Skagablaðið - 28.08.1985, Síða 1
Siggi kjörinn
„maóur leiks*
ins“ gegn Wat-
ford ámánudag
- hefur leikið 3 síðustu leiki Sheffield
Wednesday sem allir hafa unnist
„Mér gekk mjög vel í dag, var meira að segja kosinn maður
leiksins,“ sagði Sigurður Jónsson er Skagablaðið hafði samband við
hann í fvrrakvöld eftir að hann og félagar hans hjá Sheffield
Wednesday höfðu lagt Watford að velli, 2:1, á Hillsborough,
heimavelli liðsins, á mánudag. Wednesday er nú í 2. sæti ensku 1.
deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu 4 leikina og Siggi hefur leikið þrjá
síðustu leiki liðsins, sem allir hafa unnist.
„Þetta hefur gengið
framar," sagði Siggi ennfremur.
„Ég missti verulegan hluta undir-
búningstímabilsins úr vegna
meiðsla, fyrst var það ökklinn,
síðan fór ég úr axlarliði og eftir
það varð ég að koma heim í
fáeina daga til þess að geta endur-
nýjað landvistarleyfið mitt og þar
með atvinnuleyfið. Mér hefur
gengið vel að komast í æfingu og
var settur inn í byrjunarliðið gegn
Nottingham Forest á miðvikudag
í síðustu viku. Við unnum á
útivelli, 1:0 og síðan unnum við
Manchester City, 3:1, á Iaugar-
daginn, einnig á útivelli.“
Leikurinn á mánudag var því
þriðji leikur Sigga með aðalliði
Wednesday á aðeins 5 dögum.
Orð Wilkinson, framkvæmda-
stjóra liðsins, frá því í vor er
Skagablaðið heimsótti Sigga, hafa
því komið á daginn. Hann sagði
þá í viðtali, að hann vonaðist
eindregið eftir því að Siggi yrði
fastamaður í liðinu frá upphafi
keppnistímabilsins, sem nú er ný-
hafið.
Bæjarstjórn
úr fríinu
Fyrsti fundur bæjarstjórnar
Akraness eftir sumarfrí var hald-
inn í gær og voru að vanda mörg
mál tekin fyrir. Fundurinn bar
þess þó nokkur merki að menn
voru að koma úr sumarfríi.
„Það er nú enginn öruggur með
sæti sitt í liðinu hjá okkur en ég
reikna með því að verða inni gegn
Oxford á laugardaginn. Við leik-
um á útivelli og sá leikur gæti
orðið okkur erfiður. Völlurinn
þeirra er lítill og erfitt að leika
þar.“
— Hvernig tilfinning er það að
vera orðinn fastamaður í liði, sem
er í toppslagnum í Bretlandi?
„Það er auðvitað gaman þegar
vel gengur en ég stefni nú bara að
því einu að halda sæti mínu í
Iiðinu. Takmarkið var að komast
í byrjunarliðið og það hefur
tekist. Nú er að halda stöðunni.“
—SSv
Siggi Jóns í leik með Wednesday.
Nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum:
Fyrsta
skóflu'
stungan
Það verður nóg um að vera
á íþróttavallarsvæðinu á Jað-
arsbökkum í kvöld því ekki
aðeins fer þar fram mikilvæg-
ur leikur IA og Vals í 1.
deildinni í knattspyrnu, held-
ur mun fyrsta skóflustungan
að nýju íþróttahúsi verða tek-
in strax að leik loknum.
Að því er Skagablaðið hef-
ur fregnað kemur það í hlut
Ríkharðs Jónssonar. fyrrum
knattspyrnukappa og þjálfara
Skagamanna um árabil, að
taka fyrstu skóflustunguna og
er það vel við hæfi.
Nú þegar er hin nýja sund-
laugarbygging komin vel
áleiðis í byggingu og með
tilkomu hins nýja íþróttahúss
fer Jaðarsbakkasvæðið að
taka á sig mynd íþróttamið-
stöðvar.
Bæjarritara-
laustíbænum
Bæjarritaralaust er nú hjá
Akraneskaupstað, þar sem Jó-
hannes Finnur Halldórsson, sem
gegnt hefur stöðunni sl. 5 ár,
hefur sagt upp störfum og ekki
verið ráðið í hans stað. Ráðning
nýs bæjarritara mun þó væntan-
lega afgreidd mjög fljótlega.
Getraunaleikur Skagablaðsins hefst í dag:
Bankastjóramir etja kappi
saman í fyrstu umferðinni
Eins og við skýrðum frá í
síðasta Skagablaði eru íslenskar
getraunir komnar á kreik á ný
eftir sumarleyfið og það þýðir
auðvitað ekkert annað en það að
getraunaleikur Skagablaðsins,
sem naut svo mikilla vinsælda sl.
vetur hefur göngu sína á ný,
Getraunaþáttinn er að finna á
bts. 5 í dag og það eru ekki neinir
aukvisar sem hefja leikinn, Til
vígslunnar hafa valist útibús-
stjórar béggja bankanna á
staðnum. Guðmundur Vil-
hjálmsson í Landsbankanum og
Örnólfur Þorleifsson í Sam-
vinnubankanum.
Fyrirkomulag leiksins verður
þannig í vetur að tveir þátttak-
endur etja kappi saman hverju
sinni og heldúr sá áfram scm
slendur sig betur. Hinn döttur
eðlilega út en fær um leiö tæki-
færi til þess að ncfna eftirmann
sinn.
Spár þcirra Guðmundar og
Ornólfs eru á koflum nokkuð
líkar; 7 leikir cins. en 5 með
mismunandi merkjum. Pað
vetðúr því væntantega hart har-
ist og spurningin er aðeins þessi:
Hvor sigrar, Landsbankinn cða
Samvinnubankinn.’ Henni verð-
ursvaraðálaugardag.
Sjá uánar á bls. 5.
Lesendur • munid ókeypis smáauglýsingar Skagabladsinsi
i