Bæjarblaðið - 21.04.1958, Blaðsíða 4
Aknrnesingar! Kaupið
BÆJARBLAÐH)
BÆJARBLAÐIÐ
Akranesi, mánudaginn 21. apríl 1958
Anglýsið í
BÆJABBLAÐINU
— 4rsþing f A
TILKYNNING
UM LÓÐAHREINSUN Á AKRANESI
Samkvæmt 11. gr. Heilbrigðissamþykkt-
ar fyrir Akraneskaupstað er eigendum húsa
skylt að sjá um, að haldið sé hreinum port-
um og annarri byggðri lóð kring um hús
þeirra, svo og óbyggðum lóðum, þar á með-
al rústum.
Með tilvísan til framanritaðra ákvæða
heilbrigðissamþykktarinnar, eru lóðareig-
endur eða umráðamenn lóða í Akranes-
kaupstað hér með áminntir um að hreinsa
lóðir sínar og fjarlægja þaðan allt, sem
óþrifnaður eða óprýði er að, og þarflaust
er að hafa þar.
Lóðahreinsuninni skal vera lokið eigi síð-
ar en 15. maí næstkomandi, ella mega lóðar-
eigendur búast við, að hreinsunin verði
framkvæmd á þeirra kostnað.
Menn eru hvattir til að kynna sér sem
bezt ákvæði heilbrigðissamþykktarinnar.
Hana er hægt að fá í skrifstofu bæjarfógeta.
Akranesi 17. apríl 1958.
Heilbrigðisnefnd Akraneskaupstaðar.
Til sölu
Viljum selja verzlunarhúsnæði okkar, Garð
(Suðurgötu 36) ef viðunanlegt boð fæst.
KAUPFÉLAG SUÐUR-BORGFIRÐINGA
„Syngjöndi páskar“
Skemmtun í Bíóhöllinni sunnudaginn 27.
apríl n. k. — Dansleikur um kvöldið í Hótel
Akranes. Danshljómsveit Björns R. Einars-
sonar leikur. — Sjá nánar í götuauglýsing-
um. — Allur ágóði rennur til áhaldakaupa
fyrir Sjúkrahús Akraness.
Styðjið gott málefni um leið og þér njótið
góðrar skemmtunar.
LIQNSKLÚBBUR AKRANESS.
Frartihald af l. síðu.
í héraðsdómstól voru kjömir:
Óðirm S. Geirdal, Ólafur Fr.
Sigurðsson og Helgi Júliusson.
Endurskoðendur voru kosnir:
Ólafur Fr. Sigurðsson og Sig-
urður Vigfússon.
Á ársþing l.A. að þessu sinni
höfðu 50 fulltrúar seturétt og
skiptast þeir þannig á félögin:
K.A. 19 fulltrúa, Kári 19,
Sundfélagið 6 og Skíðafélagið
6 fulltrúa.
Hér á eftir fer það helzta
úr skýrslu l.A. fyrir starfsárið
1957—1958.
Knattspyrna.
Á s.l. ári voru knattspyrnu-
menn Í.A. yfirleitt sigursælir.
t tslandsmóti I. deildar bar t.A.
sigur úr hýtum og hlaut io
stig, skoraði 14 mörk gegn 2,
og hlaut þar með titilinn
„Bezta knattspyrnufélag ts-
lands 1957“. Alls lék meistara-
flokkur t.A. io leiki á árinu,
vann 9 og tapaði einum gegn
tékkneska ungl i ngalan dshðin 11
og skoraði 41 mark gegn 10.
Akranes sigraði Reykjavík tví
vegis í bæjarkeppni, svo og Ak-
ureyri og Keflavík. Leikmenn
t.A. léku með í flestum úrvals-
og pressuliðum, er léku hér á
sumrinu. 1 landsliðinu léku alls
9 leikmenn frá t-A. og í leikn-
um gegn Norðmönnum voru 8
leikmenn. Á árinu lék Ríkharð-
ur Jónsson sinn 20. landsleik,
og hefur enginn leikið jafnoft
í íslenzka landsliðinu.
Knattspyrnufélag Akraness
sigraði Kára í keppninni um
Skaftabikarinn með 4 mörk-
um gegn 2, og hlaút titilinn
„Bezta knattspyrnufélag Akra-
ness 1957“.
t.A. sigraði í landsmóti 3.
flokks og skoraði alls 14 mörk
gegn 3. Er þetta í fyrsta skipti,
sem lið utan Reykjavikur sigr-
ar í landsmóti 3. fl. I lands-
móti 4. flokks komst lið t.A.
í úrslit, en tapaði úrslitaleikn-
um. Alls voru skoruð 95 mörk
gegn 61 í þeim 33 leikjum, sem
t.A. tók þátt í á árinu. Ákveð-
ið er, að 2- fl. t.A. fari i keppn-
isferðalag til Finnlands og Svi-
þjóðar á kamandi sumri; einn-
ig standa yfir samningar um
utanför fyrir meistaraflokk.
Ríkharður Jónsson þjálfaði
meistara- og 1. flokk, en Helgi
Daníelsson yngri flokkana.
Sund.
Sund hefur verið æft af
kappi og stunda þær æfingar
að staðaldri 35 manns. Fimm
sundmót voru haldin á Akra-
nesi, og sundmenn tóku þátt í
fjórum sundmótum utan Akra-
ness. Akurnesingar töpuðu bæj-
arkeppninni við Keflavík, en
sigruðu þá í samnorrænu sund-
keppninni. Hallur Gunnlaugs-
son, sem hefur verið þjálfari
sundfólksins undanfarin ár, lét
af því starfi nýlega, en við tók
Magnús Kristjánsson.
Handknattleikur.
Handknattleikur var stund-
aður af kappi í okt.—des. af
körlum, en eftir áramót hefur
hann að mestu lagzt niður. —
Handknattleiksmenn háðu enga
leiki við lið utan Akraness.
Skíði.
Sex skíðaferðir voru farnar
á árinu, en aðalstarf Skíðafé-
lagsins var að annast og sjá
um framkvæmd skíðalandsgöng
unnar á Akranesi, en Akranes
varð 6. í röðinni af kaupstöð-
um landsins, en langefst af
kaupstöðum og íþróttahéruðum
á suður og suð-vesturlandi.
Skíðakennsla var nokkur á
vegum Skiðafélagsins og annað-
ist Aðalsteinn Jónsson, íþrótta-
kennari, hana.
íþróttahúsið.
1 íþróttahúsinu, sem er eign
I.A., fer fram íþróttakennsla
á vegum bandalagsins frá kl.
7—11 síðd-, auk annarrar starf
semi Knattspyrnuflokkarnir,
hver um sig, hafa tvo tíma í
viku, svo og handknattleiks-
menn. Badminton er iðkað tals-
vert af konum og körlum, og
eru kennarar þau Halla Árna-
dóttir og Benedikt Hermanns-
son. Einnig er frúarflokkur í
leikfimi og körfubolta kvenna,
hvort tveggja undir stjóm Sig-
rúnar Eiðsdóttur, íþróttakenn-
ara. Þá er „Old Boys“ flokkur,
sem leggur aðallega stund á
blak og körfubolta, og er hann
undir stjóm Þórarins Ólafsson-
ar.
f íþróttahúsinu er og félags-
heimili f.A. Salurinn er smekk-
lega búinn húsgögnum og tekur
um 50 manns í sæti. Þar fara
fram flestir fundir stjórnar Í.A.
og ráða bandalagsins. Þar eru
einnig haldnir ýmis konar
fræðslu og skemmtifundir, að-
allega fyrir yngstu meðlimina.
Á vegum Í.A. fer fram árlega
skákmót, er nefnist Friðriks-
mótið. Er keppt um bikar, er
Friðrik Ólafsson, skákmeistari
gaf, og er það farandbikar.
„Friðriksmótinu“, hinu 3. í
röðinni, er nú nýlokið og voru
keppendur 12. Sigurvegari að
þessu sinni varð Guðni Þórðar-
son, leikmaður úr 2. flokki, og
hlaut hann 10 vinninga, næstur
varð Karl Helgason með 9 vinn
inga.
íþróttavöllurinn.
Mikið var rætt um íþrótta-
svæðið á þinginu og voru full-
trúar á einu máli um, að nauð-
syn bæri til að ljúka sem fyrst
að ganga frá vellinum.
Fræðslufundir.
Einn fræðslufundur var hald
inn á árinu og tókst hann mjög
vel, auk þess sem haldnir hafa
verið skemmtifundir fyrir
yngri flokkanna. Er nauðsyn-
legt að auka þessa fundi.
Lokaorð.
Hér á undan hefur verið stikl
að á því helzta úr starfsemi
Iþróttabandalags Akraness!
Störfin eru margvísleg, eins og
skýrslan ber með sér, enda hafa
verið á árinu 1957 starfandi á
vegum f.A. við íþróttakeppnir,
æfingar og önnur félagsstörf á
5. hundrað manns, sem sýnir
bezt hversu þýðingarmikið í-
þróttastarfið er fyrir æsku þessa
bæjar.
HÁTÍÐAHÖLD
Á SUMARDAGINN
FYRSTA
Sumardagurinn fyrsti verÖ
ur, að þessu sinni, helgáöur
Dagheimili Akraness, og er
því sem oftast áÖur dagur
harnanna og velferÖarmála
þeirra.
Hátíðahöldin hefjast með
skrúðgöngu frá Bamaskólanum
kl. 1.30 e. h. Staðnæmzt verður
á Gagnfræðaskólablettinum og
þar ávarpar Hálfdan Sveinsson
kennari og forseti bæjarstjórn-
ar, börnin- Hans Jörgensson
stjórnar fjöldasöng.
Kl. 3.00 hefst barnaskemmt-
un í Bíóhöllinni, verða þar ým-
is skemmtiatriði.
Dansleikur fyrir börn verður
í Hótel Akranes kl. 5—7 og
loks kvikmyndasýningar fyrir
fullorðna í Bíóhöllinni klukkan
7 og 9.
ÞAKKIR TIL
AKURNESIN G A
Kvenfélag Akraness þakkar
Akurnesingum frábæra þátt-
töku í fjársöfnmi félagsins
vegna Sjúkrahússins annan
páskadag. Alls söfnuðust kr.
47.826.21 þar með talinn stór-
höfðingleg gjöf kr. 11.193,21
frá hjónunum frú Guðrúnu Ein
arsdóttur og Sigurjóni Sigurðs-
syni Neðra-Teig Akranesi. —
Rausn þeirra sýnir góðvild og
hlýhug þann, er þau bera til
Sjúkrahússins og allra, er þar
liggja sjúkir. Allt þetta þökk-
um við hjartanlega.
Stjórn Kvenfélags
Akraness.
FERMING
á Akranesi er ákveðm á hvíta
sunnudag og annan í hvíta-
sunnu, 25. og 26. maí n.k., kl-
10.30 f.h. og 2 fyrri daginn, og
kl. 10.30 f.h, á annan.
Sóknarprestur.
ORGELSJÓÐUR
AKRANESKIRKJU
Eins og flestum mun kunn-
ugt, er kirkjuorgelið hér orðið
gamalt og samsvarar ekki leng-
ur kröfum tímans um góð
kirkjuhljóðfæri. Er mikil nauð-
syn að bæta úr þvi.
Nú hafa kirkjukórinn, sókn-
arnefnd og sóknarprestur beitt
sér fyrir almennri söfnun í
bænum til kaupa á nýju kirkju-
orgeli. Er fólki gefinn kostur á
að gefa annað hvort eina pen-
ingagjöf í eitt skipti fyrir öll
eða skipta framlagi sinu í
þrennt.
Forystumenn söfnunarinnar
og aðrir velunnarar kirkjunnar
vænta þess, að safnaðarfólk
bregðist vel við og láti hver
sinn skerf af hendi rakna til
góðs fyrirtækis.