Bæjarblaðið - 06.11.1958, Blaðsíða 1
BÆJARBLAÐIÐ
8. árgangur.
Ákranesi, fimmtudaginn 6. nóvember 1958
11. lölublaÓ
LeikfÆkrnness 09 Hswlakórino
jSvnnir sýna (eikinn Mt Heidelberg
Uikstjód er Rognhildur ^tringrímsdóttir
BÆJAKBLAÐH)
fœst á eftirtöldiun stöðum
Bókaverzlun Andrésar
Níelssonar.
Veiöarfœrav. Azels
Sveinbjörnssonar,
Verzl. Einars ólafssonar.
Verzlunin Brú,
/J
Samvinna hefur tekizt milli Leikfélagsins og
Karlakórsins um sýningar á hinum vinsæla stúd-
entasjónleik og söngleik „Alt Heidelberg“. Þessi
leikur hefur verið sýndur nokkrum sinnum hér
á landi, en aldrei hér á Akranesi fyrr. — Æf-
ingar eru byrjaðar fyrir nokkru, og hefur Ragn
hildur Steingrímsdóttir verið ráðin leikstjóri.
„Alt Heidelberg“ er gam-
all þýzkur stúdentaleikur, sem
orðið hefur afar vinsæll, t. d.
verið kvikmyndaður nokkrum
La^fnringar hafa verið
jerðar á Bjarnalaug
Stundaskrá laugarinnar.
I tilefni af því, að nú er vetr-
artímabil Bjarnalaúgar byrjað
vil ég gefa bæjarbúum yfirlit
um á hvaða tíma laugin er op-
in fyrir almenning. Frá i. okt.
1958 til 31. maí 1959 verður
laugin opin sem hér segir:
Mánudaga kl. 5—8 síðd.
Þriðjudaga kl. 5—9.30 síði.
Miðvikudaga kl. 5—7 síðd.
Fimmtudaga kl. 5—9.30 síðd.
(frá kl. 8 f. konur eingöngu)
Föstudaga kl. 5—8 síðd.
Laugadaga kl. 1.30—7.15 e.h.
Sunnudaga kl. 10—12 árdegis.
Baðstofan verður opin:
Laugardaga kl. 1.30—7.15 e.h.
(karlar)
Fimmtudaga kl. 3—930 e.h.
(konur).
GeymiS íöfluna.
Skólarnir hafa laugina til af-
nota frá kl. 8 á morgnana til
kl. g e.h. alla daga nema laug-
ardaga, þá til hádegis. — Börn
innan fermingar fá ekki að-
gang að lauginni eftir kl. 7 á
kvöldin. Kvennatímar eru eft-
ir kl. 8 á fimmtudögum og ein-
göngu fyrir konur eldri en 17
ára. Og er konum bannað að
koma með börn með sér í þessa
tíma. — Sundæfingar Sund-
félagsins eru eftir kl. 8 þrjú
kvöld vikunnar. — Sértíma
baðstofu r hægt að panta aðra
daga en laugardaga og fimmtu-
daga. — Nánari upplýsingar
eru veittar í síma 218.
Árlega fara fram lagfæring-
ar, viðhald og endurbætur á
lauginni. I ára hafa þessar ver-
ið gerðar: Máluð böð og bún-
ingsklefar karla og kvenna,
máluð laugarþró og gólf, flísa-
lagt karlabað, settur nýr 18
fermetra olíuketill sem annast
alla hitun laugarinnar. En allt
rafmagn til hitunar var tekið
af lauginni vegna Sements-
verksmiðjunnar, laug þétt um
rennu og ýmislegt annað smá-
vegis hefur verið lagfært.
Lauslega áætla ég að þessi
endurbót kosti milli 50—60
þúsund krónur.
Vil ég nú beina þeim tilmæl-
um til allra baðgesta laugar-
innar, að þeir gangi vel um
húsakynni laugarinnar og fylgi
reglum hennar í hvívetna. —
Laugin hefur ekki efni á að
ráða sérstaka baðverði til að
líta eftir. Þess vegna verður að
treysta því, að hver og einn
hagi sér eins og reglur laugar-
innar mæla fyrir.
Akranesi 29/10 1938
Hallur Gunnlaugsson.
sinnum. M. a. var ensk gerð
hans sýnd hér í Bíóhöllinni í
fyrra.
Leikurinn gerist í þýzka há
skólabænum Heidelberg, og ber
nafn hans: „Gamla Heidel-
berg“ (Alt = gamall). Er mik
ill söngur, ást og rómantík í
honum.
Aðalpersónur eru tvær:
krónprins í einu af gömlu smá-
ríkjunum þýzku, sem sendur
er til háskólans í Heidelberg.
og Kata, stúlka, sem gengur
um beina í stúdentaknæpu.
glaðvær og góð ungmær.
Með henni og prinsinum
takast auðvitað heitar ástir og
heita þau hvort öðru eilifum
tryggðum. En örlögin og kring-
umstæðumar hafa ætlað þeim
annað hlutskipti en ævilanga
sambúð. Gleðin og rómantíkin
eru því harmi blandin.
Mörg sönglögin í Alt Heidel-
berg hafa náð miklum alþýðu-
vinsældum.
Hér munu þau Sigurborg
Sigurjónsdóttir og Baldur Ól-
afsson fara með aðalhlutverkin.
Það er mjög ánægjulegt til
þess að vita, að góð samvinna
hefir tekizt um þetta vinsæla
leikrit milli þessara tveggja
félaga, sem að listum vinna,
hvort á sínu sviði.
R. Jóh.
Ctför ólafs
FINSENS FYRRV.
HÉRAÐSLÆKNIS
var ger'Ó 18. f.m. aÖ viÖ-
stöddu fjölmenni.
Sóknarprestur, sr. Jón M.
Guðjónsson, flutti húskveðju
og jarðsöng, en prófastur, séra
Sigurjón Guðjónsson, flutti
ræðu í kirkju.
Vinir og ættingjar báru kist-
ima frá heimili hins látna að
kirkjunni; bæjarstjórn bar
hana í kirkju, en félagar í
Stúdentafélagi Akraness úr
kirkju. Tveir félagar úr sama
félagi stóðu heiðursvörð undir
fánum við kistuna við kirkju-
athöfnina. Finsen var heiðurs-
borgari bæjarins og heiðursfé-
lagi Stúdentafélagsins.
Karlakórinn Svanir söng í
kirkju, en kirkjukórinn í heima
-húsum og í Garðakirkjugarði.
Öll var athöfnin fögur og
virðuleg.
Annað slarfsár Tlámsflokka
Ahramss hcfsí í þcssari viku
Forstöðumaður: ÞORGILS STEFÁNSSON
Námsflokkar Akraness eru nú í þann veginn að
hef ja starfsemi sína. Munu um 130 manns þegar
hafa innritað sig, og má það teljast mjög góð
aðsókn. Enn eiga menn þess kost að innrita
sig, þó ekki lengur en til næstu helgar. Ættu
þeir, sem það ætla að gera, að hraða því og
gefa sig fram við forstöðumanninn. — En full-
skipað er í 2. flokk í ensku, í snið- og saumflokk
og bastvinnuflokk, og verður ekki tekið á móti
f leiri nemendum í þá flokka.
Fyrst störfuðu námsflokkar
hér í fyna undir stjórn Hans
Jörgenssonar kennara, en við
brottflutning hans úr bænum
tók Þorgils Stefánsson kenn-
ari við.
ÞORVALDUR ÞORVALDSSON:
Svípmyndir úr Norðurlandaför I. A.
Það var skömmu eftir síð-
ustu áramót, að Guðmundur
Sveinbjörnsscn, formaður I.A.
kom að máli við mig og bað
mig að skrifa vinabæjum okkar
á Norðurlöndirm og kanna
möguleikana á því að taka á
móti II. flokks knattspyrnuliði
héðan. Þessari málaleitan var
mjög vel tekið alls staðar, en
þar sem ekki voru tök á að
heimsækja alla vinabæina í
einmi ferð, varð að velja og
hafna. Fyrir valinu urðu
Narpes og Vástervik, þ. e. a. s.
vinabæir okkar í Finnlandi og
Svíþjóð. Hófust bréfaskriftir
milli mín og ákveðinna aðila
í bæjum þessum og var undir-
búningurinn hafinn ytra af
fullu kappi. Þeir menn, sem
ég skrifaðist á við um undir-
búning ferðarinnar, voru N. A.
Ingves bankastjóri í Nárpes og
Vilhelm Larsson skrifstofu-
stjóri á ráðningarskrifstofu
Vástervikborgar. Báðir þessir
menn eru ritarar í Norrænu
félögunum í bæjum þessum.
Reyndust þeir okkur seinna
mjög vel, svo og aðrir, er lögðu
okkur lið í ferðinni. Var ákveð-
ið, að ferðin skyldi hefjast héð-
an fimmtudag 28. ágúst og
heim skyldi komið með Gull-
fossi fimmtudag 18. september.
En áætlunin hjá sjálfum
mér breyttist skyndilega, þeg-
ar ég var beðinn að fara líka út
með meistaraflokksmönnum til
Noregs af sérstökum ástæðum
hálfum mánuði áður en hin
ferðin skyldi hefjast. Einnig
fóru 4 annars flokks piltar, sem
varamenn í Noregsferðina og
áttum við fimmmenningarnir
svo að hitta hina í Kaupmanna-
Framliald á 4. síðu
Skólanefnd Námsflokka
Akraness skipa: Njáll Guð-
mundsson skólastjóri, Ragnar
Jóhannesson, cand. mag. og
Þorgils Stefánsscn kennari.
Auglýst hefur verið kennsla
í eftirfarandi námsgreinum:
1. Islenzkar bókmenntir: (Leið-
beinandi: Ragnar Jóhannes-
son).
2. Danska: (kennari: Björgvin
Sæmundsson verkfræðingur)
3. Enska, 1. og 2. fl. (kennari:
Jón Ben. Ásmundsson).
4. Reikningur (kennari: Ingvar
Björnsson).
5. Vélritun (kennari: Öli örn
Ólafsson).
6. Hagnýt félagsfrœÖi og viÖ-
skiptamál, bókfœrsla (leiðbein-
andi: Valgarður Kristjánsson
cand juris).
7. SniÖ og saumar (leiðbein-
andi: Guðríður Svavarsdóttir).
8. Bast- og tágavinna (leiðbein-
andi: Sigrún Grmnlaugsdóttir).
9. Háttvísi og umgengnisvenjur
(leiðbeinendur: Ragnar Jó-
hannesson og Þórunn Bjarna-
dóttir).
Þessi flokkur telst aðeins 10
stunda námskeiÖ, hálft 'kennslu
-gjald.
Sjá nánar:
Grein á 3. síðu:
Námsflokkar og
starfsemi þeirra.