Skagablaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 11
Handmennt - eina vinnustofan sinnar tegundar
hériendis opnuö:
nGar
taka át u“
' *
> r /■ > >
f W -------*
- segir Guörún Pétursdóttir, handmennta-
kennari um vinnustofuna, sem fengiö hefur
stormandi góðar móttökur
Guðrún Pétursdóttir, handavinnu- og handmenntakennari, hefur
opnað eigin verslun og vinnustofu að Kirkjubraut 2. Handmennt
nefnist staðurinn og er það sem á ensku kallast „work-shop“ eða
vinnu-búð, bókstaflega þýtt. Handmennt og tannlæknastofa Ægis
Rafns Ingólfssonar (eiginmanns Guðrúnar) hafa sameiginlegan
inngang. Skagablaðið ræddi við Guðrúnu fyrir stuttu.
„Þetta er vinnustaður eða verk- námskeið í einhverju sérstöku,
stæði sem allir geta notað sem
vilja,“ sagði Guðrún um
Handmennt, „og líka búð. Það er
bara ekki til neitt nafn yfir þetta
á íslensku. Ég hjálpa viðskipta-
vinunum með það sem þeir eru að
gera og býð auk þess upp á föst
Skagaleikflokkurinn
skrifar bæjarstjóm:
Vilja
Iðn-
skólann
Skagaleikflokkurinn hefur nú
sótt um aðstöðu í gamla Iðn-
skólanum við Skólabraut en eins
og kunnugt er hafa bæjarstjóm
og skólastjórn Tónlistarskólans
teflt þrátefli um margra mánaða
skeið um umrætt húsnæði. Bær-
inn vill skólann þar inn, en skólinn
vill hins vegar ekkkert með þetta
húsnæði hafa.
Erindi Skagaleikflokksins bar á
góma á fundi bæjarstjórnar þann
14. maí sl. og virtust bæjarfulltrú-
ar ekki fráhverfir þeirri hugmynd
að flokkurinn fengi þar inni með
starfsemi sína. Á fundinum kom
einnig fram eindreginn vilji fyrir
því að ákveða sem allra fyrst hvað
gera ætti við húsnæðið.
Smáauglýsing
Óska eftir vel með förnum barna-
vagni. Uppl. í síma 2278.
Ef ykkur liggur
eitthvað á hjarta
þá er síminn:
2261
frá bútasaumi, fatasaumi, prjóni
og fleiru. Ég reyni að hafa þau
eins fjölbreytt og ég get.“
Góð vinnuaðstaða.
— Hvað tekur þú hátt gjald fyrir
aðstoðina?
„Ég tek fast gjald fyrir nám-
skeiðin, og svo tek ég tímakaup
við að hjálpa fólki ef ég þarf alveg
að vera með því. En það geta allir
komið hér og notfært sér vinnuað-
stöðuna án endurgjalds.“
Vinnuaðstaðan, sem Guðrún
talar um, er stórt og bjart vinnu-
herbergi með stóru sníðaborði og
mörgum saumavélabortðum. Þart
Uudrún Pétursdóttir á vinnustofunni.
eru öll hjálpartæki, sem á þarf að
halda við handavinnuna, eftir því
sem blaðamaður Skagablaðsins
gat best séð, þar með talin sauma-
vél.
„Námskeiðin eru bæði dag- og
kvöldnámskeið, þau standa í tvær
vikur, 18 klukkustundir alls, og
kosta kr. 2300. Ég hef aðallega
verið með fatasaumsnámskeið
hingað til. Á þeim kenni ég að
sníða og sauma föt. Þessi nám-
skeið eru mjög vel sótt, og þátt-
takendur eru á öllum aldri, allt frá
ungum stúlkum og upp í fullorðn-
ar konur, sem eiga uppkomin
börn. Þær eru að átta sig á því að
saumaskapur er ekki bara nauð-
synlegur heldur líka skemmtileg-
ur.
— Hvernig virkar þessi aðstoð?
Get ég komið ef mig langar að
gera flík eins og er til í einhverri
tískubúð og látið þig hjálpa mér
að finna samskonar snið og sauma
hana?
„Já til dæmis. Það er svo óend-
anlega margt, sem hægt er að
gera. Mér finnst sérstaklega gam-
an að vinna að hugmyndum sem
konurnar koma sj álfar með, vinna
að sköpun. Og það þarf ekki
endilega að gera eitthvað sem
maður klæðir sig í, það má skreyta
á ýmsa vegu með efni og garni. Ég
hef mikinn áhuga á að bjóða
námskeið í tauþrykki og frjálsum
útsaumi, það er gaman að blanda
því saman. Ég er með margt á
prjónunum fyrir haustið.“
Eigin herra
— Eitthvað fleira en þetta nám-
skeið?
„Já, já, mig langar meðal ann-
ars að vinna með sérstakar garn-
tegundir sem ég er með, en hvort
það verður námskeið eða kynning
er ég ekki búin að ákveða enn.“
— Hafðir þú kynnst svona áður?
„Nei, ég held að þetta sé eina
svona stofan á landinu, en þetta
þekkist erlendis. Ég fékk þessa
hugmynd meðan ég var að læra:
Mig langaði að vera minn eigin
herra. Það er náttúrulega rosaleg
áhætta að fara út í svona fyrirtæki,
en ég ákvað að taka hana. Það er
líka gaman að taka áhættu.“
— En hvernig datt ykkur í hug að
flytja hingað?
„Ægir er frá Vestmannaeyjum,
en ég er Reykvíkingur og við
bjuggum lengi í Reykjavík, en
hinsvegar kom ekki til greina að
búa þar til frambúðar. Við ætluð-
um alveg ákveðið að flytja út á
land að námi loknu, Akranes var
bara einn staður af mörgum sem
komu til greina.“
Moldartöku- og losunarstaðurinn við Kalmannsvík.
Moldartaka og -losun aö
noröanveröu í Kalmansvík
Lcsandi hafði samband við
Skagablaðið og bað um að því
yrði komið á framfæri við bæjar-
yfirvöld að hafa einhvern stað á
landi bæjarins þar sem hægt væri
að losa sig við mold eftir þörfum.
Það væri synd að henda gróður-
mold.
Við höfðum samband við
Oddgeir Þór Árnason garðyrkju-
stjóra bæjarins og fengum að vita
að slíkur staður er til. Að norðan-
verðu í Kalmannsvík má sturta
gróðurmold, eða ná sér í að vild.
En fólk verður að gæta þess að
það sé aðeins gróðurmold en ekki
rusl sem það losar, og aðeins að
norðanverðu, eins og áður grein-
Reyndar má einnig losa mold
fram af Jaðarsbökkum og niður á
Ægisbraut, en ef rusl og drasl er
saman við moldina er best að losa
hana á haugana.
Vantar
ísskáp
Óskum eftir notuðum ísskáp. Upplýs-
ingar í síma 1454.
Erum meö myndir fyrir BETA videotæki.
SIMI: 1646
11