Umbrot - 21.11.1978, Blaðsíða 9
ER EKKI MÁL AÐ LINNI?
©
var settur þarna til bráðabirgða,
sem nú eru orðin tvö ár, fari ekki
varhluta af skrautinu, var sturtað
nokkrum bílhlössum af grjóti og
mulningi fyrir ofan hafnargarðinn
sem sýnir að það er fyrir öllu séð
bæði fjárhagslega og ekki síður
útlit og umgengni. Það er ótrúlega
víða, sem séð er fyrir fegrun af
þessu tagi.
kvæmd kostar mörgum milljónum
meira nú, heldur en ef unnin hefði
verið I fyrra sumar eins og beðið
var um, þar sem síðan hafa orðið
stórfelldar hækkanir eins og allir
vita. Mér finnst þessi vinnubrögð
óneitanlega bera keim af
hugsuninni: Bærinn borgar, rikið
borgar, sem því miður virðist vera
alltof algeng.
Og enn heldur ráðleysið áfram.
Nú fyrir um það hil tveimur
mánuðum er tekið til við að brjóta
dekkið og kant á hafnargarði, sem
frá var horfið í fyrra haust vegna
verðus, sem sýnir að þeir sem
þessum framkvæmdum ráða, (en
ættu ekki að ráða ef allt væri með
felldu) hafa ekki verið óánægðir
með útkomuna í fyrra haust, enda
byrjað á svipuðum tíma þegar
dagur styttist og allra veðra von.
Allt bendir til þess að það muni
taka upp undir hálft ár að laga i
kringum sextíu metra langan og
átján metra breiðan kafla á
garðinum.
Orsök þess að svona er unnið,
munu vera grjótflutningarnir sem
virðast hafa yfirtekið svo hugsun
þessara manna að annað kemst
ekki að. Svo það má með sanni
segja að þeir berji höfðinu við
steininn. Reyndslan er ekki þeirra
skóli sem með þessi mál fara, með
sinn fylgifisk, sem kemur fram í
sóun fjármuna á kostnað skatt-
greiðenda, heldur mikilmennsku-
brjálæði og óstjórn. Flestir menn
telja að það sé frekar hægt að aka
grjóti þó stirðni á polli eða veðuir
spillist, heldur en vinna að fyrr-
nefndri framkvæmd á þessum árs-
tíma. Það væri fróðlegt að fá upp-
lýst þegar farið verður að reikna út
grjótið (nú um innistöðutímann
sem bændur kalla) að tekið væri í
leiðinni hvað áðurnefnd fram-
í þessu sambandi kemur mér til
hugar hvað Akraneshöfn væri
langt komin og liti út í dag, ef
viðhöfð hefðu verið svipuð vinnu-
brögð frá byrjun og hér að framan
hefur verið drepið á. A þeim tímum
sem peningar voru af skornum
skammti og fjárveitingar litlar
miðað við þörfina. Þá var hugsað að
fá sem mest fyrir það fjármagn sem
fyrir hendi var hverju sinni og
gæta fyllstu hagsýni, meðal annars
með því að nota sumarið og byrja
eins snemma og hægt var. Nú
virðist þessu vera snúið við, byrjað
um veturnætur við þau verk sem
ætti að vinna að sumrinu, og þá
væntanlega miðað við að búið sé
áður en dag fer að lengja.
En það er ekki ein báran stök, og
enn einu sinni segja bráðabirgða-
ráðstafanirnar til sin. Fyrir um það
bil 10-12 árum var lögð skolpleiðsla
frá stórum hluta bæjarins gegnum
hafnargarð og plan útfyrir garðinn.
Fyrir nokkrum árum stíflaðist hún
svo að skolp og annar óþrifnaður
kom upp um niðurföll og rann
niður hafnargarð. Þá var talað um
að nauðsynlegt væri til að tryggja
að ekki kæmi fyrir aftur, að fram-
lengja lögnina fram í stórstraums-
f jöruborð með steyptum stokk.
Nú hefur lögnin stíflast árlega og
alltaf lagað til bráðabirgða með
ærnum kostnaði. í fyrra haust var
eins og ég hef áður sagt fra,
hreinsað grjót með stórum krana
frá hafnarmál, með það fyrir
augum að gangan varanlega frá
framlengingu leiðslunnar.
Sennilega hefur þeim sem fyrir
verkinu stóðu fundist þegar að var
gáð, að þessi árstimi væri ekki
heppilegur til að vinna verkið en
þá var búið að henda í þetta stórfé
á kostnað bæjarins. Síðan ekki
meira gert og allt komið í sama
horf og þegar byrjað var.
Fyrir nokkrum vikum stíflaðist
syo leiðslan enn einu sinni. Var
planið brotið upp og að sjálfsögðu
reynt að laga með gagnslitlu krafsi,
en svo skeður það að hreyfing
kemur í sjó með þeim afleiðingum
að enn bætist i leiðsluna og hún
lokast. Frárennslirennur inn i
verksmiðju S.F.A. stoppaði vinnslu
um tíma og var lán að ekki skyldi
verða stór tjón. Þetta gerist
aðfaranótt 19. október. Þá eru
kallaðir út menn með brunadælu
og haugsugu. Með þessum dælum
tók um það bil einn og hálfan tima
að dæla skolpinu út. Þetta hefur
kostað bæinn nokkrar þúsundir
fyrir utan þá vinnu og efni sem fer
í að endurbæta það sem eyðilagt
var, t.d. planið.
sÞetta sannar hvað bráðabirgða-
ráðstafanirnar með gagnslausu
fálmi geta kostað bæjarfélagið, sem
því miður sjást víðar.
Einu sinni var sagt að reynslan
væri ólygnust og af henni mætti
mikið læra, en þess þurfa þessir
miklu menn ekki eins og dæmin
sýna. En ég er hræddur um að úr
þeim verði mesti vindurinn um það
leyti sem þeir verða búnir að ná
höfuðskepnunum á sitt vald. Það er
örugglega léttara að sækja peninga
i vasa almennings, jafnvel þótt
margur eigi erfitt með að greiða, en
það skiptir ekki máli í þeirra
augum.
Bæjarstjórnarmenn mættu taka
upp sömu sparnaðarhugsjón og
virðist rikja við gerð kjara-
samninga starfsfólks bæjarins,
þegar setið er heilu næturnar og
þvargað kannski um nokkrar
krónur til lagfæringar á launum til
samræmis við það sem greitt er
fyrir hliðstæð störf annarstaðar og
fæst ekki nema að litlu leyti i
sumum tilfellum. Þeir ættu að gera
sér ljóst að það eru fleiri þættir í
rekstri bæjarins, ekki veigaminni,
sem þarf að hafa hemil á, en laun
starfsfólksins.
Á þvi sem hér hefur verið drepið
á, væri þörf á að menn gæfu meiri
gaum að hvernig fjármunum al-
mennings er varið, ef það gæti
orðið til þess að opna augu þeirra
sem þessum málum stjórna og við
höfum falið, í bestu trú að gæta
hagsmuna okkar bæjarfélags , en
ekki að láta duga að fara eftir út-
reikningum manna sem telja sig
vita allt betur en aðrir, sem hent er
á borð þeirra til samþykktar ef það
hefur þá verið við þá talað. Að
loknum þessum hugleiðingum
skýtur þeirri spurningu því upp í
huga manns: „Hvort ekki sé mál að
linni?“
Karl Benediktsson.
TIL SÖLU!
Borðstofu borð,
sex stólar og skápur
Upplýsingar í slma 1461
BARNAGÆZLA
Frá og með næstu mánaðar-
mótum tek ég að mér börn
í pössun allan daginn.
Ath.: Ekki eldri en 2ja ára.
Upplýsingar I síma 2447.
HAMRA
vegg-
samstæða
(slensk
framleiðsla
VERZLUNIN
SKOLABRAUTÍ91
AKRANESI^*1
9