Skagablaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 7
Atvinnulíf á Akranesi/Skagamold • Gróöurval
Selja blóm, tré og
mold út um allt land
Við höldum áfram að kynna
fyrírtæki, næst á dagskrá eru tvö
tengd fyrirtæki Skagamold og
Gróðurval. Sigurður Gunnarsson
bóndi á Klapparholti og fjöl-
skylda hans eiga og reka þau.
Skagamold er, eins og nafnið
gefur til kynna, moldarverk-
smiðja. Hráefnið er aðallega
skurðaruppgröftur. Hann er tek-
inn að hausti fyrir frost, og
geymdur í verksmiðjuhúsinu. Síð-
an eru teknir 2 rúmmetrar í einu
af mold, hún mulin og í hana bætt
vandlega mældu magni af snefil-
efnum og áburði. Moldin er næst
látin bíða í nokkra daga úti í homi
og látin „ryðja sig“ sem kallað er,
loks er hún möluð áður en pökkun
fer fram.
Rétt hráefni
— Hvar takið þið moldina, fáið
þið það sem kemur upp úr grunn-
um nýbygginga og þess háttar?
„Nei, það er ekki hægt að nota
slíkt hráefni, sú mold er tekin
of djúpt, þannig að hún er alltof
þung og leirkennd. Við getum
ekki heldur tekið mold þar sem
kartöflugarðar hafa verið, vegna
arfafræja sem þar eru. Uppgröft-
ur úr skurðum er hentugur, þar
sem grafið er hæfilega djúpt,
grasrótin fer neðst á bakkann og
síðan moldin ofan á. Þetta er látið
bíða f nokkur ár þar til þetta er
orðið alveg morkið og létt, þá
fyrst tek ég það inn. Ég er nú að
mestu búinn með það sem til var
af uppgreftri hér í kringum Akra-
nes, síðan hef ég fengið mold frá
Heynesi og Másstöðum en núna
aðallega frá Skipanesi.“
— Vinna margir við moldar-
framleiðsluna?
„Pað eru 3-4 manneskjur. Ann-
ars er mismikið að gera yfir árið,
það er mest í mars og apríl.“
— Hvenær var Skagamold
stofnuð?
„Það var 1978 sem moldarverk-
smiðjan var reist, en framleiðslan
hófst ekki fyrr en um vorið 1979,
en ég hef verið með ræktunina
miklu lengur.“
— Svo við snúum okkur að
Gróðurvali, hvað hefurðu þar á
boðstólum?
„Það er svo margt, ég hef allar
algengar tegundir af sumarblóm-
um og nokkrar nýjar líka, sem
eru sérstaklega áhugaverðar. Það
eru tegundir, sem ég var að rækta
í tilraunaskyni fyrir Hafnarfjarð-
arkaupstað í fyrra sumar og varð
mjög hrifinn af. Þetta eru skraut-
leg og myndarleg blóm, sem ég
held að fólki eigi eftir að falla
vel.“
— Ræktar þú líka tré?
„Já, ég er með flestar víðiteg-
undir, birki, birkikvist og svo er
ég með lítil grenitré, það er alltaf
gaman að vera með grenitrén, og
svo er lyktin svo fersk þar sem
þau eru ræktuð.“ Sigurður talar
um trén og blómin í ástúðlegum
tón eins og maður gæti hugsað sér
stolta móður tala um börnin sín.
Enda blómgast allt og dafnar hjá
honum, það sá ég þegar ég fékk
að skoða gróðurhúsin og vermi-
reitina í Gróðurvali. Bakkarnir
með sáðplöntum voru algrænir á
að líta, varla að nokkur planta
misfærist.
Kostnaður við þessa ræktun er
sáralítill að sögn Sigurðar, fræin
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
fást á Mógilsá, tilraunastöð Skóg-
ræktar ríkisins, á fáeinar krónur,
62 lítra poki með Skagamold
kostar 250 krónur og dugar fyrir
30 plöntur, og svörtu pokarnir
kosta krónu stykkið. Fólki er
velkomið að koma í Gróðurval og
fá ráð vegna ræktunar á bæði
trjám og blómum, auk þess sem
þar fást sáðplöntur bæði ódýrar
og gefins ef þannig stendur á. Þeir
sem nota eigin mold til ræktunar,
ættu undantekningarlaust að láta
mæla efnainnihald hennar, sagði
Sigurður einnig.
— Hvað vinna margir í Gróður-
vali?
„Það eru 4 fyrir utan okkur 3 í
fjölskyldunni, og fer upp í 10-12
manns þegar útplöntun hefst
seinnipartinn í apríl.
— Hvert selurðu svo blómin,
annað en til Hafnarfjarðar?
„Ég sel út um allt land, ég sel í
Blómaval í Reykjavík, til Kópa-
vogsbæjar, Grindavíkur, Vest-
mannaeyja, Hellissands, Nes-
kaupstaðar, Ólafsvíkur, Patreks-
fjarðar, ísafjarðar og fleiri staða.“
—SEÞ.
Halldórs Á. Guðmundssonar
Viðgerða- og varahlutaþjónusta fyrir Heklu hf.
Einbýlishús eða góð íbúð ósk-
ast á leigu í minnst eitt ár.
Upplýsingar í síma 1663 á
kvöldin.
Vorfagnaður
Austfirðingafélagið á Akranesi efnir til
vorfagnaðar í Rein föstudaginn 3. maí.
Skemmtiatriði og dans. Austfirðingar
fjölmennið.
Austfirðingafélagið Akranesi.
SVÆÐANUDD
NÁMSKEIÐ í SVÆÐAMEÐFERÐ
(ZONETERAPI) VERÐUR HALDIÐ
ÁAKRANESI í MAÍ EF NÆG ÞÁTTTAKA
FÆST. KENNARI MEÐ PRÓF FRÁ
SKOLEN FOR ZONETERAPI í
KAUPMANNAHÖFN LEIÐBEINIR.
Uppl. ísíma 1275 og 91-21622
á milli kl. 18 og 19 til 5. maí.
Húseigendur
Grundahverfi
Talsvert hefur verið um beiðnir til rýmkunar
á byggingarskilmálum hvað varðar þakhalla
íbúðarhúsa og byggingarlínur m.t.t. sólhýsa
í Grundahverfi.
í framhaldi af því hafa verið samin drög að
nýjum skilmálum fyrir hverfið þar sem
ákvæði um þakhalla og byggingarlínur eru
rýmkuð.
Drög þessi liggja frammi á tæknideild. Eru
þeir sem áhuga hafa á að skoða þau, eða
koma athugasemdum á framfæri, vinsam-
legast beðnir um að hafa samband eigi síðar
en 31. maí n.k.
Tæknideiid Akraneskaupstaðar
Frá grunnskólum
Akraness
Hef flutt starfsemi mína að Smiðjuvöllum 8
(gegnt Smurstöðinni)
Reynið viðskiptin.
Innritun 6 ára barna fer fram í Brekkubæjar-
skóla og Grundaskóla mánudag 6. maí og
þriðjudag 7. maí á skrifstofutíma, frá kl. 7.45
-11.30 og kl. 12.30-16.15.
Þeir foreldrar, sem óska eftir gæslu í tengsl-
um við forskóladeildirnar þurfa að sækja um
hana.
Með bestu kveðju,
Halldór Á. Guðmundsson
Skólastjórar
7