Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 20
Stefán Björn er alinn upp í miðbænum og kláraði 10. bekk í Austurbæjarskóla nú í vor með stakri prýði. Hann spilar fótbolta með þriðja flokki Vals
ásamt því að vinna hjá félaginu í sumar. „Ég er að
vinna í fótboltaskóla Vals í sumar þar sem ég þjálfa
krakka í fótbolta. Svo er ég líka að vinna á Sumar-
búðum í borg, en það er leikjanámskeið sem er í boði
fyrir börn hjá Val og hefur verið í boði í mörg, mörg
ár, ég var sjálfur á þessu námskeiði þegar ég var lítill,“
segir Stefán og bætir því við að það sé mjög gaman í
vinnunni og að hann skemmti sér vel.
Í sumar ætlar Stefán að njóta þess að vera með
vinum sínum, vinna og sinna áhugamálum sínum. „Ég
er ekkert með mikið planað fyrir sumarið, ætla bara mest
að spila fótbolta og vinna. Svo fer ég örugglega eitthvað til
útlanda, en ég veit ekki alveg hvert.“
Þegar hann er spurður að því hvað honum finnist skemmtileg-
ast að gera á sumrin þarf Stefán ekki að hugsa sig lengi um: „Mér finnst
bara skemmtilegast að vera úti, hanga með vinum mínum og spila fótbolta.“
Í haust byrjar Stefán í Verzlunarskóla Íslands og er mikil spenna í loftinu.
„Ég komst bara að því í morgun að ég hefði komist inn í Verzló og er mjög
ánægður með það,“ segir Stefán en hann hefur lengi langað að fara í Verzlunar-
skólann. „Mig er eiginlega búið að langa að fara í Verzló mjög lengi, alveg frá því
að ég byrjaði í 8. bekk.“
Bríet Eva býr í Garðabæ en ólst upp í Reykjavík. Í sumar er hún í tveimur vinnum svo að nóg er að gera. „Í ORF líf-tækni er ég í pökkun og framleiðslu á vörunum og það
er bara mjög gaman. Ég er í 100 prósent starfi þar en svo tek
ég aukavaktir á TokyoSushi. Ég er búin að vinna þar mjög
lengi með skólanum svo ég kann allt þar svo vel og það er
líka gaman.“
Hún segir að það sé mikið að vera í tveimur vinnum
en þrátt fyrir það nái hún að gera ýmislegt skemmtilegt í
sumar. „Ég er að fara til Sviss með fjölskyldunni að heim-
sækja Möggu frænku þó ég sé aðallega bara að fara að vinna
af því ég er nýkomin úr útskriftarferð til Krítar.“
Bríet Eva var að útskrifast frá Verzlunarskóla Íslands og
ætlar að taka sér árs frí á meðan hún áttar sig á því hvað hana
langar að gera í framtíðinni. „Ef ég myndi vita hvað draumastarfið
væri þá væri allt mun auðveldara,“ segir Bríet og hlær. „Ég veit ekki
hvað mig langar að læra í háskóla. En ég veit að ég ætla í háskóla og ég veit
að draumastarfið mitt innifelur einhverja rútínu af því að ég þarf mikla rútínu, en
ég þarf líka félagsleg tengsl, ekki bara skrif borð og tölvu.“
Sumarið er að sögn Bríetar tími til þess að njóta lífsins, ferðast og skemmta sér. „Á
sumrin finnst mér skemmtilegast að nýta tímann með vinum mínum og gera eitt-
hvað skemmtilegt. Fara í útilegu eða sumarbústað eða bara keyra á Selfoss og fá sér
pylsu og horfa á brúna. Bara hvað sem er til að búa til minningar og upplifanir.“
Helga Rún býr í Grafarholti og stundar nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún spilar á trompet í skólahljómsveit, syngur í kór og hefur mikinn áhuga á tónlist. Í sumar starfar hún á leikskóla og í
verslun. „Ég er í fullu starfi á leikskólanum Maríuborg og vinn aðra hvora
helgi í Rúmfatalagernum,“ segir Helga.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að vinna á leikskóla. Mér hefur alltaf
fundist gaman að vera í kringum krakka, maður getur alltaf lært eitthvað
af þeim,“ segir Helga og bætir við að þrátt fyrir að hún sé að vinna mikið í
sumar þá fái hún sumarfrí á leikskólanum þegar börnin fara í sumarfrí.
Á sumrin finnst henni skemmtilegast að ferðast, vera með vinum
sínum og njóta.
Helga er nýkomin frá Norður-Ítalíu þar sem hún ferðaðist með
skólahljómsveitinni. „Við fengum styrk til að fara til Ítalíu og
hitta aðra hljómsveit þar. Við héldum með þeim tvenna tón-
leika. Spiluðum til dæmis lagið Heyr mína bæn sem er upp-
runalega ítalskt Eurovision-lag. Ég söng það á íslensku og það
var önnur stelpa sem söng það á ítölsku, það var rosa gaman.“
Þegar Helga er spurð að því hvert sé hennar draumastarf
segist hún ekki viss um hvert starfið sé en hún veit þó vel
hvar hana langar að starfa. „Mig hefur alltaf dreymt um að
vinna í Borgarleikhúsinu eða Hörpu eða einhverju þannig.
Mér finnst stússið í kringum allar svona stórar sýningar og
tónleika svo skemmtilegt, svo kannski verkefnastjórnun eða
eitthvað svoleiðis væri draumastarfið.“
Stefán Björn Skúlason
Aldur: 16 ára.
Skóli: Byrja í Verzló í haust.
Uppáhaldsmatur: Spaghetti Bolognese.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Uppáhaldsfag: Stærðfræði.
Það sem ég er að hlusta á: Ég hlusta mest á
íslenskt rapp. Fíla til dæmis Flóna og Birni.
Bríet Eva
Gísladóttir
Aldur: 18 ára, verð 19 á árinu.
Skóli: Útskrifaðist úr Verzló í vor.
Uppáhaldsmatur: Steik.
Uppáhaldsdrykkur: Pepsi Max.
Uppáhaldsfag: Stærðfræði.
Það sem ég er að hlusta á: Ég er rosalega
mikið að hlusta bara á það sem er í gangi
núna. Mér finnst rapp og popp skemmti-
legt og ég fíla The Weeknd mikið.
Helga Rún
Guðmundsdóttir
Aldur: 18 ára.
Skóli: Kvennó.
Uppáhaldsmatur: Nautakjöt með bearnaise.
Uppáhaldsdrykkur: Kristall.
Uppáhaldsfag: Saga og eðlisfræði.
Það sem ég er að hlusta á: Ég hlusta bara
á allt. Ég er mikið að hlusta á tónlistina
sem er spiluð í útvarpinu, en líka
íslenska tónlist og gamla tónlist.
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-D
B
6
C
2
3
4
3
-D
A
3
0
2
3
4
3
-D
8
F
4
2
3
4
3
-D
7
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K