Skagablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 9
Meðfylgjandi myndir tók hann
Árni Ijósmyndari á öskudaginn
og þær segja meira en mörg
orð, eða hvað finnst ykkur?
„Upp er runninn öskudagur
ákaflega skír og fagur„.“
— Skagablaöið fylgist með húllumhæi bama bæjarins þennan merkisdag
Öskudagurinn var haldinn með pomp og prakt hér á Akranesi þrátt
fyrir heiðarlegar tilraunir veðurguða til að hindra útisamkomuna. Það
vantaði lítið upp á raunverulega karnivalstemmingu; litríkur farði og
skrautlegir búningar, skrúðganga undir dynjandi trommuleik og
spenna í loftinu setti hátíðarsvip á bæinn. En skortur á sól og
sambatakti var það sem gerði herslumuninn. Hvoru tveggja ku vera
ómissandi á slíkum hátíðum.
En hin nýja öskudagskynslóð
lét það ekki aftra sér, fyrstu
furðufatafríkin sáust fljótlega
eftir að búðir opnuðu og síðan
var stanslaus umferð galdra-
manna og kvenna, kúreka, kell-
inga, trúða, súpermanna og
sjóræningja auk þeirra hverra
búningar voru óskilgreinanleg-
ir. Þetta lið söng fyrir af-
greiðslufólk í verslunum og
stofnunum, verksmiðjum og
öðrum vinnustöðum, oft gegn
greiðslu í freistandi varningi
svo sem límmiðum, nammi og
glansmyndum.
Hápunktur dagsins var þegar
kötturinn var sleginn úr tunn-
unni niður á torgi. Tunnan
brast að lokum eftir ótal stór
(og smá) högg og út hrundi
tuskuköttur. Tunnukóngurinn
Elmar Gunnarsson fékk að
halda gripnum í heiðursskyni.
Um þetta leyti fór veðrið
einnig að rífa sig upp, það fór
að hellirigna og rokið færðist í
aukana. Krakkarnir voru samt
ekki aldeilis á því að fara heim
strax, en upp úr fjögur hafði þó
fækkað ískyggilega á götunum
og eftir fimm var undantekning
að mæta þó ekki væri nema
pönkara eða fínum frúm í flugu-
vigt að berjast gegn vindinum.
STZh
Föstudagur:
Kl. 21.00 Harry and son
Kl. 23.15 Final mission
Sunnudagur:
kl. 14.30 Geimstríð II
Kl. 21.00 Uppgjörið (Thehit)
Kl. 23.15 Final mission
Mánudagur:
Kl. 21.00 Uppgjörið
Næsta mynd:
Heiðurskonsúllinn
Ef ykkur liggur
eitthvað á hjarta
þá er síminn:
2261
STALGRINDAHUS
• Mjög hagstætt verð
• Selt á 6Hum byggingarstigum og
í einingum
• Framleiðum fiekahurðir
• ÖH málmsuða og verkstæðisvinna
• Altt fagmenn (hvað annað?)
300 AKRANESI
ÆGISBRAUT 9
frá tveimur sjdnarhornum.
STUÐLA
STAL I hf
9