Skagablaðið


Skagablaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 6

Skagablaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 6
„Sumir hafa talið sér skylt að hreyta í mann ónotum og skömmum" - rstt vii Gunnlaug Haraldsson, safnvöri, um kútter Sigurfara og ByggðasafniöíGörium Það hefur naumast farið framhjá mörgum íbúum þessa bæjarfélags, þegar kútter Sigurfari var opnaður almenningi til sýnis við hátíðlega athöfn 1. júní sl. Þeirra tímamóta mun eflaust lengi verða minnst hér á Skaga, því ekki er því að neita að margur var vantrúaður á að nokkru sinni tækist að koma kúttemum í það glæsilega horf sem hann er nú kominn ■ eftir 11 ára vera hér á Akranesi. Okkur á Skagablaðinu lék forvitni á að fræðast nánar um þetta mái, bæði forsögu þess og framtíð, eg skunduðum því á fund Gunnlaugs Haraldssonar safnvarðar, sem stjóraað hefur endurbyggingu Sigurfara undanfarin ár. Eftir talsverða leit í byggðasafninu fundum við loks Gunnlaug önnum kafinn á bak við fjallháan skjalabunka. Við spurðum fyrst um upphaf málsins. „Hugmyndina að þessu öllu saman átti sr. Jón M. Guðjóns- son og mun það hafa verið um 1970 að hann fyrst fór að hug- leiða það fyrir alvöru að fylkja mönnum til liðs við sig til kaupa á einum hinna íslensku kúttera, sem þá voru sem óðast aðhverfa af sjónarsviðinu í Færeyjum. Og þetta tókst með því að Kiwanisklúbburinn Þyrill tók málið að sér og keypti hingað Sigurfara á árinu 1974 og sá um að koma honum fyrir hér í Görðum. — Annars tel ég ást- æðulaust að við séum að rekja þá sögu hér frekar, henni hafa verið gerð all rækileg skil að undanförnu og nú síðast í afm- ælisritinu Kútter Sigurfari, sem um leið er sjómannadagsblað Akraness 1985.“ Skipið var á góðrí leið með að grotna niður. — Hvernig hefur þetta dæmi gengið upp fjárhagslega? „Bæði vel og illa. í fyrstu vil ég geta þess, að þegar kútterinn kom hingað til lands 1974 var stofnaður sérstakur sjóður, Sig- urfarasjóður, sem fékk það hlutverk að afla tekna til að kosta viðgerð skipsins. Stofn- framlag sjóðsins var útlagður kostnaður kiwanisfélaga við að koma skipinu til landsins. Síðan hafa menn beitt öllum brögðum við að öngla saman í þennan sjóð og dorgað á öllum hugsan- legum miðum, jafnt í opinber- um sjóðum og meðal einstakl- inga og fyrirtækja um land allt. Það er nú kannski rétt að skjóta því inn í, að umstangið við að koma Sigurfara hingað að safn- inu á árunum 1974-75 setti sjóð- inn í stórar skuldir, sem tók næstu 3 árin að greiða niður. Viðgerð á skipinu lá því niðri um mörg ár og það var á góðri leið með að grotna niður í höndum manna, þótt reynt væri að lappa upp á skipið til þess eins að bjarga því frá eyðilegg- ingu. Það var því annað hvort að duga eða drepast og eftir að ákvörðun var tekin um að ráða fasta starfsmenn að verkinu vor- ið 1982, fór fyrst fyrir alvöru að reyna á þolrif manna við að skrapa saman pening. Það hefur Þarna má sjá fyrstu „klippurnar“ sem landhelgisgæslan notaði í baráttunni við veiðiþjófana. komið í minn hlut að ganga um með betlistafinn þessi ár og þú mátt vita, að sú ganga hefur ekki verið þrautalaus. Hér hef- ur sjaldnast verið ljóst í upphafi vikunnar, hvernig ljúga mætti út peninga til að greiða út vinnulaun í vikulokin. En þetta hefur samt einhvern veginn rúll- að allt saman.“ — Og hvað hefur þetta svo kostað? „Þessari spurningu get ég því miður ekki svarað af nokkurri nákvæmni fyrr en í lok þessa árs, þegar öll kurl hafa komið til grafar. Auk þess hefur lítið upp á sig að nefna tölur nema framreikna þær allar til núvirð- is. Ég get þó ímyndað mér að heildarkostnaður liggi einhvers staðar á bilinu 5-6 miljónir kr. “ — Er frágangi skipsins að fullu lokið? „Nei, ennþá er ýmislegt eftir, s.s. lokafrágangur á reiðanum, seglbúnaði og innrétting káet- unnar. Þetta hyggjumst við drífa af sem fyrst, ganga frá káetunni í vetur og eins eru góðar horfur á að við fáum gömul hampsegl frá Færeyjum, þannig að næsta vor ætti að vera unnt að vinda upp segl á Sigur- fara.“ Gunnlaugur horfir með velþóknun á störf starfsmanns safnsins, Guttorms Jónssonar. Skagamenn mega vera stoltir — Hver hafa viðbrögð alm- ennings verið við þessu til- standi? „Þau hafa verið misjöfn máttu vita. Mér er nær að halda að Sigurfari hafi átt sér fáa stuðningsmenn og aðdáendur fyrstu árin og veit raunar með vissu, að margir fjandsköpuðust hreint og beint út í þessa „ó- ráðssíu“, sem menn töldu þetta fyrirtæki vera. Sjálfur hefur maður mátt þola ýmislegt mis- jafnt af munni manna á liðnum árum. Sumir hafa talið sér skylt að hreyta í mann ónotum og skömmum fyrir að vera að fást við þetta og eitthvað svipað hafa aðrir mátt þola, sem lagt hafa nafn sitt við þetta. Vita- skuld hefur manni þótt heldur miður að búa við svoddan skiln- ingsleysi og það er alltaf leiðin- legt að liggja undir ámæli, þegar maður telur sig vera að gera samferðamönnum sínum gagn, en það þýðir einfaldlega ekki að láta slíkt á sig fá. Það er sjaldn- ast sem svona málefni hafa byr í upphafi. En sem kannski er merkilegast í þessu sambandi, að sú hvatning og sá áhugi hefur miklu fremur borist utan frá, frá einstaklingum og fyrirtækj- um utan Akraness. Þaðan hefur líka drýgstur hluti fjárstuðn- ingsins komið. Hins vegar hefur maður virkilega fundið fyrir breytingum á viðhorfi fólks nú á síðustu mánuðum, eftir að Sigurfari fór að taka á sig þá mynd, sem hann hefur nú. Það hafa jafnvel komið til mín ýmsir þeirra, sem til skamms tíma bölsótuðust út í þetta, til að tilkynna mér um sitt gjörbreytta hugarfar. — Það er ánægjulegt að ég persónulega er ekki í nokkrum vafa um, að Skaga- menn mega vera stoltir af því að varðveita síðasta kútter ís- lendinga og ég veit að mörg Gunnlc Svona litu skólastofur út hér áðurjyrr.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.