Skagablaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 1
Tillagna stjó m-
skipaörar ne fnd-
ar aöeins be ðió
- skipakaup Krossvíkur í biöstöðu
„Málið stendur þannig nú, að
nefnd, sem ríkisstjórnin skipaði á
sínum tíma, er að gera tillögur um
hvernig verður staðið að þessum
málum,“ sagði Ingimundur Sig-
urpálsson, bæjarstjóri er Skaga-
blaðið ræddi við hann í vikunni og
Bæjarritarastarfið:
Fjórir sóttu
um stöðuna
Fjórir menn hafa sótt um stöðu
bæjarritara, sem formlega verður
ráðið í næsta þriðjudag. Umsækj-
endurnir eru þessir: Einar
Jónsson, Gísli Gíslason, Gísli
Þorsteinsson og Kristján F.
Oddsson.
Umsóknarfresturinn erútrunn-
inn þannig að slagurinn stendur á
milli þessara fjögurra.
spurði hann hvað liði ákvörðun
um skipakaup Krossvíkur en
Akraneskaupstaður er eignaraðili
að fjórða hluta í fyrirtækinu.
Miklar vangaveltur hafa verið í
bænum undanfarið um hugsanleg
skipakaup Krossvíkur og áður
höfum við á Skagablaðinu skýrt
frá áhuga forráðamanna Kross-
víkur á að kaupa togarann, sem
verið hefur í smíðum hjá Skipa-
smíðastöð Þorgeirs & Ellerts.
Hafa verið uppi skiptar skoðanir
um réttmæti þess að Krossvík
keypti skipið, ekki síst í ljósi
reglna um sjósókn og kvóta.
Ingimundur sagði ljóst, að ekki
tjóaði að kaupa skip sem svo
hefði engan kvóta til að afla upp
í. Það væri að sjálfsögðu algert
skilyrði að skipið gæti farið til
veiða og hefði einhvern kvóta.
Sagði bæjarstjóri ennfremur að
beðið yrði niðurstöðu umræddrar
nefndar áður en endanleg ákvörð-
un yrði tekin.
„Vi ð eigum b; ara
5 mínútur efti
— kölluðu veiðiþjófamir til laxveiiimannanna,
sem stóiu þá ai verki, en annar tók svo til fótanna
Tveir ungir menn úr nærsveitum Akraness voru staðnir að verki
snemma á sunnudagsmorgun er þeir voru að veiða lax í net í Laxá í
Leirársveit. Höfðu þeir nælt sér í 19 laxa er til þeirra sást og endi
bundinn á hina ólöglegu veiði. Að sögn sýslumanns í Borgarnesi gáfu
þeir sig fram síðar um daginn.
Sigurjón Hannesson var einn
þeirra er kom að veiðiþjófunum
þegar klukkuna vantaði 20 mínút-
ur í 7 á sunnudagsmorgun. „Við
áttum að byrja að veiða klukkan
7 í sama hylnum og þeir höfðu
verið að athafna sig í þegar við
komum að þeim,“ sagði Sigurjón.
Bætti hann því við að veiðiþjóf-
arnir hefðu kallað til þeirra, að
þeir ættu eftir að veiða í 5 mínút-
ur, svo væru þeir búnir. Sigurjón
var með myndavél með sér og
reyndi að smella mynd af söku-
dólgunum en þeir náðu að snúa
sér undan í morgunskímunni.
Myndunum af löxunum náði hann
hins vegar vel.
Þrjótarnir voru vel útbúnir til
verksins og höfðu með sér plast-
poka til þess að setja laxinn í og í
öðrum pokanum var meira að
segja kvittun frá verslun Ellingsen
í Reykjavík fyrir kaupum á netun-
um sem þeir notuðu.
Að sögn Rúnars Guðjónsson-
ar, sýslumanns í Borgarnesi, er
ekki vitað til þess að sambærilegt
mál hafi komið upp í sýslunni á
liðnum árum. Hann sagði enn-
fremur að við lögbrotum sem
þessum væru fjársektir en ekki
væri hægt að segja til um hve háar
þær yrðu fyrr en dómur félli í
málinu.
Mikil reiði mun ríkja á meðal
laxveiðimanna, m.a. hér á Akra-
nesi, vegna þessa máls og þykir
mönnum súrt í broti að menn úr
nágrannasveitum árinnar skuli
hafa staðið að netaveiði að nætur-
þeli.
„Akranes borgar betur en
mörg önnur sveitarfélög“
Eins og áður hefur komið
fram í Skagablaðinu hafa starfs-
menn bæjarskrifstofunnar flúið
einn af öðrum það sem af er
árinu hverju svo sem um er að
kenna. Þær sögur hafa gengið,
að störf hjá bænum séu svo illa
launuð, að menn standist ekki
freistinguna þegar þeir fái boð
um aðra og þá um leið betur
borgaða vinnu.
Til þess að fá fram sjónarmið
bæjarins í þessu máli höfðum við
samband við Ingimund Sigur-
pálsson, bæjarstjóra, og spurð-
um hann að því hvort hann teldi
að léleg laun væru meginorsökin
fyrir fólksflóttanum.
—segir Ingimundur
Sigurpálsson, bæjarstjóri
„Ekki er það nú svo eftir því
sem ég hef heyrt, heldur hitt að
fólk vill gjarnan breyta til og
takast á við önnur verkefni.“ Þá
sagði Ingimundur ennfremur að
því væri ekki að neita, að laun
hjá hinu opinbera væru almennt
slök miðað við laun hjá einkaað-
ilum en þó borgaði Akranesbær
beturen mörg önnursveitarfélög
sem hann hefði haft spurnir af.
Eflaust hefðu launin þó sitt að
segja þegar fólk skipti um vinnu
en þó væri það svo, að þegar
bærinn auglýsti laus störf til
umsóknar sæktu margir um og
væri ekkert vandamál að fá fólk
til vinnu.
Lesendur • munió ékeypissmáauglýsingar Skagahlaósins!