Bæjarblaðið - 23.06.1958, Page 1
BÆJARBLAÐIÐ
8. árgangur.
Akranesi, mánudaginn 23. júní 1958
7. tölubla5
BÆJARBLAÐH)
fæst a eftirtöldum stöðum
Bókaverzlun Andrésar
Níelssonar.
Veiöarfœrav. Axels
S veinbjörnssonar,
Verzl. Einars Ölafssonar.
Verzlunin Brú,
Sementsverhsmiðja ríkisins ií Akranesi tr tekin til storfa
Forseti fstoods Ingði horosteio verhsmiðjuooor 14* júoí síðostliðioo
Xlmfangsmcsía iÓnfynrtœki á Jslandi
Sementsverksmiðjan var vígð við hátíðlega
athöfn laugardaginn 14. júní. Forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, kom hingað með
fríðu föruneyti og lagði hornsteininn, milli
kl. 5 og 6 síðdegis, en iðnaðarmálaráðherra,
dr. Gylfi Þ. Gíslason kveikti á kyndli þeim, er
tendrað var með bál í kesti undir sementsofn-
inum. Tók verksmiðjan þar með opinberlega
til starfa.
Þennan eftirminnilega laug-
ardag í sögu íslenzks iðnaðar
og Akraness var ákjósanlegt
veður, milt og stillt, skúraleið-
ingar í fjöllum, en þurrt í
byggð.
Snemma morguns voru tug-
ir fána dregnir að hún á bygg-
ingu Sementsverksrniðjunnar.
Um kl. 4.30 lagði Akraborg
að sementsverksmiðjubryggj-
unni með forsetahjónin og aðra
boðsgesti. Meðal boðsgesta,
sem komu, voru: forsætisráð-
herra, Hermann Jónasson og
frú hans, iðnaðarmálaráð-
herra, Gylfi Þ. Gíslason og
frú, Eysteinn Jónsson, fjár-
málaráðherra og frú, Hannibal
Valdimarsson, félagsmálaráð-
herra, ambassadorar Dana,
Knuth greifi, Vestur-Þýzka-
lands, H. R. Hichfield, og
Bandaríkjanna I. J. Muccio,
ráðuneytisstjórarnir: Gunn-
laugur Briem, Sigtryggur
Klemensson og Þórhallur Ás-
geirsson, bankastjórarnir: Vil-
hjálmur Þór, Svanbjörn Frí-
mannsson, Benjamíri Eiríksson
og Jón Maríasson, ritstjórar
blaða, verkfræðingar og ýmsir
aðrir embættismenn ríkisins.
Af heimamönnum voru boðn-
ir: forseti bæjarstjórnar, Hálf-
dan Sveinsson, bæiarstjóri
Daniel Agústínusson, bæjar-
ráðsmennirnir Jón Árnason og
Sigurður Guðmundsson, Þór-
hallur Sæmundsson, bæjarfó-
geti, og ýmsir yfirmenn við
bj^ggingu verksmiðjunnar.
Loks voru fulltrúar tveggja
danskra fyrirtækja, sem verk-
smiðjan hefir mikið skipt við.
Voru það Max Jensen, forstjóri
F. L. Smidth & Co., sem smíð-
aði vélar verksmiðjunnar,
hann er búsettur í London, og
Per Moritzen forstjóri frá
Kaupmannahöfn, en fyrirtæki
hans stóð fjrrir sanddæling-
imni í Faxaflóa.
Vígslan
Akraborg lagðist, eins og áð-
ur gat um, að Sementsverk-
smiðjubryggjunni, og gengu
gestir rakleitt þaðan í ofnhús-
ið mikla, en þar skyldi fella
hornsteininn í súlu.
Sætum hafði verið komið
fyrir á efra gólfi við enda ofns-
ins, en nokkuð þröngt var þar.
Hægra megin við horn-
steinssúluna stóð ræðustóhinn,
en rétt hjá sátu forsetahjónin,
ásamt Haraldi Kröyer forseta-
ritara og frú hans. Þar sátu
lika iðnaðarmálaráðherra og
frú.
Ræða dr. Vestdals
Fyrstur talaði dr. Jón E.
Vestdal formaður Sements-
verksmiðjustjórnar. Bauð harin
gesti velkomna og rakti ýtar-
lega sögu verksmiðíumálsins,
og þakkaði öllum, sem unnið
hafa að því. Lauk hann máli
sínu með þessum orðum: „011
gæfa er frá Guði. Og gæfan
hefur ekki farið fram hjá þessu
fyrirtæki. Við þökkum forsjón-
inni, að hún skuli hafa iátið
verk okkar lánast fram til
þessa og biðjum þess af heilum
hug, að Guðs blessun megi
fylgja því um alla framtíð“.
Dr. Vestdal las ennfremur það,
sem stóð á skjali, er lagt var í
blýhólk þann, sem lagður var
í hornsteininn.
Hornsteinninn lagður
Síðan lagði forsetinn horn-
stein verksmiðjunnar, er var
felldur inn í hólf í steinsteypta
súlu í ofnhúsinu.
Ólafur Vilhjálmsson yfir-
smiður aðstoðaði forsetann,
færði honum ker með sements-
blöndu. Forseti múraði síðan
hólkinn í hólfið.
Hólkur þessi var úr blýi, var
í hann lagt skjal með upplýs-
ingum um verksmiðjuna, en
Einar Helgason yfirverkstjóri
lóðaði aftur.
Múrskeiðin, sem forsetinn
notaði við þessa athöfn, er
ágætur gripur, smíðaður hér.
Er skeiðin sjálf úr ryðfríu stáli,
en skaftið úr fágaðri hvaltönn.
Múrbrettið var líka smiðað
fyrir þetta tækifæri, mjög
falleg.
Ræða forseta
Síðan tók forsetinn til máls.
Hann lauk máli sínu með þess-
um orðum: „Steinsteypan fær-
ir stöðugt út sinn verkahring.
Hús, skólar og kirkjur, hafnir,
brimbriótar og stíflur, sund-
laugar, brýr og vegir, — til
alls þessa þarf mikið magn af
sementi og fleiri viðfangsefni
bætast við hvað líður. Tuttugu
og tvö ár eru liðin frá því að
hafizt var handa um rannsókn-
ir, fyrir tveim árum var bygg-
higarvinnan hafin, — og hér
stendur nú sementsverksmiðj-
an, eitt hið mesta mannvirki,
tilbúin að fullnægja þörf þjóð-
arinnar, og mest allt hráefni
innlent og nærtækt.
Hin miklu mannvirki setja
svip sinn á þennan bæ, og þó
heldur Akrafjallið fullri reisn
sinni. Ég óska þess, að sambýl-
ið við aðra atvinnuvegi verði
gott um fólkshald og öll at-
vinnuskilyrði, og þess ber að
gæta, að útgerðin er eftir sem
áður höfuðatvmnugrein þessa
kaupstaðar. Ég óska þjóðinni í
beild til heilla, að vera leyst
úr aldagömlum álögum mold-
arkofanna, hafnleysu og veg-
leysu. Margt er enn ógert, en
sementið og atorkan munu
leysa hin stóru viðfangsefni
framtíðarinnar, sem áður voru
óviðráðanleg. Góðar óskir og
guðsblessun fylgir þeirri starf-
semi sem hér hefst í dag!“
Ræða iðnaðarmálaráð-
herra
Næstur talaði iðnaðarmála-
ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason.
Fórust honum svo orð, meðal
Framhald á 2. sí8u.
NÝ HÚSGAGNA-
VERZLUN Á
VESTURGÖTU 46.
Þeir Baldur Guðjónsson og
Sigurður Ólafsson, verzlun-
armenn, hafa fyrir nokkru
opnað, húsgagnaverzlun á
Vesturgötu 46.
Þar eru til sölu alls konar
húsgögn, yfirleitt allt af því
tagi, sem fáanlegt er.
Vörurnar eru fáanlegar með
afborgunarskilmálum. — Verzl
unin hefir umboð fyrir Faber-
sóltjöld og rimlagluggatjöld,
en þau eru nú mikið notuð.
/ þetta hús koma árlega 200.000 tonn af efni. Þetta er mesta hús sem Islendingar hafa byggt og eiga.
Hinn tœplega 70 m hái reykháfur Sementsverksmiðjunnar rís að baki hússins. (Morgunbl.)
Tannhjóliti, sem snýr kvörnunum er engin smásmíSi.
(Morgunbl.)