Skagablaðið - 15.03.1985, Síða 3
Nýr veitingastaður - Barfaró:
„Fæ fólk á öllum
aldri hingai"
- segir eigandinn, Hanna Rúna Jóhannsdóttir
Þá eru það listar mynd-
bandaleiganna rétt eina ferð-
ina en að þessu sinni eru
þeir aðeins tveir og verður
svo um ókomna framtíð, þar
sem Ás hefur dregið sinn lista
til baka. Við orðlengjum
þetta ekki frekar en vindum
oss af stað.
Skaga-Video
1. (5) Strumparnir
2. (1) Hunter
3. (-) The naked face
4. (-) Mister T
5. (-) Under the volcano
6. (-) Mr. Horn
7. (-) Summer girl
8. (-) Benny Hill Show
9. (2) Augu Láru Mars
10. (3) Cujo
VHS-videóleigan
Háholti 9
1. (1) Chiefs, I II
2. (2) í blíðu og stríðu
3. (3) An officer & a gentleman
4. (4) Princess Daisy
5. (5) Ertu blindur maður?
6. (8) Bloodline
7. (-) Scarface
8. (-) Gambler I-III
9. (-) Beat Street
10. (-) The woman in red
Ekki ber á öðru en nýtt
efni streymi inn í báðar leig-
urnar því hjá Skaga-videó eru
eigi færri en 6 nýjar myndir
og hjá Vilmundi í Háholtinu
eru 4 nýjar. Margar af nýju
myndunum á leigunum eru
nánast nýjar af nálinni og
virðist þjónustan sífellt vera
að aukast.
„Af hverju Barbró? Bara, ég
rakst á þetta nafn og það heillaði
mig,“ sagði Hanna Rúna Jó-
hannsdóttir er Skagablaðið leit
inn til hennar á mánudagskvöld
til þess að fá sér í svanginn og
fræðast örlítið um þessa nýjustu
viðbót í matsölumenningu bæjar-
ins.
Barbró var opnaður á sunnu-
dag kl. 14 og hér er um lítinn
veitingastað að ræða. Hann tekur
um 20 manns í sæti og matseð-
illinn er einfaldur. Smáréttir og
kaffibrauð er uppistaðan en einn-
ig er þarna selt sælgæti, tóbak og
gosdrykkir.
Þegar Skagablaðið leit inn var
salurinn þéttskipaður og bar ekki
á öðru en allir væru í óða önn að
raða í sig veitingunum. Hanna
Rúna var sjálf við afgreiðslu
ásamt tveimur börnum sínum,
Rakel og Birni Gústaf Hilmars-
börnum. Eins og alls staðar þar
sem Hanna Rúna kemur nærri er
snyrtimennskan í hávegum höfð
og þar er Barbró engin undan-
tekning.
Veitingasalurinn er skemmti-
lega innréttaður og rauðir og
hvítir litir eru þar ráðandi. Mikið
er af blómum í salnum og litlir
blómapottar á snotrum hillum í
gluggunum setja svip á umhverf-
ið. Inn af veitingasalnum er snyrt-
ing fyrir bæði kynin.
„Þetta fór nú rólega af stað í
gærdag,“ sagði Hanna Rúna,“ en
var ágætt þegar leið á kvöldið. f
dag hefur svo verið nóg að gera og
ég er mest ánægð með að fá
hingað fólk á öllum aldri.“
Veitingastaðurinn Barbró er
að Skólabraut 37 og þar er opið
frá 11 á morgnana til 21 á kvöldin.
Skagablaðið mælir eindregið með
því að bæjarbúar lfti þarna inn í
kaffi eða mat því ef marka má
kínversku vorrúllurnar og með-
lætið sem Skagablaðsmenn sporð-
renndu ætti enginn að vera svik-
inn af heimsókn í Barbró.
— SSv.
Hanna Rúna Jóhannsdóttir við afgreiðsluborðið í nýja veitinga-
staðnum. Henni til hvorrar handar eru börnin Rakel og Björn Gústaf.
Stærðir Fæst í Fæst í
frá 29-35 3 litum 3 litum
Sendum gegn póstkröfu
Staðarfell,
skóverslun - Sími 1165 - Akranesi
Fermiugarskóruir
ern famir að koma í verslunma
Hér að neðan getur að líta örlítinn hluta úrvalsins:
Verðlaunagetraun
P
Samvinnuferóa/Landsýnar, Skagablaðsins og Skáta-tívolísins
7. Hægt er að auðvelda sér greiðslu ferðakostnaðar með því að beita hyggjuvitinu eilítið.
Samvinnuferðir/Landsýn bjóða upp á slíka möguleika, hvað kallast sparnaðarfyrirkomulagið?
Svar: .......................................................................
8. Ferðir Samvinnuferða/Landsýnar til Rimini/Fticcione hafa aflað sér fádæma vinsælda. Þar er ekki
aðeins látlaus sól og sumar heldur er boðið upp áfjölbreyttar skoðunarferðir. Ein þeirra er til borgar,
þar sem menn aka ekki um göturnar, heldur sigla. Hver er þessi sögufræga borg?
Svar: .......................................................................
9. Sæluhúsin í Hollandi slógu eftirminnilega í gegn í fyrra. Húsin í Kempervennen þóttu frábær en í
sumar bjóða Samvinnuferðir/Landsýn ekki bara upp á aðstöðuna í Kempervennen heldur einnig á
nýjum stað. Hver er hann? Svar: ..........................................
• Svörin við spurningunum er að finna í hinum nýja og glæsilega bæklingi
Samvinnuferða/Landsýnar, sem hægt er að nálgast í versluninni Óðni,
Kirkjubraut 5.
• Klippið þennan seðil út úr Skagablaðinu og geymið þar til sá síðasti hefur birst en
alls verða getraunaseðlarnir 3. Heftið þá síðan saman, merkið ykkur og skilið í þar
til gerðan kassa á Skáta-tívolíinu þann 17. mars.
jopp-ny*
videó
3