Skagablaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 1
StórleikurSkagamannaogFramara í Bikarkeppni KSÍ kl. 18.30:
„Þa ðverðu irbarisl | „Lofa því að við fáum
upp á líf og dauða M ekki annan stórskell“
- segir Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagamanna • segir Ómar Torfason, markahæsti maður Fram
Óhætt er að segja að um fátt
hafi verið meira að rætt hér á
Akranesi síðustu dagana en bikar-
leik Skagamanna og Framara,
sem hefst í kvöld kl. 18.30. Allir
eru minnugir þess hvernig viður-
eign liðanna um fyrri helgi lykt-
aði, en þá unnu okkar menn
stórsigur, 6:2. Flestir eru einnig
sammála um að róðurinn í dag
verði þyngri hjá Skagamönnum
en síðast. Skagablaðið sveif á
lykilmenn úr báðum liðum í gær,
Sigurð Lárusson, fyrirliða IA, og
Ómar Torfason, markahæsta
mann Framaranna, og spurði þá
út í stórleikinn.
Upp á líf og dauða
„Það er geysilega mikill áhugi á
meðal okkar fyrir þessum leik og
við leggjum allt í sölurnar til þess
að þessi leikur vinnist," sagði
Sigurður Lárusson, fyrirliði
Skagamanna, er Skagablaðið
ræddi við hann um leikinn í dag.
„Auðvitað gerum við okkur fulla
Sigurður Lárusson, fyrirliði
Skagamanna.
grein fyrir því að þetta verður
erfitt — mun erfiðara en um
daginn — Og við komum aldrei til
með að skora 6 mörk aftur.“
— Stillið þið upp sama liði og
þá?
„Já, að því er ég best veit þá
verðum við með alveg óbreytt lið
og við leikum bara sömu knatt-
spyrnuna og við höfum gert
undanfarin ár. Hún hefur skilað
af sér góðum arði.“
— Attu von á að þetta verði
markaleikur?
„Nei, tæpast verða skoruð mjög
mörg mörk í leiknum og ein-
hvernveginn leggst það þannig í
mig að þessi leikur verði fram-
lengdur. Hvernig hann fer? Ég
veit það ekki, vil aldrei spá um
slíkt, en hann vinnst með einu
marki. Það verður ekki meiri
munur. En þetta verður ofboðs-
legur baráttuleikur, barist upp á
líf og dauða. Við gefum allt sem
við eigum og jafnvel meira en
það. Þetta er leikur sem við
verðum að vinna.“
Frábær nýting.
„Við höfðum gott af því að fá
þennan skell um daginn," sagði
Ómar Torfason, markahæsti
leikmaður Fram í íslandsmótinu,
er Skagablaðið sló á þráðinn til
hans í gær og innti hann eftir því
hvernig Framarar væru stemmdir
fyrir stórleikinn í dag. „Við vor-
um að skoða leikinn á myndseg-
ulbandi og sáum þá, að við áttum
ekkert minna í leiknum en Skaga-
mennirnir, þeir nýttu færin sfn
hins vegar frábærlega. Áttu níu
færi, skoruðu 6 mörk.“
— Áttu von á að ykkur takist
að sigra í leiknum?
„Já, við erum mjög bjartsýnir
og gefum ekki þumlung eftir.
Mórallinn hjá okkur er eins og
best verður á kosið og menn eru
staðráðnir í að selja sig dýrt.“
— Nú skaut Valgeir Barðason
ykkur skelk í bringu um daginn,
setjið þið mann til höfuðs honum?
„Við gefum ekkert upp hvernig
við ætlum að leika þennan leik en
við verðum með breytingar, sem
við höfum verið að æfa. Hvað
Valgeir varðar þá verð ég nú að
viðurkenna að ég þekkti hann
ekkert fyrir þennan leik. Hann
stóð sig hins vegar frábærlega
gegn okkur og kom okkur ger-
samlega í opna skjöldu. Við vitum
hins vegar af honum núna.“
— Hafið þið eitthvað velt fyrir
ykkur orsökum ófaranna um dag-
inn þegar þið töpuðuð 2:6?
„Já, eins og ég sagði skoðuðum
við leikinn á myndbandi. Það
gefur hins vegar auga leið, að það
er afar erfitt að vinna upp 2:0
forskot á Akranesi eftir aðeins 5
mínútna leik. Þriðja markið kom
svo á mjög slæmum tíma, rétt
fyrir hálfleik."
— Nú hefur þú skorað grimmt
í sumar og skoraðir einmitt gegn
Skagamönnum um daginn, ætl-
Þótt leikurinn gegn frændum
vorum Færeyingum sl. föstudag
flokkist seint undir augnayndi
var hann okkur Skagamönnum
merkilegur fyrir þær sakir, að
þetta var fyrsti landsleikurinn
sem hér hefur farið fram. Island
sigraði 1:0 með marki Péturs
Péturssonar í slökum leik.
Skagamenn áttu fjóra lands-
arðu að endurtaka þann leik?
„Auðvitað vona ég að mér
takist að skora í þessum mikil-
væga leik okkar. Við munum
sækja til sigurs og leggja allt kapp
á að komast á sigurbraut á ný.
liðsmenn í tilefni dagsins, eigin-
lega fimm ef við teljum Pétur
Pétursson með. Pétur lék sinn
25. landsleik en Árni Sveinsson
sinn 50. Þá léku Hörður Jó-
hannesson og Guðjón Þórðar-
son báðir sinn fyrsta landsleik.
Sveitibjörn Hákonarson var
fimmti Skagamaðurinn sem lék.
Með þessum áfanga sínum
Margir hafa haldið því fram, að
tapið um daginn myndi slá okkur
út af laginu en við ætlum að af-
sanna það. Ég lofa því að við
fáum ekki annan stórskell" sagði
Ómar Torfason í lokin.
varð Árni Sveinsson aðeins ann-
ar íslendingurinn til að ná 50
landsleikjum. Marteinn Geirs-
son varð fyrri til og lék alls 67
sinnum með landsliðinu áður
en ferli hans lauk.
Meðfylgjandi mynd sýnir
fjóra þeirra fimm Skagamanna
er spiluðu leikinn. Sveinbjörn
er ekki með á henni.
Ami Sveins lék sinn
fimmtugasta landsleik
Lesendur ■ muniÓ ókeypis smáauglýsingar Skagablaðsins!