Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 24

Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 | Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@ frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Protis Liðir er náttúrlegt fæðubótarefni sem unnið úr kollagen-ríkum skrápi sæbjúgna með viðbættu vatns- rofnu þorskprótíni fyrir viðhald vöðva og túrmeriki fyrir bólgu- eyðandi áhrif. Líftæknifyrirtækið Protis er staðsett á Sauðárkróki. Þar er Pétur búsettur og starfar sem kerfisstjóri hjá tölvufyrir- tækinu Fjölneti sem hann á og rekur. Pétur hefur alla tíð stundað íþróttir enda segist hann vera keppnismaður. Ástæða þess að hann byrjaði að taka inn Protis Liði var ónýt hné. Áhrifin komu á óvart „Ætli ég hafi ekki byrjað að taka Protis Liði vegna verkja í hné. Það var fyrir um það bil þremur árum. Annað hnéð er brjósklaust og klippa þurfti til liðþófa. Ég hef farið í tvær aðgerðir vegna þess. Þá hef ég einnig farið í aðgerð út af hinu hnénu. Þar hafa liðþófar einnig verið klipptir auk þess sem sprunga er í brjóski. Þegar ég reyndi að hreyfa mig urðu hnén stokkbólgin, líkt og handbolti að stærð. Þessu fylgdu miklir verkir, til dæmis þegar ég gekk upp tröppur. Mér fannst erfitt að sitja lengi í bíl eða flugvél. Það var virkilega erfitt fyrir mig að keyra frá Sauðárkróki til Reykjavíkur,“ útskýrir Pétur. „Ég hafði ekki mikla trú á Protis Liðum í upphafi en ákvað að prófa að taka inn fjórar töflur á dag með morgunmatnum. Um sama leyti hætti ég að gleypa Voltaren rapid sem er bólgueyð- andi lyf og fer ekki vel í maga. Það kom mér mikið á óvart að eftir stuttan tíma minnkuðu bólg- urnar mikið og verkirnir eigin- lega hurfu. Ég veit svo sem ekkert hvernig ég á að að útskýra þetta en það er eins og eitthvað læknist í hnénu með Protis Liðum. Ég gat allt í einu skokkað smávegis og hreyft mig. Áður voru allir „demparar“ farnir úr hnjánum,“ segir hann. Út að hjóla Pétur er kyrrsetumaður þar sem hann starfar við tölvur og finnst því mikilvægt að hreyfa sig. „Ég hjóla mikið. Það gat ég illa gert fyrir þremur árum. Það var í rauninni alveg magnað að strax á fimmta degi eftir að ég byrjaði á Liðum var ég farinn að finna mikinn mun á mér. Sömu- leiðis versnaði mér fljótt þegar ég sleppti að taka inn Liði og fékk aftur vonda verki. Protis Liðir hafa hentað mér frábærlega og ég er ekkert að liggja á skoðunum mínum um að þetta gerir mér mjög gott. Ef ég myndi hætta alveg að taka Liði væri ekkert annað í stöðunni en að fara í hnjáliða- skipti. Á meðan þetta er í lagi er ég ekkert að hugsa um slíkt.“ Þegar Pétur er spurður hvort hann viti um ástæðu þess að hnén gáfu sig, svarar hann: „Ég slasaðist fyrir rúmum 25 árum þegar ég var að hlaupa utanvegar í Noregi þar sem ég var í námi. Steig illa niður og reif liðþófa, átti síðan að fara í aðgerð sem aldrei varð úr þannig að fóturinn varð alltaf verri og verri. Ég fór að setja allan þungann á hinn fótinn og skemmdi hann líka. Það má segja að þetta séu týpísk íþróttameiðsli. Ég hljóp mikið á þessum árum og tók þátt í hinum og þessum íþróttum. Þegar maður er vanur að hreyfa sig kemur upp eirðar- leysi og pirringur ef það er ekki hægt af einhverjum orsökum. Ég hef reynt ýmislegt en á mjög erfitt með hlaup. Hef hins vegar fundið mig á reiðhjólinu enda gerir það mér gott að hjóla. Það er frábært að hjóla hér um sveitirnar, lítil umferð og fátt sem truflar,“ segir Pétur. „Ég fer því út að hjóla á hverjum degi og gaman að segja frá því að ég ætla að taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni í sumar ásamt nokkrum öðrum héðan.“ Ginseng hafsins Skrápur sæbjúgna inniheldur líf- virka efnið chondoitin sulphate. Skrápur sæbjúgna inniheldur einnig hátt hlutfall af sinki, joði og járni og eru sæbjúgu gjarnan kölluð „ginseng hafsins“ en þau innihalda lífvirka efnið sapónín. Kollagenið sem unnið er úr sæbjúgum inniheldur hátt hlutfall af mikilvægum amínósýrum, sér- staklega tryptophan auk mangans og nauðsynlegra vítamína fyrir heilbrigð bein, brjósk og liðvökva. Nánar á protis.is. Protis-vörurnar fást í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaða. Pétur reynir að hjóla á hverjum degi og segir að það geri sér gott. Hann ætlar að taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni í sumar ásamt nokkrum hjólafélögum sínum á Sauðárkróki. Sæbjúgu eru gjarnan kölluð „ginseng hafsins“ en þau innihalda lífvirka efnið sapónín sem finnst í Protis Liðum. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R Fólk er kynningarblað se býður auglýsendu að kynna vörur og þjónustu í for i viðtala og u fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. U sjónar enn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 tgefandi: Torg ehf Ábyrgðar aður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölu enn: Arnar agnússon, arnar frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Berg ann, atli frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhel sson, jonivar frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann aage, johann aage frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth frettabladid.is, s. 550 5653, I 2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 2 -0 6 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 4 -0 2 E C 2 3 4 4 -0 1 B 0 2 3 4 4 -0 0 7 4 2 3 4 3 -F F 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.