæði,
vélasjóði, rekstri vinnuflokka og
trésmíðaverkstæði.
Vatnsveita Akraness.
Rörasteypa Akraness.
Vonast ég til að þgssi greinarstúfur
svari spurningum ritstjórans en
þar sem endanlegar kostnaðartölur
framkvæmda sumarsins liggja ekki
fyrir , þá get ég því miður ekki
upplýst þær, en sjálfsagt er að láta
þær í té strax og þær liggja fyrir.
Að endingu vel ég benda ritsjóra
Umbrtos á, að tæknideild bæjarins
er reiðubúin til að láta honum í té
allar upplýsingar um framkvæmdir
á vegum bæjarins, ef svo illa vildi
til að heimildarmaður hans for-
fallaðist.
Akranies í október 1978.
Reynir Kristinsson.
Söluverðlaun
Söluverðlaun í október hlutu:
Kjartan Kjartansson, Vogabr.
40 og Heimir Kristjánsson, Vest
urgötu 113.
3