Fjarðarpósturinn - 03.12.2015, Page 23
www.fjardarposturinn.is 23FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | eimskip.is
Eimskip leitar að öflugum og ábyrgum starfsmanni í nýja frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði.
Um er að ræða framtíðarstarf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Guðmundsson rekstrarstjóri, olg@eimskip eða í síma 825-2166.
Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Um er að ræða vinnu við samantekt og yfirferð pantana,
lyftaravinnu og önnur störf sem falla til í geymslunni og á
hafnarsvæðinu. Viðkomandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund
enda felur starfið í sér samskipti við viðskiptavini og
starfsmenn. Eins er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn til
þess að vinna aukavinnu þegar þess þarf.
• Lyftararéttindi eru skilyrði (J réttindi)
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Góð þjónustulund og jákvæðni
• Íslenskukunnátta er skilyrði