Fjarðarpósturinn - 03.12.2015, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Verslanirnar Lilja Boutique og
Kakí stóðu fyrir tískusýningu í
Bæjarbíói sl. fimmtudag. Var
þetta í raun mikil hátíð því líka
var boðið upp á kynningar,
tónlist og veitingar auk þess sem
dregnir voru út fjöldi glæsilegra
vinninga frá fyrirtækjum í
miðbænum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þessar tvær öflugu kvenfata
verslanir leiða saman hesta sína á
þennan máta.
20 ára og 4 ára
Verslunin Kakí fagnar um
þessar mundir 20 ára afmæli
sínum og er því orðin ein af
rótgrónu verslunum í bænum.
Kakí hefur verið í 11 ár að
Strandgötu 11 en öll árin í mið
bænum. Steinunn Þorsteins dótt
ir, eigandi búðarinnar hannar
jafnframt og framleiðir eigin
fatalínu, Monroe design og segir
hún hlutdeild íslenska fatnaðarins
stækka ár frá ári. Fatnaður frá
Monroe design er nú um
helmingur af fataframboði í
versluninni.
Verslunin Lilja Boutique
fagnar 4 ára afmæli um þessar
mundir en verslunin hefur
blómstrað vel eftir að hún flutti
að Strandgötu 21, beint á móti
Thorsplani.
Öflugar kvenfataverslanir
Sýndu nýjustu fötin í Bæjarbíói
Björk Jakobsdóttir var kynnir kvöldsins og létt var yfir fólki.
Sannkallaði herramenn aðstoðuðu sýningarstúlkurnar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Okkur í Framsóknarfélagi
Hafnarfjarðar er umhugað um
velferð allra Hafnfirðinga og
viljum við standa vörð um hags
muni þeirra. Þess
vegna buðum við bæj
ar stjóranum í Hafn ar
firði, Haraldi L. Har
alds syni á fund síðast
liðinn laugardag í þeim
tilgangi að fá ítarlega
kynningu á fjár hags
áætlun bæjarins. Eins
og flestir vita hefur fjár
hagsstaða bæjarfélags
ins verið slæm og aug
ljóst er að grípa þarf til stórra
að gerða sem munu leggjast mis
vel í bæjarbúa.
Bæjarstjóri greindi frá því að
endurskipuleggja þarf víða hvert
fjármagnið fer því þegar saman
burður er gerður á sköttum og
öðrum gjöldum sveitarfélaga þá
er dýrast að búa í Hafnarfirði.
Stefnan er að skerða ekki þjón
ustu til bæjarbúa en þess í stað
fara betur með það
fjármagn sem bæjar
félag ið hefur úr að
spila. Endurskoða á öll
innkaup í þeim til gangi
að ná sem hagstæðustu
verðum. Tilboð hefur
verið gert í tryggingar
sveitar félagsins sem
leiðir til margra millj
óna sparnaðar. Að sögn
bæjarstjórans mun
bæjar félagið komast á gott fjár
hagslegt skrið eftir næsta ár ef
fjárhagsáætlunin gengur eftir.
Það er mikið ánægjuefni á meðal
okkar Framsóknarmanna að
þjónusta verði ekki skert þrátt
fyrir fjárhagsstöðu bæjarins og
þökkum við Haraldi bæjarstjóra
fyrir ítarlega kynningu og grein
argóð svör.
Það er þó gríðarlega mikilvægt
að veita aðhald þegar ákvarðanir
eru teknar um fjármuni okkar og
þá þjónustu sem við borgum
fyrir með útsvari okkar. Því er
nauðsynlegt að vera vakandi yfir
því hvernig unnið verður úr
fjárhagsáætlun og láta núverandi
meirihluta í bæjarstjórn standa
við þau loforð sem gefin voru
fyrir síðustu bæjarstjórnar kosn
ingar. Það munum við í Fram
sóknarfélagi Hafnarfjarðar gera
áfram með hagsmuni allra Hafn
firðinga að leiðarljósi og við
munum ekki hika við að koma
skoðunum okkar á framfæri.
Höfundur er formaður
bæjar málaflokks Framsókn
ar félags Hafnarfjarðar.
Þórður Ingi
Bjarnason
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar
FHingar stóðu sig með prýði
á Íslandsmeistarmótinu í skylm
ingum með höggsverði 12 ára og
yngri sem haldið var í Baldurs
haga um síðustu helgi. Keppt var
í flokkum 1112 ára, 910 ára og
78 ára, bæði í keppnisflokkum
og byrjendaflokkum.
Óskar Jarl Howser varð
Íslands meistari í keppnisflokki
1112 ára og Gústav Þór Kristj
áns son sigraði í byrjendaflokki
1112 ára. Í keppnisflokki 910
ára urðu þeir Róbert Ólafsson og
Konráð Ingi Finnbogason saman
í þriðja sæti. Eggert Sigtryggsson
endaði í öðru sæti í byrjendaflokki
910 ára.
Ragnar Ingi Íslandsmeistari
á ný
Um helgina 14.15. nóvember
fór fram Íslandsmót í skylm
ingum með höggsverði 13 ára og
eldri. Þórdís Ylfa Viðarsdóttir
varð Íslandsmeistari annað árið í
röð en hún sigraði félaga sinn úr
FH Aldísi Eddu Ingvarsdóttur
1514.
Ragnar Ingi Sigurðsson,
yfirþjálfari FHinga sigraði í
opnum flokki en hann sigraði
Gunnar Egil Ágústsson úr FH.
FH Íslandsmeistari liða
FH varð Íslandsmeistari í liða
keppni en í fyrsta sinn áttu þeir
tvö lið í úrslitum. Svo fór að
Ragnar Ingi Sigurðsson, Hilmar
Örn Jónsson, Sindri Snær Freys
son og Aldís Edda Ingv arsd óttir
sigruðu félaga sína úr FH þau
Guðjón Ragnar Brynjars son,
Gunnar Egil Ágústsson, Jón Þór
Backman og Þórdísi Ylfu
Viðarsdóttur 4543.
Í flokki U17 varð Róbert Elís
Villalobos Íslandsmeistari en
hann sigraði félaga sinn úr FH
Atla Björn Sigurðsson en Atli
náði einnig öðru sæti í U 21.
Í flokki U15 kvenna varð
Mekkín Elísabet Ingvarsdóttir
FH í öðru sæti en hún tapaði fyrir
Önnu Margréti Ólafsdóttur úr
Skylmingafélagi Reykjavíkur. Í
þriðja sæti varð Viktoría Huld
Ragnarsdóttur, FH.
Íslandsmeistar FH í liðakeppni í skylmingum með höggsverði.
Unga fólkið stóð sig sérstaklega vel.
Sigursælir FH-ingar í skylmingum
FH sigraði FH í liðakeppni og varð Íslandsmeistari
Snerpa og tækni í fyrirrúmi.
Hálsmen úr kaffihylkjum
Nemendur styrkja skóla á Spáni
Nemendur í Öldutúnsskóla
hafa í samstarfi við Vatnsenda
skól, Hagaborg og Gloria Fuer
tes, skóla á Spáni unnið að
verkefni undir kjörorðunum
vinátta, sköpun og endurnýting.
Nemendur útbúa hálsmen í
sérgreinatímum, úr Nespresso
kaffi hylkjum, efnisbútum, perl
um, böndum og fleiru og selja á
1.000 kr. en allur ágóði rennur til
Gloria Fuertes skólans í Alecante
en flestir nemendur skólans
tilheyra fátækum fjölskyldum.
Um leið öðlast nemendur
aukna samkennd og skilning á
mikilvægi endurnýtingar.