Skagablaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 3
Yfir 200 manns í hinu nýstofnaða skíðafélagi:
„Okkur vantar til
finnanlega snjó“
—segir Elís Þór Sigurðsson, formaiur félagsins
„Það sem okkur vantar tilfinn-
anlegast þessa stundina er snjór,“
sagði Elís Þór Sigurðsson, for-
Fimm í þjóð-
hátíðamefnd
Á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag
voru fimm manns kosin í þjóð-
hátíðarnefnd (17. júní nefnd).
Eru það eftirtaldir: Guðni Hall-
dórsson, Pálína Dúadóttir, Gunn-
ar Sigurjónsson, Magnús Gunn-
laugsson og Þorleifur Sigurðsson.
Auglýsið
íSkagablaðinu
maður félagsins og æskulýðsfull-
trúi bæjarins, er Skagablaðið
innti hann eftir því í vikunni hvað
liði framgangi hins nýstofnaða
Skíðafélags Akraness. Áhugann
vantar hreint ekki því rúmlega
200 manns hafa skráð sig í félagið.
Að sögn Elíss er meira en
helmingur félagatölunnar heilar
fjölskyldur og sýnir það kannski
allra best hversu mikil fjölskyldu-
íþrótt skíðaiðkunin er. Margir
félagsmanna koma innan af
Grundartanga.
Til þessa hafa verið farnar
áætlunarferðir í Skálafell, eitt af
skíðasvæðum þeirra Reykvík-
inga, og hafa þær gefist ágætlega
að sögn Elíss. Hins vegar sagði
hann það vera eitt meginmark-
mið félagsins að koma sér upp
eigin aðstöðu og skíðasvæði.
Það svæði, sem Skagamenn
hafa mestan áhuga á að nýta sér
er á Drageyri en Borgnesingar
vilja fremur reyna við Skessu-
hornið. Þar er alltaf nægur snjór
en ókostirnir eru þeir að þar skín
nánast aldrei sól og að auki þyrfti
að leggja átta kílómetra langan
veg yfir mýrarfláka til þess að
gera aðkomuna að svæðinu við-
unandi.
Skipuð hefur verið sameiginleg
nefnd Akurnesinga, Borgnesinga
og hreppanna um þetta mál og
eiga Akurnesingar meirihluta í
nefndinni.
Vörubílar á borð við þentian eru óvinsælir í íbúðahverfum.
Umferð þungaflutningabfla
um íbúöahverfi gagmýnd
Á fundi byggingarnefndar
Akraneskaupstaðar þann 31. jan-
úar sl. var tekið fyrir bréf frá
félagsmálaráðuneytinu varðandi
kæru Björns Sigurbjörnssonar. í
Svœðið, sem rætt er um ífréttinni.
Græna byttingin á enn vi&reisnar von:
Vísir að almennings
garði við Amardal
- framkvæmdir hefjast strax á þessu ári
Ákveðið hefur verið að
rækta upp svæðið fyrir framan
Arnardal og gera þar einhvers
konar vísi að garði eða úti-
vistarsvæði fyrir almenning. Er
kostnaður við frumfram-
kvæmdir áætlaður 165.000
krónur. Svæðið sem um ræðir
er mjög stórt, nær yfir mörg
þúsund fermetra.
Hugmyndin mun vera sú, að
planta limgerði meðfram allri
Kirkjubrautinni, þ.e. frá
Verkalýðshöllinni svokölluðu,
allt upp að horni Kirkjubrautar
og Háholts. Frá því sama horni
yrði síðan lagður gangstígur,
horn í horn á svæðið, sem
myndi enda við Arnardal.
Að því er Elís Þór Sigurðs-
son, æskulýðsfulltrúi, sagði
Skagablaðinu var gert ráð fyrir
stórhýsi á þessari lóð allt þar til
Arnardalur sótti um hana með
framangreinda hugmynd að
leiðarljósi. Var umsóknin sam-
þykkt enda verði það m.a.
hlutverk Vinnuskólans að
byggja upp þetta svæði.
Ekki er hægt annað en að
fagna þessum framkvæmdum
því í núverandi ástandi er svæð-
ið til lítils augnayndis. Ef vel
tekst til gæti þarna orðið snotur
garður fyrir bæjarbúa en slíkir
eru harla fáir hér í bæ.
framhaldi af bréfinu var bygg-
ingafulltrúa falið að skrifa Þórði
Þórðarsyni og benda honum á
ákvæði lögreglusamþykktar
Akraness sem og ákvæði aðal-
skipulags Akraneskaupsstaðar,
sem bönnuðu að nota lóðina
Sóleyjargötu 20 undir bflastæði.
Steinunn Sigurðardóttir (F)
vakti máls á þessu bréfi á bæj-
arstjórnarfundi og kvaðst vonast
til þess að loks yrði gert eitthvað
ákveðið í því að benda Þórði á að
hann væri að brjóta lög og reglur
með því að geyma bíla sína á
áðurnefndum stað.
Hörður Pálsson (S) sagðist í
sjálfu sér geta tekið undir orð
Steinunnar, en benti réttilega á
að það væru fleiri undir sömu sök
seldir. Allt of algengt væri að
stórir og þungir flutningabílar,
sem væru í ofanálag illa þefjandi
við gangsetningu, væru inni í
miðjum íbúðarhverfum. Þetta
væri síður en svo til fyrirmyndar.
Skagablaðið getur bætt því við
hér í lokin án þess nokkuð sé
verið að mæla því bót að flutn-
ingabílar séu geymdir inni í miðj-
um íbúðarhverfum bæjarins, að
vitað er til þess að ÞÞÞ reyndi um
skeið að geyma bíla sína á lóð,
sem fyrirtækið á við Esjubraut.
Það reyndist hins vegar ógjörn-
ingur því bílarnir urðu fyrir stór-
tjóni. Rúður og ljós brotnar og
annað eftir því. Gáfust Þórður og
fjölskylda hans að vonum upp á
því að geyma bílana þar.
Konur hæfari sflóm-
endur en kariamir?
Eru konur hæfari stjórnendur
en karlar? Góð spurning kynni
einhver að segja en kannski er
eilítið meira til í þessu en bara
spurningin ein.
Á fundi bæjarstjórnar á þriðju-
dag var gerð grein fyrir rekstri
bæjarsjóðs á síðasta ári og kom
þá fram, að áætlun hefði verið
ótrúlega nærri lagi, þ.e. staðist í
öllum megindráttum.
Engilbert Guðmundsson (AB)
tók til máls eftir að bæjarstjóri
hafði farið lauslega yfir tölur og
sagði að sér sýndist í fljótu bragði
þær stofnanir bæjarins, sem
stjórnað væri af konum, kæmu
betur úr en aðrar. Varpaði Eng-
ilbert því fram við sama tækifæri,
að e.t.v. væri ástæða til þess að
hampa konum meira í stjórnun-
arstörfum en verið hefði.
Fjölbraut fær tölvur
Þessa dagana stendur til að
endurnýja tölvubúnað fjölbrauta-
skólans að talsverðu leyti og er
þar um að ræða framkvæmd upp
á 600.000 krónur. Greiðir Akra-
neskaupstaður 40% þeirrar upp-
hæðar en ríkið afganginn. Sam-
kvæmt heimildum Skagablaðsins
eru kaup þessi liður í „pakka“-
samningi á vegum menntamála-
ráðuneytisins.
3