Skagablaðið - 15.03.1985, Page 8
„Viöse mjurn
betri lö n “ Ml
—Skagablaðið ræðir
við eina af unglinga-
hljómsveitum
bæjaríns, F-929
í bænum er starfandi unglinga-
hljómsveit að nafni F-929. Með
talsverðri fyrirhöfn náði ég upp-
lýsingum um nafn og númer eins
meðlima hennar. Ég hringdi og
spurði hvenær þeir æfðu, við-
komandi var ekki viss en bauðst
til að láta mig vita. Nú, ég
þakkaði fyrir og kvaddi, en var
varla búin að leggja á og snúa mér
við þegar vinurinn hafði skipulagt
æfingu og hringt aftur.
Síðan mætti ég á stefnumótið í
brunagaddi með kúlupennann
milli tannanna en blm. möppuna
á bögglaberanum, og bjóst við
ærandi hljómsveitaræfingu.
Drengirnir sátu hins vegar hinir
rólegustu (eða þannig...) úti í
horni: „Við megum ekki æfa fyrr
en korter í 6“ sögðu þeir og létu
reyndar vel valin orð fylgja sem
óþaft er að birta. „Pað er fundur
uppi. Það getur líka verið að við
verðum reknir héðan — það eru
alltaf fundir,“ sagði einhver dap-
urri röddu.
— Af hverju heitið þið F-929?
„Það er eftir flottum bíl sem
kennarinn okkar á,“ segir Bjarni.
Guðmundur leiðréttir: „Það er
bíll með flottu númeri, það er það
eina við hann“.
— Hvaða kennari er þetta?
„Æ hann Maggi þú veist.“
Nokkrar athugasemdir ekki ætl-
aðar birtingu fylgja.
— En hvað heitið þið annars?
„Jón Tryggvi Njarðarson heiti
ég en ég er eiginlega ekki með,“
segir sá fyrsti við öflug mótmæli
hinna. „Jú, hvað er þetta maður,
vertu með“. Og niðurstaðan varð
sú að maðurinn var ráðinn á
staðnum og spilar á hljómborð.
Söguleg stund. Hinir heita Gunn-
ar Kristmannsson, söngvari,
Halldór Geir Þorgeirsson, bassi,
Bjarni Þór Hjaltason, trymbill og
skemmtiatriði skjóta tveir með-
limir Fidus inní en þeir voru
áhorfendur og -heyrendur að við-
talinu), og Guðmundur Þórir Sig-
urðsson, gítar.
— Hvað er þetta gömul
hljómsveit?
„Við byrjuðum 1. desember
’84,“ segir Gunnar, greinilega
með það á tæru. „Ja, svo tókum
við pásu frá miðjum desember
fram að miðjum janúar," bætti
einhver við þó sussað væri á hann.
„Við höfum ekki spilað neitt
opinberlega ennþá, en á laugar-
daginn verður tekin upp videó-
mynd með okkur niðri í Bíóhöll.
Hún verður leikin, Maggi leikur
m.a. í henni og svo verður mynd
af okkur að spila,“ svarar Bjarni
spurningu blaðamannsins. „Þetta
er framlag okkar í hæfileika-
keppni sem skólinn ætlar að
halda,“ útskýrir Gunnar. „Nei,
það er löngu hætt við hana“
mótmælir annar og málið er rök-
rætt áður en lengra er haldið.
„Bjarni Þór tekur upp og hjálpar
okkur,“ segir Bjarni enn. Þess
má geta að hann talaði mest og
voru mjög skiptar skoðanir um
ágæti þess innan bandsins. Þ.e.
honum fannst það ágætt — hinum
ekki. (Fyrirgefðu Bjarni, ég gat
ekki stillt mig.)
— Hvernig tónlist spilið þið?
Halldór Geir: „Þungarokk".
Guðmundur: „Klassísktrokk.“
Gunnar: „Bara rokk.“
Jón Tryggvi: „Allskonarrokk“
(Sbr.skonrokk).
Bjarni. „Æ, svona eins og
Fidus spilar.“ Hann er baulaður
niður.
„Móðgun," æpa viðstaddir Fid-
usar. En öðrum finnst niðurlæg-
ingin vera sín megin.
— Er Fidus. aðalhljómsveitin?
spyr blm. lúmskur, og uppsker
öngþveiti.
„Móðgandi spurning,“ svaraði
Gunnar sár, „þeir byrjuðu bara
aðeins fyrr. Jú og við erum með
flestar græjurnar þeirra, — en við
semjum betri lög.“ Aftur uppþot,
greinielga metnaður milli sveit-
anna, sem er ekki nema eðlilegt.
— Hver er uppáhaldshljóm-
sveitin ykkar?
Þetta var erfið spurning og hver
svaraði um annan þveran:
„F-929, Saga, U2, Bob Marley,
Bruce Springstein, dire Straits.“
Nú var klukkan orðin tuttugu
mínútur í sex en þeir létu sig hafa
það og tóku eitt lag fyrir mig. Það
var lagið Duran Duran. Lag og
texti F 929.
Góður texti og frambærilegt
lag, ekki síst ef miðað er við hve
sveitin er bráðung. Strákarnir
auðsæilega frjóir og efnilegir í
„bransanum". Ég spurði þá
hvernig þeir semdu, hver í sínu
lagi eða saman. Guðmundur
sagði það vera ýmist, stundum
kæmi einhver með hugmynd og
þeir ynnu úr henni saman, eða
lögin kæmu eins og af sjálfu sér á
æfingum. Síðasta spurningin var
samviskuspurning:
— Bitnar hljómsveitin á
skólalærdómnum?
„Nei, skólinn gengur fyrir."
„Ertu vitlaus maður, skólinn
gengur sko ekkert fyrir.“
„Það er nú ekki að marka þig,
þú getur hvort eð er ekkert
lært...“
F-929 er ekki sú alsamstilltasta
grúppa sem maður hefur kynnst
en varðandi þetta síðasta þá
varpar það ljósi á málið að ónafn-
greindur náungi var að sækja
skólatöskuna sína sem þá hafði
legið í viku úti í horni. Enda
sögðu hinir að hann nánast byggi
þarna. Virðingarverður áhugi
ekki satt?
Sýnishorn úr texta (Guðmund-
ur og Gunnar).
Af hverju eru að þvælast í þessu
Taylor
því fórstu ekki á sjóinn og gerðist
„sailor"
Þið hafið lengi staðið í stað
en hvað þið eruð lengi að fatta
það.
Viðlag: Duran Duran Duran
Duran Duran Duran Duran.SEÞ
Fjölmenn afmælis-
hátíð í Amardal
—fimm ára afmælis æskulýðsheimilisins minnst
Hva, fœr ekki forstöðumaðurinn koss frá fegurðar
dísinni?
Ljósm.: Guðm. Guðjónsson.
Um fyrri helgi var haldin afmælishátíð í Arnardal í
tilefni 5 ára afmælis æskulýðsheimilisins. Lögðu
unglingarnir mikla vinnu í undirbúning fjölbreyttrar
dagskrár fyrir hátíðisdaginn, til dæmis voru gerðir
bæði útvarps- og sjónvarpsþættir.
Dagskráin hófst laugardagskvöld með borðhaldi
fyrir krakka frá 13 ára aldri og upp úr. Eftir matinn
voru skemmtiatriði og síðan stiginn dans til hálftvö um
nóttina.
Að sögn Steinunnar Árnadóttur starfsmanns æsku-
lýðsráðs var hátíðin í alla staði vel heppnuð og var
uppselt í matinn, en alls mættu 120 manns í borðhald
og 180 á ballið.
Meðal skemmtiatriða voru hársýning Brynju Guð-
mundsdóttur, og tískusýning, sýnd voru fermingar-
fötin í ár frá Nínu og Portinu. Sýnd var myndbands-
upptaka þar sem líkt var eftir sjónvarpsdagskrá og
haldin var keppni um ungrú og herra Arnardal 1985.
Sigurvegarar í henni voru herra Gylfi Már Karlsson og
ungfrú Sofffa Dóra Sigurðardóttir. Einnig voru afhent
verðlaun frá breakdanskeppninni og að lokum var
fjöldasöngur viðstaddra.
Útvarp Arnardalur átti að vera á föstudagskvöld en
vegna óviðráðanlegra orsaka frestaðist það fram á
miðvikudag, en þá var sent frá 18.30 og fram á
miðnætti. Sendirinn var fenginn að láni frá verk-
menntaskólanum á Akureyri, magnari frá Ármúla-
skóla og loftnet og fleira frá Pósti og síma.
Steinunn vildi að síðustu geta þess að samstarfið við
krakkanna við undirbúning hátíðarinnar hefði verið
bæði gott og skemmtilegt. __
F-929 í öllu sínu veldi.
8