Skagablaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 1
Leynir AK-9 stórskemmdist í eldsvoða í nótt:
„Ætluðum aó róa kl.
hálfsex í morgun"
- segir eigandi bátsins, Birgir Jónsson, við Skagablaðið
Leynir AK-9 stórskemmdist af
völdum elds í nótt, þar sem bátur-
inn lá við bryggju. Ljóst er að
Nýr gullsmið-
ur í bæinn
Nýr gullsmiður er væntanlegur
til Akraness, eftir því sem Skaga-
blaðið hefur hlerað. Hann heitir
Alfred W. Gunnarsson og starfar
nú í Reykjavík. Alfred mun ætla
að flytja hingað í ágúst og opna
eigið verkstæði í september.
yfirbyggingin er mikið skemmd
en vonir standa til þess að skrokk-
urinn sé að mestu heill. Leynir er
9 tonna bátur, smíðaður í Eng-
landi 1982 og hefur aflað frábær-
lega vel á vertíðinni.
„Mér var tilkynnt um að eldur
væri laus í bátnum“, um klukkan
3 í nótt,“ sagði Birgir Jónsson,
eigandi bátsins, er Skagablaðið
náði tali af honum snemma í
morgun. „Ég er nú vanur því að
fá slæmar fréttir, missti m.a. fisk-
verkunarhúsið í flóðunum í janú-
ar í fyrra, en hefði getað grenjað
þegar ég frétti af þessu. Við
ætluðum að róa kl. hálfsex í
morgun,“ sagði Birgir.
Birgir sagði það þó hafa verið
lán í óláni, að enginn skyldi hafa
slasast um borð en svo hefði
hæglega getað farið ef einhver úr 3
manna áhöfn hefði verið í
bátnum. „Við megum auðvitað
líka þakka fyrir að þetta gerðist í
vertíðarlok en ekki við upphaf
vertíðar þvf það er bersýnilegt að
við verðum stopp í nokkra mán-
uði.“
Ekki er enn ljóst hver orsök
eldsupptakanna í Leyni AK-9
er en unnið er að rannsókn
málsins og mun matsmaður frá
tryggingafélagi bátsins væntanleg-
ur til að kanna skemmdir.
Seldu rauðar fja&rir fyrir 400.000 krónun
„Fengum stórkostlegar
móttökur hjá bæjarbúum"
—segir Gunnar Elíasson, einn Uonsmanna, við Skagablaðið
Rúmlega 2500 rauðar fjaðrir og staðið. sagði Gunnar og vildi koma á
nálægt 100 plattar seldust í sölu- Þessi árgangur er frábær og framfæri kæru þakklæti til bæjar-
herferð Lionsmanna og Lionessa hefur aldrei náðst betri árangur í búa fyrir þær.
dagana 12.-14. apríl. Þaðþýðirað söfnunum Lionsmanna á Akra- Til gaman fyrir þá sem vilja
350.000 krónur söfnuðust. Auk nesi tii þessa. Semdæmimánefna metast má nefna að í Vestmanna-
þess hafa meðlimir fjá.öflunar- að „aðeins" 1640 fjaðrir seldust eyjum sem er litlu minni bær en
nefndar Lions verið að selja síðast þegar Rauða fjöðrin var Akranes, söfnuðust um 220.000
kubba á 10.000 krónur í stærri boðin til sölu, að því er Gunnar krónur eftir því sem „Fréttir“,
fyrirtæki að undanfömu, þannig Eiíasson tjáði blaðinu. „Það voru bæjarblað Vestmannaeyinga
að talan verður líklega yfir alveg stórkostlegar móttökur, herma.
400.000 krónur þegar upp er sem við fengum hjá bæjarbúum", — SEP
Á einhjóli?
Það er ekki á hverjum degi sem menn rekast á einhvern, sem
hjólar á „einhjóli“. Það gerði hann Árni ljósmyndari þó fyrir
helgina og var ekki seinn á sér að ljósmynda kappann.
Píanósnilling-
ur í heimsókn
— Martin Berkowsky meo vikunámskeið
Hinn heimskunni píanósnilling-
ur Martin Berkowsky heimsækir
okkur Skagamenn í næstunni og
efnir til námskeiðs í píanóleik
fyrir nemendur Tónlistarskólans
og e.t.v. einhverja utanbæjar-
menn líka að sögn Jóns Karls
Einarssonar, skólastjóra Tónlist-
arskólans.
Námskeiðið hefst á annan dag
hvítasunnu og því lýkur föstudag-
inn 31. maí og er það nánast
þegar fullskipað að sögn Jóns
Karls. Fyrirkomulag námskeiðs-
ins er þannig að fyrir hádegi verða
einkatímar en eftir hádegið er
sameiginlegur fyrirlestur, þar sem
farið er yfir verkefni morgunsins.
Umrætt námskeið er ætlað fyrir
lengra komna nemendur í píanó-
leik, þ.e. þá sem lokið hafa 3. stigi
eða meira, og kostar kr. 600 ef
teknir eru bæði einkatímar og
hóptímar. Gjaldið er hins vegar
helmingi lægra ef aðeins eru
teknir einka- eða hóptímar.
Friðhelgin rofin
Friðhelgi „Sóla-hringsins“
svonefnda var loksins rofin á
þriðjudag í síðustu viku er all-
harður árekstur varð á þessum
gatnamótum Kalmansbrautar og
Esjubrautar. Fram að því hafði
ekkert óhapp orðið á þessum
gatnamótum frá því þar var komið
upp hringtorgi, „Sóla-hringnum“
Áður voru þessi gatnamót með
þeim verri í bænum hvað slysa-
hættu snerti. Talsvert tjón varð á
báðum bifreiðunum við árekstur-
inn enda mun annar ökumann-
anna hafa farið nokkuð frjálslega
með reglur um hámarkshraða og
leiðbeiningar um aksturshraða í
samræmi við aðstæður.