Bæjarblaðið - 29.07.1958, Page 4
Akornesingar! Kaupið
BÆJARBLAÐIÐ
BÆJARBLAÐIÐ
Akranesi, Þriðjudaginn 29. jálí 1958.
Auglýsið í
BÆJARBLAÐEVU
Nr. 12/1958,
TILKYNNING
j
Innflutningsskrifstofan hefur í dag ákveðið eftirfar-
andi hámarksverð á selda vinnu hjá rafvirkjum:
I. Verks.lœðisvinna og vidgeröir:
Dagvinna ....................... Kr. 45.40
Eftirvinna ..................... — 63.55
Næturvinna ..................... — 81.70
II. Vinna við raflagnir:
Dagvinna ....................... Kr. 43.25
Eftirvinna ..................... — 60.60
Næturvinna ..................... — 77-9°
Söluskattur og útflutningssjóðsgjald er innifalið í
verðinu og skal vinna, sem undanþegin er gjöldum
þessum, vera ódýrari sem þeim nemur.
Reykjavík, 4. júlí 1958.
V erðlagsst jórinn.
Nr. 13/1958.
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur í dag ákveðið, að verð
hverrar seldrar vinnustundar hjá eftirtöldum aðilum
megi hæst vera sem hér segir:
Bifreiðaverkstœði, vélsrniÖjur og blikksmiöjur:
Sveinar Kr. 44.35 Kr. 62.05 Kr. 79.80
Aðstoðarmenn — 32.95 — 46.10 — 59-25
Verkamenn — 32.25 — 45 -15 — 58.00
Verkstjórar 1— 48.80 — 68.25 — 87.80
Söluskattur og útflutningssjóðsgjald er innifalið í
verðinu.
SkipasmíðastöSvar:
Sveinar . Kr. 41.70 Kr. O 00 Kr. 75.10
Aðstoðarmenri . — 30.20 42.30 — 54.40
Verkamenn . — 29-55 — 41.40 — 53=25
Verkstjórar . — 45.85 64.25 — 82.60
Reykjavík, 8. júlí 1958.
V erðlagsst jórinn.
Nr. 14/1958.
TILKYNMNG
Innflutningsskrifstofan liefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á gasolíu, og gildir verðið hvar sem er á
landinu:
Heildsöluverð, hver smálest ... Kr. 970.00
Smásöluverð úr geymi, hver lítri .... — 0.96
Heimilt er að reikna 5 aura á lítra fyrir útkeyrslu.
Heimilt er að reikna 15 aura á lítra í afgreiðslugjald
frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía afhent í tunnum má verðið vera 2 y2 eyri
hærra hver lítri.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 12. júlí
1958.
Reykjavík, 11. júlí 1958.
V erðlagsst jórinn.
- LISTIR OG MENNINGARMÁL
Framhald af 3. síðu.
halda uppi menningarlífi í
sveitum landsins? Jú, stofnað-
ur hefir verið félagsheimila-
sjóður og með aðstoð hans hafa
félagsheimili risið upp eins og
gorkúlur á haug á þriðju hverri
þúfu. Eru þau sums staðar svo
þétt, að samtök varð að gera,
jafnvel milli þriggja húsa, að
þar mætti ekkert fram fara í
tveimur samtímis. Er þá vand-
séð hvers vegna ekki mátti
hafa húsið eitt og hafa það
sameign fleiri sveitarfélaga. —
Mörg þessi hús eru stór gím-
öld illa máluð og illa búin
húsgögnum, sömuleiðis illa
búin ljósatækjum og sviðsút-
búnaði.
Hugmyndin um félagsheim-
ilasjóð er allrar virðingar verð,
en hefir verið herfilega mis-
notuð. Má þar t. d. minna á,
að hér í Borgarfjarðarsýslu eru
risin 6 félagsheimili og eru þó
3 hreppar ennþá útundan. En
í Mýrasýslu og Dalasýslu er
ennþá ekkert félagsheimili. Er
vandséð, hvað hreppur með 20
fjölskyldum á að gera við fé-
lagsheimili yfir 200 manns.
Er það og líka sorgleg stað-
reynd, að verulegur hluti þeirr-
ar istarfsemi, sem fram fer í
húsum þessum á lítið skylt við
menningu, og er einn svart-
asti bletturinn í skemmtanalífi
þessarar þjóðar. Einkanlega á
sumrin fara þarna fram dans-
leikir um hverja- helgi. Eru
þeir oftast stjórnlausir, lög-
gæzlulausir og jafnvel mörg
dæmi þess, að dyraverðirnir
gátu ekki einu sinni haldið sér
allsgáðum kvöldið á enda. Er
það staðreynd, sem ég þori
hiklaust að bera fram hér, að
á sveitasamkomum í þessu hér-
aði hefi ég séð ljótari hluti en
ég hefi nokkurs staðar séð í
forvitnisheimsóknum til al-
ræmdra skemmtistaða erlendis.
Enda má óhikað fullyrða að
þetta skemmtanahald eins og
það hefir verið rekið er smán-
arblettur á þjóð vorri, og það
er skylda vor menntamanna
út um byggðir landsins að
reyna að spyrna við fótum. —
Það er t. d. algengt að selja
inn á svona samkomur tvöfalt
fleira fólki en fyrir komast í
húsinu hverju sinni. Löggæzla
er oftast engin og geta menn
framið hverja þá óhæfu sem
þá lystir án þess nokkur skipti
sér þar af. Samkomur þessar
eru oft að mjög óverulegum
hluta sóttar af innansveitar-
fólki, heldur miðast stærð hús-
anna á hverjum stað oft við
það að geta teymt þangað
nokkur hundruð unglinga frá
nærliggjandi kaupstöðum, því
hér er þeim boðið upp á at-
hafnafrelsi til að gera hluti,
sem þeir annað hvort ekki
fengju í sínu heimaplássi, eða
fengju sig ekki til að gera. Er
þarna vegið aftan að foreldrum
unglinga í kaupstöðum, sem
eiga margir nógu erfitt með að
verja börn sín fyrir hættum
bæjanna, en eiga þeim mun
erfiðara með að ná tugi kíló-
metra út fyrir sinn kaupstað.
Dyraverðir á sveitadansleikj-
um spyrja aldrei um aldur og
skipta sér lítið af því, á hvaða
stigi ölæðis samkomugestir
eru. Er það til dæmis hláleg
staðreynd fyrir oss Akurnes-
inga, að á undánförnum árum
hafa tugþúsundir króna verið
tíndar upp úr vösum okkar
unglinga til að byggja óþarf-
lega mörg og stór samkomu-
hús upp um allan Borgarfjörð,
en á sama tíma hafa aldrei
'verið til peningar til að byggja
félagsheimili á Akranesi. Við
þetta bætist það ranglæti, að
ekki er krafizt neins skemmt-
anaskatts af aðgangseyrinum
að skemmtunum sveitanna, en
félög kaupstaðanna verða að
borga háan skemmtanaskatt,
sem að miklu leyti gengur til
að byggja upp þessi félags-
heimili sveitanna, og sem ger-
ir það að verkum, að illmögu-
legt er að láta nokkra skemmt-
un í kaupstað standa undir sér,
og þá allra isízt þær, sem til
menningarauka horfa.
Sveitaskemmtanirnar
og kaupstaðaungling-
arnir.
Ég hefi stundum rætt við
menn, sem staðið hafa fyrir
vansæmandi skemmtunum í
sveitum og álasað þeim. Þeir
hafa þá venjulega svarað því
til, að það sé kaupstaðaskríll-
inn sem komi og eyðileggi allar
skemmtanirnar. Þesisi afsökun
er að vissu marki rétt, en fellur
þó á þeirri staðreynd, að
skemmtanir þessar eru oft
rækilega auglýstar í útvarpinu
í þeim tilgangi að draga að sér
þennan svokallaða kaupstaðar-
skríl, sem oft eru börn :sóma-
fólks, sem ekki má vamm sitt
vita, ef til vill okkar börn, sem
hér erum. Það er lika sjaldan
gert mikið til að hafa áhrif á
hegðun þessara unglinga þegar
á staðinn er komið. Ævintýra-
þrá þeirra fær útrás í furðuleg-
ustu hlutum, sem þeir fremja
óttalausir vegna þess að ekkert
er að óttast á þessum stað. Mér
er minnisstætt, er ég var eitt
smn staddur á * einni svona
samkomu austur í Árnessýslu
fyrir nokkrum árum. Allróstu-
samt var orðið þegar snemma
kvölds og áttu þar drýgstan
þáttinn þrír ungir piltar, varla
meir en 16—17 ára. Þegar
framkoma þeirra og apalæti
keyrði úr hófi, gekk skyndi-
lega að þeim ungur innansveit-
armaður, tók tvo þeirra sitt
undir hvora hendi, hélt á þeim
út úr dyrunum og fleygði þeim
orðalaust fram af tröppunum
niður á mölina fyrir neðan.
Síðan bjóst hann til að ná í
þann þriðja, en hann baðst
þá vægðar og kaus heldur að
hafa hægt um sig. Fékk nú
samkoman allt annan svip' og
skemmtu menn sér friðsam-
lega það sem eftir var kvölds,
en þremenningamir þorðu ekki
að láta á sér kræla. Það er
alkunna, að oft stunda hópar
pilta þá íþrótt að hleypa upp
samkomum og eyðileggja þær
úti á landsbyggðinni. Þetta eru
einhverjir rétthæstu menn
þjóðfélagsins, og er vafasamt
að þjóðfélagið fari eins mild-
um höndum um nokkra aðra
stétt manna. Þessa menn verð-
ur helzt að skjalla og hlaða
upplognu hrósi til að hafa þá
góða. Lögregla — ef einhver
er — má alls ekki blaka við
mönnum þessum, ef þeir eru
barðir, er lögreglan ákærð um
harðýðgi, og þegar yfirvald í
einni sýslu greip til þess ráðs
isem er að mínu viti það bezta,
sem fundið hefir verið upp á
landi hér, en það var að stinga
þeim í poka, þótti það svo ó-
mannúðleg meðferð á slíkum
heiðursmönnum, að bannað var
að endurtaka það, en ekki bent
á neitt ráð er koma mætti í
staðinn. Eg hefi orðið langorð-
ur um þetta atriði vegna þess
að hér eru stödd yfirvöld fjög-
urra sýslna og langar mig til
að skora á þá að leggja hér
eitthvað til málanna í umræð-
unuim á eftir og benda á leiðir
til úrbóta. Ég veit, að ég mæli
fyrir munn margra kaupstaðar-
búa, þegar ég óska þess, að
unglingar kaupstaðanna flýi
ekki út í frelsi sveitalífsins til
að fremja athæfi á auglýstum
samkomum þar, sem þeir
myndu ekki leyfa sér á sam-
komum heima. tJr þessu mætti
vafalaust mikið bæta með auk-
inni löggæzlu. Það er a. m. k.
mín iskoðun.
FRÁ GAGNFR.SKÖLANUM Á AKRANESI
Þeir nemendur, sem ætla sér í framhaldsdeildir skól-
ans, þriðja og fjórða bekk, á komandi vetri, eru vinsamlega
beðnir að tilkynna það sem fyrst, og eigi síðar en 10.
september n. k. — Þeir, sem síðar sækja um, mega búast
við að fá ekki skólavist.
Þeir, sem setjast eiga í 2. bekk, þurfa ekki að sækja um,
en verða hins vegar að tilkynna, ef þeir flytjast burt,
eða fara í aðra skóla. — Innritun í 1. bekk verður aug-
lýst síðar, en hún fer fram, skv. venju, seint í september.
Gagnfræðaskólanum á Akranesi 28. júlí 1958
SKÓLASTJÓRI.