Fjarðarpósturinn - 03.12.2015, Side 5
www.fjardarposturinn.is 5FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Jólaþorpið 5. - 6. desember:
Íshús Hafnarfjarðar opið fös: 18.00-22.00 lau og sun 12.00 – 17.00,
Beggubúð (við Byggðasafnið) opin lau og sun frá kl. 14.00 – 16.00,
sætaferðir með Snæfinni í Íshúsið, snjókarlakeppni á Víðistaðatúni
lau kl. 11.00, Bettina og hestvagninn, skemmtidagskrá á sviði,
jólabingó, Syngjandi jól, jólaball með leikhópnum Lottu kl. 14.30 á
sun ... matur, drykkur og gaman fyrir alla fjölskylduna.
Velkomin í Jólaþorpið í Hafnarfirði
EINARSBÚÐ
Strandgötu 49
Kl. 14-16
Laugardagur:
Nemendur
Tónlistarskólans gleðja
gesti Jólaþorpsins með
ljúfum tónum.
Sunnudagur:
Jólin alls staðar!
Jólalög og jólasiðir frá
öllum heims hornum.
Söngur, gleði og
jólaföndur.
Nánar um dagskrá og aðra viðburði á www.hafnarfjordur.is
og Jólaþorpið Hafnarfirði á Facebook
Jólahús á Thorsplani
opin frá 12.00 – 17.00
laugardaga og
sunnudaga fram að
jólum
Vel heppnaður flóamarkaður
Kvennakór Hafnarfjarðar hélt
nýverið flóamarkað og köku
basar í sal Samfylkingarinnar við
Strandgötu. Slíkir flóamarkaðir
eru orðnir fastur liður í starfi
kórs ins og skemmtileg tilbreyt
ing í bæjarlífi Hafnfirðinga og
hafa kórkonur sjálfar gaman af
ekki síður en bæjarbúar. Það var
líf í tuskunum í Strandgötunni,
borð svignuðu undan girnilegum
tertum og öðru góðgæti og
margir gerðu góð kaup í fatnaði,
skarti og leikföngum eða freist
uðust til að kaupa eitthvað gott
með helgarkaffinu.
Kvennakór Hafnarfjarðar
fagn aði tuttugasta starfári sínu
með veglegum afmælistónleik
um s.l. vor og lýkur afmælisárinu
með jólatónleikum kórsins sem
verða í Víðistaðakirkju fimmtu
daginn 3. desember kl. 20. Þar
munu börn og barnabörn kór
kvenna taka lagið með kórnum.
Líflegt í miðbænum í snjónum
Snjórinn setur mikinn svip á Jólaþorpið á Thorsplani
Fjölmennt var þegar kveikt var
á jólatrénu á Thorsplani á föstu
dag og lék veðrið við bæjarbúa.
Nokkur jólahúsanna voru opin
en annars var Jólaþorpið ekki
opnað fyrr en á laugardeginum.
Færri voru þegar kveikt var á
Cuxhaven trénu við höfnina en
þar skartaði tréð sínu fínasta með
snjó á nálunum og fallegt
hafnarumhverfið. Yngstu börnin
fengu mikið fyrir sinn snúð er
þau fylgdust með jólasveinum
koma með lóðsbátnum.
Fjölmargar myndir má sjá á
Facebook síðu Fjarðarpóstsins.
Jólaþorpið heillaði unga sem
aldna. T.h.: JólasveinaÞróttur.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n