Skagablaðið - 03.05.1985, Side 5
FRA SKAGAVERIHF.
Hekla hf. kynnir í Skagaveri þessa viku
MITSUBISHI COLT, knálegan fjölskyldubíl
á mjög góðu verði.
Kynning frá Osta- og smjörsölunni föstudag
frá kl. 14 til 17.
Lítið inn — kaffi á könnunni.
SIC4G><
■ > - '1É
VÖRUMARKADUR
#######
MI0BÆR3 S1775-1776 GARÐAGRUND S 10301
SÍMI: 1646
Það þarf tæpast að tíunda það
Fyrir knattspyrnuáhugamönnum
tiér á Skaga, að Sigurður Hall-
dórsson alias Siggi Donna er nú
þjálfari 2. deildarliðs Völsungs
frá Húsavík. Með honum norður
fór Jón Leó Ríkharðsson og í
nýjasta tölublaði Víkurblaðsins
er farið lofsamlegum orðum um
þá félaga.
„Það er alltént ljóst, að Sigurð-
ur Halldórsson, þjálfari, er að
gera góða hluti með liðið," segir
m.a. í baksíðufregn blaðsins. Um
Jón Leó segir síðar í sömu frétt:
„Þá er Jón Leó ugglaust einn
fóthvatastur íslenskra knatt-
spyrnumanna og stunguboltar á
þennan snjalla pilt verða áreiðan-
iega eitt skæðasta vopn Völsunga
í sumar.“
Húsavíkurliðið skartar nú
nokkrum sterkum aðkomumönn-
um og eftir nokkur ár í toppbar-
áttu 2. deildar, þar sem oft hefur
aðeins vantað herslumun á að
sæti í 1. deild hafi náðst, eru
Völsungar orðnir langeygir á að
ná settu marki. Bjartsýni ríkir í
herbúðum norðanmanna nú rétt
fyrir upphaf keppnistímabilsins
og hver veit nema koma Skaga-
mannanna, Sigga Donna og Jóns
Leós, reynist sá hvati sem þarf til
að sett markmið náist.
„Fólk hér sitji við sama
borð og Reykvíkingar"
— segir Ásgeir R, Guðmundsson, umboismaður Heklu
um nýstáriegar bílakynningar sínar
„AUt frá því ég tók við starfi
umboðsmanns Heklu hér á Akra-
nesi hef ég lagt á það höfuð-
áherslu, að fólk hér á Skaganum
sitji við sama borð og þeir, sem
búa í Reykjavík. Liður í þeirri
viðleitni hefur verið að sýna þær
gerðir bifreiða, sem Hekla hefur
upp á að bjóða hverju sinni, og
eins geng ég frá öllum samningum
fyrir fólk, sem og skráningu nýrra
bfla. Þeir, sem hafa áhuga á að
kaupa bfl frá Volkswagen eða
Mitsubishi, eiga því aldrei að
þurfa að fara til Reykjavíkur í
þeim erindagjörðum.“
Þannig fórust Ásgeiri R.
Guðmundssyni orð er Skagablað-
ið heilsaði upp á hann í vikunni og
forvitnaðist um það hvað hefði
legið að baki því að hann tók að
kynna ýmsar gerðir bifreiða frá
Heklu í verslun Skagavers í mið-
bænum.
Undanfarið hefur getið að líta
bifreiðir á borð við Mitsubishi
Skagamenneiuhátt
skrifaðir sem fyrr
Skagamenn eru enn í mestum Skagamenn yrðu fslandsmeistar-
Lancer og nú þessa dagana Colt
frá sama fyrirtæki, auk Volkswag-
en Jetta og Golf í verslun Skaga-
vers. Þessi nýbreytni hefur mælst
mjög vel fyrir hjá viðskiptavinum
verslunarinnar og Ásgeir fer held-
ur ekki dult með þá staðreynd að
þessi nýstárlega kynning hefur
skilað sér í fleiri seldum bílum frá
Heklu hér á Skaga.
„Ástæðan fyrir því að ég fór út
í þessa tegund kynningar var m.a.
sú, að ég hafði séð þetta gert í
Reykjavík með ágætum árangri,“
sagði Ásgeir. „Ég hafði svo sam-
band við þá hjá Skagaveri og
samkomulag náðist á mili okkar.
Það er reyndar ekki mjög auðvelt
að koma bílum inn í sjálft verslun-
arhúsið en það er hægt með lagni
og það skiptir mestu máli. Ég hef
sjálfur verið í versluninni á föstu-
dögum þegar mest hefur verið að
gera og það hefur mikið verið
spurt og skrafað og greinilegt að
Ásgeir R. Guðmundsson á skrifstofu sinni.
fólk hefur kunnað vel að meta
þessa nýbreytni.“
Ásgeir tók við Heklu-umboð-
inu hér á Akranesi þann 1. júlí í
fyrra og frá þeim tíma hefur alger
stökkbreyting orðið á umboðinu
og þjónustu þess hér á Skaga.
Bílakynningar með reglulegu
millibili og snarbætt þjónusta hef-
ur gert það að verkum að bílum
frá Heklu fjölgar stöðugt á götum
bæjarins. Ásgeir var að því spurð-
ur hverju hann þakkaði þennan
árangur.
„Ég held að skýringuna megi
fyrst og fremst rekja til þess að ég
hef gefið mér tíma til þess að
sinna umboðinu og hef lagt mig
fram um að veita Skagamönnum
sömu þjónustu og best er á
Reykjavíkursvæðinu. Þetta hefur
kostað talsverða vinnu en ég tel
að hún hafi skilað sér.“
Þess skal að lokum getið, að
einmitt í dag er Halldór Á.
Guðmundsson, bifvélavirki, sem
annast viðgerðarþjónustu fyrir
Heklu hf., að opna glæsilegt
viðgerða- og þjónustuverkstæði
að Smiðjuvöllum 8 (gegnt Smur-
stöðinni).
metum á meðal knattspyrnuunn-
enda um land allt ef marka má
litla könnun, sem gerð var í
morgunþætti rásar tvö fyrir réttri
viku. Hlustendur voru þá beðnir
að hringja inn og tjá sig um hvaða
lið þeir teldu að yrði íslandsmeist-
ari í sumar.
Alls hringdu 46 inn á 13 mínút-
um og úr þeim hópi töldu 11 að
ar í sumar, 10 töldu Framara
verða hlutskarpasta og 6
Valsmenn. Önnur lið fengu mun
færri atkvæði. Þótt þessi könnun
hafi verið gerð meira til gamans
hlýtur það óneitanlega að vera
uppörvandi fyrir Skagamenn að
finna traustið. Góð byrjun í Litlu
bikarkeppninni ætti að styrkja
sjálfstraustið enn frekar.
Erum með myndir fyrir BETA videotæki.
lón Leó Ríkharðsson. Sigurður Halldórsson.
Húsvíkingar eru
ánægöir mei Sigga
Donna og Jón Leó
5