Skagablaðið - 10.07.1985, Side 1
A seglbretti
Okkur þótti hann tignarlegur ungi maðurinn sem var að sigla
á seglbrettinu sínu í sjónum við Langasand einn góðviðrisdaginn
fyrir skömmu. Ekki vitum við hvort hann er að leggja upp í för
til Astralíu eða Japans, en líklegast þykir að hann sé einungis að
sigla fram og tilbaka þarna í fjörunni.
4 í landsliðinu
íslendingar eiga að spila tvo
landsleiki við Færeyinga nú í
þessari viku. Ekki þykja það
merkilegustu tíðindi í heimi og
við hefðum eflaust ekki minnst á
leikina nema að því leyti að annar
landsleikurinn verður leikinn hér
Reykjavík
og Akureyri
slegið við
íslandsganga Reynis Péturs
Ingvarssonar er það afrek ein-
staklings sem vafalítið á eftir að
bera hvað hæst þegar litið verður
yfir farinn veg um áramótin.
Alls er nú talið, að Reynir
Pétur hafi nælt Sólheimum í um 5
milljónir króna með uppátæki sínu
en þessi fjárhæð fékkst með
gjöfum, framlögum og áheitum á
meðan göngunni stóð.
Það vakti athygli á sínum tíma
þegar bæjarstjórn Akureyrar af-
henti Reyni Pétri ávísun með
framlagi upp á eina krónu fyrir
hvern bæjarbúa, alls tæplega
14.000 krónur. Reykjavíkurborg
lagði 250.000 krónur í Sólheima-
sjóðinn, rétt rúmar 3 krónur pr.
íbúa en nú getum við upplýst að
Skagamenn slógu báðum þessum
“höfuðstöðum" landsins við.
Skagamenn gáfu 20.000 krónur í
söfnunina eða rétt tæpar 4 krónur
á hvern íbúa.
á Akranesi. Verður sá leikur á
föstudaginn kl. 20.
Landsliðsnefnd hefur tilkynnt
val sitt á liðinu og munu tveir
Skagamenn vera í þvf í báðum
leikjunum og síðan aftur tveir til
viðbótar í leiknum hér á Akra-
nesi. Peir tveir leikmenn sem
verða í báðum leikjunum eru þeir
Árni Sveinsson og Sveinbjörn
Hákonarson. Síðan í leiknum hér
bætast þeir Hörður Jóhannesson
og Guðjón Þórðarson við.
Við Skagamenn eigum því fjóra
leikmennn í landsliðinu í leiknum
hér á Akranesi og er ekki að efa
að áhorfendur munu fjölmenna á
leikinn og fylgjast með sínum
(okkar) mönnum og hvetja lands-
liðið til sigurs í þeim leik.
Bæjarstjóm
í sumarfrí
Fundur bæjarstjórnar í
gærdag var sá síðasti áður en
hún tók sér sumarleyfi. Næsti
fundur bæjarstjórnar verður
ekki fyrr en þriðjudaginn 27.
ágúst þannig að bæjarstjórn-
arfulltrúarnir taka sér 6 vikna
hlé.
Ekki mun þeim veita af
smá afslöppun ef að líkum
lætur því það er ekki tekið út
með sældinni að gegna em-
bætti bæjarfulltrúa eins og sjá
má reyndar á baksíðu í um-
fjöllun um laun þessa fólks.
„Það verður handbolti
næsta vetur og ekkert
uppgjafaihljóð í okkur“
■segir Gunnar Sigmundsson, sem nýlega hefur tekið við formennsku
í handknattleiksráði og hyggst rífa starfið upp með nýjum mönnum
„Við erum nú ekkert allt of hressir með greinina ykkar í
Skagablaðinu,“ sögðu þeir Gunnar Sigmundsson, nýlega orðinn
formaður Handknattleiksráðs, og Kristinn Reimarsson, ritari
ráðsins, er þeir komu að máli við Skagablaðið í framhaldi af fréttinni
á forsíðu í síðustu viku, þar sem því var velt upp hvort hugsanlega
yrði enginn handknattleikur stundaður á Akranesi á vetri komnada.
„Það verður handbolti næsta
vetur og ekkert uppgjafarhljóð
í okkur," bættu þeir félagar við
og sögðu að nú þegar væru
komnir fjórir menn í ráðið og
tveir til viðbótar væru í sigtinu.
“Hugmyndin hjá okkur er að
keri, þegar
ráðsmenn.
ákveðnir sem
Róttækar aðgerðir
— Hvernig hafið þið hugsað
ykkur að reyna að klippa aftan
af skuldahalanum?
Tveir forkólfar hins nýja handknattleiksráðs, Kristinn Reimarsson
(t.v.)
vera með 7 manna ráð og að
fela hverjum ráðsmanni umsjón
með ákveðnum flokki, utan
gjaldkeranum. Honum erætlað
að helga sig því embætti alfarið.
Skuldirnar eru nokkuð miklar,
þó ekki eins miklar og þið
sögðuð frá í blaðinu.“ Auk
Gunnars og Kristins eru þeir
Gunnar Viðarsson og Magnús
Brandsson, sem verður gjald-
„Það er Ijóst,“ sagði Gunnar,
„að eitthvað verður að gera og
það róttækt. Hvað það verður
liggur ekki endanlega ljóst fyrir
en margar hugmyndir eru uppi.
fjáröflun hefst af krafti í byrjun
ágúst.“
— Hvernig fer með víxlana sem
falla á næstu vikum?
„Víxlarnir eru ekkert að falla.
Við fáum þeim framlengt og
reynum eftir mætti að greiða af
þeim.“
— Er íþróttabandalagið ábyrgt
ef í harðbakkann slær?
„Nei, við erum með sjálfstæð-
an fjárhag og verðum að standa
við okkar skuldbindingar. Það
er ofur eðlilegt.“
— Hafið þið einhverja skýringu
á hinum miklu skuldum
ráðsins?
„Það er erfitt að benda á
einhverja einhlíta skýringu en
sennilegast er þó að aðhald hafi
ekki verið nægt svo og hitt, að
fjárhagsáætlanir hafa ekki verið
gerðar. Við ætlum okkur að
ráða bót á því og reyna af
fremsta megni að fylgja henni
og reyna jafnframt að greiða
niður skuldirnar.“
— Fer ekki allur kráfturinn í að
halda ráðinu á floti og hversu
mikið kostar rekstur þess á einu
keppnistímabili?
Markmið
„Það fer auðvitað mikill tími
í fjármálin en við höfum sett
okkur þau markmið, að koma
meistaraflokki karla upp í 2.
deild og meistaraflokki kvenna
í 1. deildina á ný. Þá er ætlunin
að reyna að stórefla starfið í
yngri flokkunum og einn liður í
því verður handknattleiksskóli,
sem við höfum mikinn hug á að
halda hér eftir nokkrar vikur.
Slíkt hefur ekki verið gert
áður. En hvað varðar rekstur
á ráðinu gæti ég trúað að hann
kostaði ekki undir hálfri milljón
á ári,“ sagði Gunnar.
— Hafa einhverjir hinna nýju
ráðsmanna verið í handknatt-
leiksráði áður?
„Nei, enginn nema ég,“ sagði
Gunnar. „Hinir eru allir nýliðar
á þessum vettvangi en það er
mikill hugur í mönnum. Ég vil
í lokin koma því á framfæri, að
síðasta ráð gerði margt gott og
stöðvaði t.d. skuldauppsöfnun-
ina og náði að greiða hluta
skuldanna niður. En betur má
ef duga skal.“