Skagablaðið - 01.03.1985, Side 10
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER
2261
ASKRIFTAR-
SÍMINN ER
2261
Hefur játað að
hafa kveikt í
Maðurinn, sem handtekinn var
hér á Akranesi á fyrra laugardag,
grunaður um að hafa kveikt í
stjómunarálmu Brekkubæjar-
skóla, hefur játað á sig íkveikj-
Ekki
flensa
en vírus
Vegna orðróms um flensu, sem
væri að ganga í bænum og leggð-
ist sérlega þungt á konur og börn,
höfðum við samband við Reyni
Þorsteinsson og spurðum nánar
út í þetta.
Hann sagði, að þetta væri
reyndar ekki inflúensa sem væri
að ganga, heldur annar vírus-
sjúkdómur með svipuðum ein-
kennum. Þau eru höfuðverkur,
hiti og beinverkir, sem leggst
helst á yngra fólk og börn. Að-
spurður um hvað væri helst til
ráða gegn veiki þessari vildi hann
helst benda fólki á að fara vel með
sig á allan hátt og taka magnyl eða
panodil við verkjum og hita.
Að öðru leyti kvað hann heilsu-
far Skagamanna hafa verið ágætt
þar til fyrir svona 4 vikum þegar
þessi vírus fór á kreik.
Lögreglunni barst á sunnu-
dag tilkynning um mann, sem
var önnum kafinn við að stela
krómhringjum af bifreið
einni í bænum. Voru það
athugulir nágrannar, sem
létu lögregluna vita, þar sem
þeir töldu hringina þarna
vera á leið í eigu einhvers,
sem ætlaði að eignast þá með
vafasömum hætti.
Eitthvað hefur þjófurinn
verið óvarkár um sig því til
hans sást, þar sem hann tók
hringina af bíinum og gekk
síðan með þá spölkorn og
lagði í farangursgeymslu bif-
reiðar sinnar. Að því búnu
lokaði hann skottinu og hélt
inn í nærliggjandi hús. Það
var því lítið annað fyrir lög-
regluna að gera en banka þar
upp á og afgreiða málið.
Þjófnaðurinn hefur verið
kærður.
una. Staðfesti lögreglan þetta í
samtali við Skagablaðið í gær.
Umræddur maður hefur áður
komið við sögu lögreglunnar.
Eins og Skagablaðið skýrði frá
fyrir réttri viku varð mikið tjón í
eldsvoðanum, en að sögn um-
boðsmanns Brunabótafélagsins
liggja ekki fyrir neinar endan-
legar tölur um tjónið. Matsmaður
kom úr Reykjavík til þess að
kanna skemmdir.
Sveit
ÉlwM
Freyr Njarðarson las úr bókinni „Ekkert mál" ogsvaraðifyrirspurnum.
Fíkniefnadagur í Fjölbrautinni á miðvikudag:
Sveit Alfreðs Viktorssonar
héðan frá Akranesi varð Vestur-
landsmeistari í bridge um síðustu
helgi. Unnu Alfreð og félagar
með miklum yfirburðum, hlutu
190 stig. Næstu sveitir, sem komu
úr Borgarfirði og Borgarnesi,
voru með 160 og 159 stig.
Þessi sigur sveitarinnar gefur
henni rétt til að taka þátt í
undankeppni íslandsmótsins fyrir
hönd Vesturlands. Auk Alfreðs
spiluðu eftirtaldir í sveitinni: Karl
Alfreðsson, Guðjón Guðmunds-
son, og Ólafur G. Ólafsson.
Island ekki of fámennt til
að heróín fái þrifist hér
— sagði Freyr Njarðarson, höfundur bókarinnar „Ekkert mál“
Sú staðhæfíng, að ísland sé of fámennt rfki til þess að stórfelld
neysla og sala heróíns geti þrifist hér, er argasti misskilningur að mati
Freys Njarðarsonar, annars höfundar bókarinnar „Ekkert mál“, sem
kom út fyrir jólin og fjallaði um miskunnarlausan heim eiturlyfjanna.
Freyr samdi bókina í samvinnu við föður sinn og þótt margir haldi því
fram, að í henni sé verið að lýsa ævi Freys, hefur það aldrei verið
staðfest og hann sjálfur neitað að ræða það.
Freyr las upp úr bókinni sinni á sýnd í Bíóhöllinni. í henni er
sérstökum fíkniefnadegi í Fjöl-
brautaskóla Akraness á miðviku-
dag. Frá klukkan 11 til 15 var
stöðug dagskrá um eiturlyf og kl.
17 var myndin Dýragarðsbörn
fjallað á raunsæjan en átakan-
legan hátt um unglinga, sem
ánetjast eiturlyfjum, sálarkvölum
þeirra og baráttu við að losna úr
viðjum eitursins.
Bókin „Ekkert mál“ fjallar ein-
mitt um sama viðfangsefni og
kvikmyndin Dýragarðsbörn, þ.e.
heróínneyslu. Eftir að hafa lesið
upp úr bókinni sat Freyr fyrir
svörum og var þá m.a. spurður
hvort hann væri sjálfur aðalper-
sóna bókarinnar. Hann vildi ekki
segja að svo væri en sagði atburði
bókarinnar raunverulega. Neit-
aði að öðru leyti að tjá sig um
einkamál sín, m.a. hvort hann
hefði sjálfur neytt heróíns enda
Þorgeir Ástvaldsson um slæm hlustunarskilyrði rásar 2:
„Kann ekki neina
skýringu á þessu“
„Nei, ég kann ekki neina skýringu á þessu,“ sagði Þorgeir
Astvaldsson, forstöðumaður rásar 2, er hann sat fyrir svörum í
morgunþætti rásar 2 á þriðjudag, og svaraði spurningum hlustenda.
Ofangreint svar var við spurningu frá hlustanda rásar 2 á Selfossi, sem
kvartaði sáran undan lélegum hlustunarskilyrðum.
Það eru fleiri en Selfyssingar,
sem kvartað hafa undan lélegum
hlustunarskilyrðum rásar 2 og
erum við Skagamenn sennilega
þar í fylkingarbrjósti og það ekki
að ófyrirsynju. Hér í bæ þurfa
menn að vera vopnaðir öflugum
loftnetum til þess að ná útsend-
ingum stöðvarinnar en þó mun
það nokkuð misjafnt eftir bæjar-
hverfum. Á sínum tíma var mál-
inu skotið til bæjarstjórnar, sem
aftur óskaði eftir úrbótum í þessu
efni. Enn hefur ekkert gerst.
Þorgeir Ástvaldsson sagði einn-
ig í umræddum þætti, að hann
hefði leitað álits Pósts og síma á
þessum vanda en hér virtist um
vandamál tæknilegs eðlis að
ræða, sem erfitt væri að leysa.
Hlustunarskilyrði eru slæm víðar
en á landsbyggðinni. Þess eru
mörg dæmi, að útsendingar rásar
2 hreinlega „týnist" hér og þar á
höfuðborgarsvæðinu og stafar
það af því að FM-bylgjan er
endurvarpsbylgja og má því lítið
verða á vegi hennar ef það á ekki
að hafa áhrif á útsendingarskil-
yrðin.
kæmi það engum við nema hon-
um sjálfum.
Eins og vænta mátti voru um-
ræður fjörugar og snerust um
tíma um ástand mála hérlendis.
Freyr fjallaði lítillega um það og
taldi tölur DV um neyslu og
fótfestu fíknefna vera rhjög
óáreiðanlegar og hefði litla trú á
sannleiksgildi þeirra. Hann sagði
þá íslendinga, sem ánetjast hefðu
heróíni, skipta tugum. Oftast
gerðist slíkt erlendis en þeit sem
ánetjuðust drægju fljótlega aðra
með sér til þess að fjármagna
eigin neyslu. Sem dæmi um
hversu mikið fjármagn væri í
umferð í fíkniefnaheiminum
nefndi hann að söluverð heróín-
gramms hér væri 2.500-3.000
krónur en væri keypt erlendis á
sem svaraði 200 krónum.
Áður en Freyr las upp úr
bókinni höfðu þrír fyrirlesarar
frætt nemendur um skaðsemi
fíkniefna. Stefán Sveinsson,
læknir við Sjúkrahús Akraness,
fræddi nemendur um tegundir
eiturefna, áhrifum þeirra og af-
leiðingar. Ómar Ægisson, starfs-
maður hjá SÁÁ, sagði frá reynslu
sinni af neyslu vtmuefna og Edda
Ólafsdóttir, starfsmaður útideild-
ar í Reykjavík, lýsti starfsemi
deildarinnar og reynslu unglinga
af neyslu fíkniefna.
Almenn ánægja mun hafa verið
með dagskrána á miðvikudag.
Hugmyndin kom upp fyrir 10
dögum eða svo og var hrundið í
framkvæmd á mettíma. Báru
kennarar veg og vanda af skipu-
lagningu.