Skagablaðið - 24.07.1985, Blaðsíða 1
Guðmundur ásamt konu sinni Ernu Jóhannsdóttur.
„Mér líst mjög
vel á staðinn
• segir Guðmundur Vilhjálmsson, hinn nýi útibús-
stjóri Landsbankans, sem byrjaði á mánudaginn
„Mér líst mjög vel á staðinn. Her er allt hreint og þrifalegt og
íbúarnir virðast ánægðir,“ sagði Guðmundur Yilhjálmsson, hinn
nýi útibússtjóri Landsbankans á Akranesi, er Skagablaðið ræddi
við hann í gær. Guðmundur hefur nú tekið við störfum af Helga
Jónssyni, sem er kominn til Akureyrar.
„Ég kom hingað á föstudag
ásamt konu minni og við höfum
svona verið að koma okkur
fyrir. Ég er nú varla kominn í
gang en hef þó verið við eftir
hádegið en það breytist nú fljót-
lega,“ sagði Guðmundur enn-
fremur. Hann hafði komið hing-
að tvívegis áður gagngert í
tengslum við hina nýju stöðu.
Guðmundur hefur starfað
mjög lengi hjá Landsbankan-
um. Hann var bókari í útibúinu
á Eskifirði í 14 ár, áður en hann
varð útibússtjóri í Grindavík í 6
ár og síðar á Höfn í Hornafirði
í 6 ár, þaðan sem hann kemur
nú.
Er Skagablaðið spurði
Guðmund að því hvort mikill
munur yrði fyrir hann að stýra
útibúinu hér og á Höfn svaraði
hann því til að starfsmanna-
fjöldinn væri tvöfaldur hér á við
á Höfn en það þýddi ekki endi-
lega að umsvifin væru tvöfalt
meiri. Breytingin væri því
samt nokkur.
Hringtorgið úr sög-
unni, tölvustýrð um-
férðarljós í staðinn
Samkvæmt heimildum Skagablaðsins bendir nú allt til þess að enn
verði kúvent í lausn vandræðagatnamótanna sem svo hafa verið
nefnd, móta Stillholts og Kirkjubrautar/Kalmansbrautar. Þegar síðast
fréttist var hringtorg talið heppilegasta lausnin en nú munu uppi
hugmyndir um tölvustýrð umferðarljós, sem stýrast af umferðarþung-
anum.
Hugmyndin um hringtorgið
þótti allra góðra gjalda verð þar
til farið var dýpra ofar, í saumana
á þeim kosti. Þegar betur var að
gáð — og þar virðist sem bæjar-
stjórn hafi ekki fengið nægilega
haldgóðar upplýsingar í öndverðu
— kom í ljós, að hallinn á um-
ræddum gatnamótum er slíkur,
að ekki er gerlegt að setja þar
hringtorg án þess að gera veruleg-
ar endurbætur á götunum, þ.e.
jafna hallann.
Lausleg kostnaðaráætlun um
gerð hringtorgs er einhvers staðar
á bilinu 1,6-2 milljónir króna en
umferðarljós af því tagi sem að
framan greinir kosta um 800 þús-
und krónur auk uppsetningar.
Lætur því nærri að sá kostur sé
Frá gatnamótunum umræddu.
allt að einni milljón kr. ódýrari.
Þar sem bæjarstjórn er nú í
sumarleyfi þar til í ágústlok verð-
ur ekki tekið á málinu af neinni
festu fyrr en leyfinu lýkur en
samkvæmt heimildum blaðsins er
þess fastlega að vænta, að ákvörð-
un um kaup á áðurnefndum ljós-
; um verði tekin strax og bæjar-
stjórn kemur saman.
„Stófkostleg fækkun
árekstra á Akranesi“
„Árekstrum fækkaði um rúmlega 50% á fyrstu 6 mánuðum þessa
ars, miðað við sama tíma í fyrra.“ Þetta kom fram í samtali sem
Skagablaðið átti við Svan Geirdal, yfirlögregluþjón.
„Árekstrar í fyrra voru 100
fyrstu 6 mánuðina, en einungis 46
í ár. Aðalástæður þessa tel ég
vera færðina og tíðarfarið sem er
miklu betra í ár og eins tel ég
aukna varúð ökumanna eiga sinn
þátt i þessu. í maímánuði í fyrra
voru 25 árekstrar, en einungis
10 í ár, og í þeim mánuði er ekki
hægt að tala um mismunandi
tíðarfar eða færð. Þar hlýtur ein-
ungis aukin varúð að koma til.“
„Á Akranesi eru fæstir árekstr-
ar á öllu landinu miðað við íbúa-
tölu og er það mjög ánægjuleg
staðreynd. Menn verða þó alltaf
að athuga að aukið umferðarör-
yggi kemur ekki af sjálfu sér,
heldur er það frammistaða allra
þeirra sem þátt taka í umferðinni
sem þar veldur.“ sagði Svanur að
lokum. ming.
Stórmót hestamanna úr
Dreyra og Faxa íFaxaborg
-sjábls. 6-7,
Systumar uréu innlyksa í
Svíþjóð íheimstyrjöldinni
-sjábls. 10.
Listaverk bæjarins eru90
eneruöiiávíðogdreif
-sjáblsS.
Lesendur - munid ókeypis smáauglýsingar SkagablaÓsins!