Skagablaðið - 26.06.1985, Side 1
73. 22, TBL. 2. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1985
VERÐ KR. 40.-
Göngugarpurinn mikli
Reynir Pétur hylltur
Göngugarpurinn mikli, Reynir Pétur Ingvarsson, heiðraði okk-
ur Skagamenn með nærveru sinni s.l. laugardag á leið sinni hringinn
í kringum landið. Reyni Pétri, sem þann dag hafði gengið
frá Borgarnesi og inn að Botnsdalsá, var ekið til baka hingað niður
á Akranes þar sem tekið var á móti honum með mikilli viðhöfn.
Töluverður mannfjöldi hafði safnast saman við „sólarhringinn“
svonefnda og þaðan var gengið fylktu liði niður á Akratorg
með hetjuna sjálfa í broddi fylkingar.
Lúðrasveitin sá um tónlistina
í göngunni og skátar báru þjóð-
fánann. Á Akratorgi bauð Ingi-
mundur Sigurpálsson, bæjar-
stjóri, Reyni velkominn og af-
henti honum fjárhæð og borð-
fána fyrir hönd bæjarins. Starfs-
mannafélög HB &Co.og Por-
geirs og Ellerts afhentu einnig
peninga í söfnunina svo og Kiw-
anisklúbburinn. Einnig gáfu
fjölmargir einstaklingar fé í
þessa merku og þörfu söfnun.
Allir vildu sjá þennan merka
mann og skapaðist nokkur
troðningur í kringum hann, en
hann leysti málið farsællega og
prílaði upp á styttuna af Sjó-
manninum. Þaðan veifaði hann
til fólksins við mikil fagnaðar-
læti og engu líkara en um þjóð-
höfðingja væri að ræða. Virtust
allir viðstaddir taka virkan þátt
í innilegri gleði hans, enda er
erfitt annað en að láta sér þykja
vænt um þennan brosmilda og
Ingimundur Sigurpálsson, bœjarstjóri, afhendir göngugarpmum
frá Akraneskaupstað.
Útvarpsstjóri um rás 2 á Akranesi:
Áhersla lögö á bætt
hlustunarskilyrði
Löngum hefur verið kvartað
yfir hlustunarskilyrðum rásar 2 hér
á Akranesi. A meðan flestir
landsmenn nái rásinni ágætlega,
þá getum við Skagamenn ekki
hlustað með góðu móti, a.m.k.
ekki án þess að fá urg og skruðn-
inga í ábæti. Hefur þetta legið
þungt á fólki og m.a. verið fjallað
um málið í bæjarstjórn.
Nú loksins hillir undir einhverj-
ar breytingar, því að á fundi
útvarpsráðs 7. júní s.l. var sam-
þykkt að við gerð næstu fram-
kvæmdaáætlunar Ríkisútvarpsins
yrði lögð sérstök áhersla á að
bæta hlustunarskilyrðin verulega
fyrir Akurnesinga. Ekki vitum
við við hér á Skagablaðinu með
hvaða móti hlustunarskilyrðin
verða bætt, líklega með styrkingu
einhverrar endurvarpsstöðvar, en
það finnst okkur aukaatriði.
Aðalatriðið er að geta hlustað á
rásina með góðu móti, án auka-
hljóðanna.
** rm *
Reynir Pétur ógnar veldi sjómannastyttunnar á Akratorgi.
skemmtilega mann. Hann
þakkaði þessar hlýju móttökur
í stuttu ávarpi og bað fólk vel
að lifa. Frá Akratorgi hélt hann
svo til sambýlisins við Vestur-
götu 102 þar sem komu hans var
mjög fagnað og hann boðinn í
kvöldverð. Snemma næsta
morgun hélt kappinn áleiðis til
Reykjavíkur.
Sjá nánar viðtal við Reyni Pétur
á bls. 4-5
ming.
Yfirvinnubann við höfnina yfir sumartímaim:
„Þetta var eindregmn
vílji félagsmannanna“
„Þetta var eindreginn vilji félagsmannanna á sínum tíma og
frumkvæðið var alfarið þeirra“, sagði Guðmundur M. Jónsson á
skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness er Skagablaðið hafði samband
við hann í kjölfar fyrirspurna um yfirvinnubann við höfnina.
Guðmundur sagðist ekki muna nákvæmlega hversu langt væri síðan
bannið tók gildi en undirstrikaði að mikil eining hefði verið um
ákvörðunina á meðal félagsmanna á sínum tíma.
Talsverðar umræður hafa eiga aldrei neina fasta frídaga.
spunnist að undanfömu um yfir-
vinnubannið og hafa sumir ekki
getað skilið hvers vegna ekki er
hægt að afgreiða togarana er þeir
koma að landi um helgar. Ekki
þarf að leita lengra aftur en til
síðustu helgar til að finna dæmi
um komu skips, sem e!kki var
hægt að landa úr fyrr en á virkum
degi. Hafa margir talið að löndun-
arbiðin færi illa með fiskinn um
borð í skipunum og því væri það
ábyrgðarleysi að hálfu verkalýðs-
forystunnar að leyfa ekki löndun.
Yfirvinnubannið nær yfir
sumarmánuðina og stendur frá
20. júní fram til 15. september og
gildir um vinnu í fiski, löndun úr
fiskiskipun og flutningaskipum.
Sagði Guðmundur bannið á sín-
um tíma aðallega hafa komið til
vegna þess hversu verkafólk hefði
verið orðið langþreytt á því að
„Jú, vissulega hafa verið gerðar
undantekningar frá þessu banni
eins og öðrum rcglum“, sagði
Guðmundur er hann var inntur
eftir því af hálfu blaðsins. Sagði
hann að t.d. hefði verið unnið við
löndun á rækju ef bátar hefðu
komið inn um helgar eða að
kvöldi því oft væri aðeins spurn-
ing um klukkutíma hvort rækjan
þyldi geymsluna þar sem um mjög
viðkvæma afurð væri að ræða.
Eins hefði slíkt tíðkast ef ísa hefði
þurft skip, sem væru t.d. á leið til
útlanda með afla.
Yfirkennarastaða Brekku-
bæjarskóla auglýst laus
Á blaðsíðu 9 í blaðinu í dag er að finna auglýsingu frá
Brekkubæjarskóla, þar sem auglýst er laus til umsóknar staða
yfirkennara við skólann.
Guðjón !\ Kristjánsson hefur gegnt þessari stöðu en hyggst nú
flytja búferlum úr bænum til Sandgerðis, þar sem hann hefur
fengið skólastjórastöðu við grunnskólann.
Mörgum mun eflaust þykja éftirsjá í Guðjóni, sem hefur verið
mjög vinsæll á meðal samkennara sinna og nemenda og ein helsta
driffjöðrin í starfi Skagaleikflokksins á liðnum árum.