Skagablaðið - 03.05.1985, Side 4
Frá og með næstu viku verða
umtalsverðar breytingar á högum
og úgáfu Skagablaðsins. Fyrst ber
að telja, að útgáfudegi blaðsins
verður breytt og verður á mið-
vikudögum framvegis. Þá ber að
nefna þann merka áfanga, að
blaðið verður framvegis 12 síður í
viku hveriri.
Talsverð hækkun á pappír svo
og hækkun á prentkostnaði við
stækkun blaðsins í 12 síður hefur
hins vegar í för með sér að verð
þess hækkar um 10 krónur og
verður kr. 40 hvert eintak í stað
30 áður. Þessi verðhækkun er af
illri nauðsyn en blaðið væntir þess
að kaupendur þess setji ekki fyrir
sig 10 króna hækkun á sama tíma
og þeir fá 4 síður til viðbótar.
Allt frá því Skagablaðið hóf
göngu sína í ágúsf síðastliðnum
hefur orðið að stækka blaðið af og
til, ýmist í 10 síður eða 12, til þess
að koma öllu efni til skila. í mars
var Skagablaðið tvívegis 12 síður
að stærð en þrátt fyrir þá stækkun
eykst stöðugt það magn efnis,
sem ekki kemst fyrir á síðum þess.
Gífurleg þrengsl hafa verið í
síðustu blöðum; myndir hafa ver-
ið skornar niður, texta þjappað
saman og mörgu sleppt en allt
hefur komið fyrir ekki. Blaðið í
dag er e.t.v. gleggsta dæmið um
þrengslin. Fyrir vikið hefur nokk-
uð borið á því að fólki hafi fundist
auglýsingar of stór hluti blaðsins.
Sú gagnrýni er að sumu leyti
réttmæt en magn auglýsinga í
Skagablaðinu er þó hlutfallslega
síst meira en gengur og gerist í
sambærilegum blöðum víðs vegar
um land. Þá hefur einnig borið á
kvörtunum um of hátt hlutfall
íþrótta í blaðinu og eru þær
sömuleiðis á rökum reistar. Því
verður hins vegar ekki á móti
mælt að mikið hefur verið að
gerast á íþróttasviðinu á síðustu
vikum.
Með stækkun blaðsins í 12
síður ætti að vera von til þess að
koma öllu því efni, sem unnið er
á ritstjórninni, til skila jafnóðum
Dagar hestsins á Akranesi
Hestamannafélagið Dreyri gengst fyrir kynningu á hestinum
okkar og starfsemi félagsins helgina 4. og 5. maí 1985.
Útisýning hefst á íþróttavellinum á Akranesi
kl. 14.00 báða dagana.
DAGSKRA:
1. Hópsýning -
2. Töltsýning
3. Unglingar
4. Skeiðsýning
5. Burtfluttir Dreyrafé
agar
6. Hópsýning (dressur)
7. Skemœtiatriði
8. Verðlaunaðir Dreyrahestar
9. Unghross í tamningu
10. Parareið
11. Hópsýning - lok
Sögusýning félagsins í myndum verður laugardaginn 4. maí
kl. 18 - 20.00 í Rein á Akranesi. — Kaffiveitingar.
Kvöldvaka fyrir félagsmenn og gesti þeirra verður í Rein
kl. 21.30 laugardaginn 4. maí.
■ Stjórn Dreyraa^n
Hittumst í kaupféiaginu
Kaupfélag Borgfirðinga
Kirkjubraut 11 - Akranesi - Sími 2280
Föstudaginn 3. maí: diskótek til kl. 03
Laugardaginn 4. maí: lokað
vegna einkasamkvæmis.
Báran opin bæði kvöldin.
sem og auglýsingum, sem hafa
aukist jafnt og þétt frá áramótum
í hlutfalli við stöðugt aukna út-
breiðslu blaðsins.
í framhaldi af framangreindum
upplýsingum vill ristjórn blaðsins
bæta því við, að blaðið verður
borið út til áskrifenda síðla dags á
miðvikudögum og boðið til sölu í
húsum um kvöldmatarleytið. Þá
er rétt að minna auglýsendur á,
að frestur til að skila inn auglýs-
ingum er til hádegis á þriðjudag
og verður svo framvegis. Auglýs-
ingaverðið er óbreytt og hefur
verið svo frá upphafi.
Þrátt fyrir umrædda 10 króna
hækkun er það von Skagablaðsins
að lesendur meti stækkunina
meira en 10 króna viðbótarútlát í
viku hverri. Við þessa50% stækk-
un blaðsins ætti efnið að verða
' enn fjölbreyttara og því ætti blað-
ið að eiga enn auðveldara að gera
dyggum kaupendum sínum til
hæfis, en til þessa. Séu hins vegar
einhverjir lesendur óhressir með
þessa hækkun í kjölfar stækkun-
arinnar þætti okkur vænt um að
heyra í þeim. Skagablaðið
Ef ykkur liggur
eitthvað á hjarta
þá er síminn:
2261
Frá Tónlistarskólanum
Akranesi
VORTÓNLEIKAR
Vortónleikar Tónlistarskólans Akra-
nesi verða haldnir í Bíóhöllinni laugar-
daginn 4. maí kl. 14.00. Nemendur
Tónlistarskólans og þeirra vanda-
menn ættu að fjölmenna. Aðgangur
er ókeypis.
SKÓLASLIT
Skólaslit fara fram í Akraneskirkju
sunnudaginn 5. maí kl. 14.00. Þangað
eiga allir nemendur að mæta og taka
á móti einkunnum.
INNRITUN
Innritun fyrir næsta skólaár er á skrif-
stofu skólans Kirkjubraut 8, sími 2109,
fyrir hádegi alla virka daga, út maí-
mánuð' SKoiasm
T résmiðafélag Akraness
auglýsir
Þeim félagsmönnum sem hafa hug á að
dvelja í sumarhúsi félagsins í sumar, er
bent á að hafa samband við skrifstof-
una Kirkjubraut 40 og leggja inn
umsókn. Skrifstofan er opin sem hér
segir: alla þriðjudaga kl. 18.15 til 19.15
til 20. maí, síminn er 2822.
Umsóknarfrestur er til 20. maí.
Eftir þann tíma verSur húsið
leigt öðrum.
NEFNDIN
mlmmmm
—-'BÁRÚGÖTU — SÍMAR (93) 2020 (93) 2144
4