Skagablaðið - 15.03.1985, Síða 4
i-E H (S □ E E ® 11E] [d] [u] H-,
Skagamenn eiga von á góðum
gestum á mánudag en þá kemur
hingað 10-12 manna hópur kín-
verskra listamanna. Hópurinn
mun að einhverju leyti koma
hingað fyrir tilstilli forráðamanna
kórs Oldutúnsskóla í Hafnarfirði,
sem hélt ■ fyrra í eftirminnilega
tónleikaferð til Kína.
Skólanemendur munu fá að
njóta hæfileika kínverjanna á
sjálfum mánudeginum þar sem
þeir munu fara um og kynna
hljóðfærin sín og tónlist.
Um kvöldið kl. 20.30 verður
svo efnt til tónleika í Bíóhöllinni.
Er aðgangseyrir kr. 200 en kr. 100
fyrir skólafólk. Fyrir félaga í
tónlistarfélaginu eru þetta síð-
ustu tónleikar starfsársins.
Rétt er að hvetja bæjarbúa til
þess að berja þessa snillinga aug-
um því ef marka má fyrri heim-
sóknir listamanna frá milljarða-
ríkinu Kína verður enginn svik-
inn af kvöldstund í návist þeirra.
Bjóðum mjög ódýrar
ferðir til Nallorca.
Gerið verðsamanburð.
OTCO<VTHC
• Stóra myndin sýnir hið glæsilega íbúða-
hótel Royal Playa de Palma. Innfellda mynd-
in er úr einni stúdíóíbúðanna á hótelinu.
AKRANESUMBOÐ
Sveinn Guðmundsson
Skólabraut 31, s. 2230
Breiðin lokuð
I.esandi skrifar:
Einn góðviðrisdaginn núna
fyrir stuttu kom í heimsókn til
mín hingað á Skaga gamall
Akurnesingur, brottfluttur fyr-
ir 30 árum. Við ókum eins og
gengur vítt og breitt um bæinn
því hann langaði að skoða sem
flest í sínum gamla bæ. Einn af
þeim stöðum, sem hann langaði
að sjá, var Breiðin og gamli
vitinn. Ég taldi það ekki mikið
mál en átti eftir að komast á
aðra skoðun áður en yfir lauk.
Þegar komið var niður á
Breiðina blasti við manni 2-3
metra há girðing, sem liggur úr
fiskverkunarhúsi í suðri og
þvert yfir Breiðina í girðingar,
sem olíufélögin tvö hafa reist
um athafnasvæði sín. Mikið
hlið er þarna á veginum, sem
liggur fram Breiðina, en ekki
var fært þar um því hliðið var
harðlæst.
Ég vildi ekki gefast upp og ók
því vestur fyrir tankinn sem
Esso á og hugðist fara fjöruna
fyrir neðan hann og frameftir.
Ékki höfðum við lengi gengið
er sú leið lokaðist því þarna
gengur sjórinn upp að steyptum
vegg sem er undir girðingunni,
sem umlykur áðurnefnt svæði
Esso. Að sunnanverðu verður
ekki farið ef hásjávað er því
húsin eru byggð alveg niður að
sjó þeim megin. Það fór því
aldrei svo að þessi aldni heiðurs-
maður gæti gengið um gamlar
æskuslóðir sínar.
Nú væri fróðlegt að vita
hverjum þessi háu girðingar-
mannvirki eiga að þjóna. Ég
gæti sætt mig við girðingarnar í
kringum tankana án athuga-
semda úr því sem komið er, en
að girða af Breiðina án þess að
hægt sé að komast þar um finnst
mér einum of langt gengið. Mér
finnst alveg sjálfsagt að ekki sé
hægt að aka þar um nema af
þeim sem hafa lykil að hliðinu
góða en að hafa smá glufu á
girðingunni fyrir gangandi
finnst mér ekki vera nema sjálf-
sögð mannréttindi.
Mér hefur alltaf fundist mjög
skemmtilegt að ganga fram að
vitanum og njóta þar ágætis
útsýnis og rólegheita. Fuglalíf
er þama mjög fjölbreytt og
einkum eru kvöld- og morgun-
stundir á vorin skemmtilegar
þarna niðurfrá. Nú vil ég biðja
hlutaðeigandi að rjúfa smá-
glufu á girðingarmúrinn þannig
að hinn aldni vinur minn geti
komist niður að vitanum næst
þegar hann verður hér á ferð.
Um leið yrði komið til móts við
okkur náttúruunnendur á Akra-
nesi.
STÁLGRINDAHÚS
• Mjög hagstætt verð
• Seit á öllum byggingarstigum og
í einíngum
• Framleiðum flekahurðir
• Öli málmsuða og verkstæðisvinna
• Alit fagmenn (hvað annað?)
Myrtdimar sýna 220mJ stálgrindahús frá Stuðlastáli
frá tveimur sjónarhornum.
STUÐLA
||STAL|hf
ÆGISBRAUT 9 - 300 AKRANESl
SÍMI U23
Guðlaug
var ráðin
Guðlaug Bergþórsdóttir hefur
verið ráðinn afgreiðsluritari hjá
Akraneskaupstað og leysir hún
Ingibjörgu Björnsdóttur af hólmi
í því starfi. Ingibjörg tekur við
starfi launafulltrúa bæjarins af
Sigurbirni Sveinssyni, sem svo
aftur er að hefja störf hjá varn-
arliðinu.
Starf afgreiðsluritara virðist
vera með eindæmum eftirsóknar-
vert því alls barst 21 umsókn, þar
af ein frá karlmanni.
Esja lestaði
lOOOtunnur
Strandferðaskipið Esja lagðist
að bryggju á mánudag til þess að
taka um eitt þúsund tunnur af
saltsíld frá HB & Co., sem fara
áttu til niðursuðu hja K. Jónsson
á Akureyri. Alls voru saltaðar um
11.500 tunnur af síld fyrir K.
Jónsson hja HB & Co. og hefur
umtalsverður hluti þess magns
þegar verið fluttur norður.
4