Skagablaðið - 25.09.1985, Blaðsíða 2
Félagar í Sundfélaginu fjölmenntu í mótauppsláttinn. Hér handleikur
Ragnheiður Runólfsdóttir hamarinn. Henni er bersýnilegafleira til lista
lagt en að setja íslandsmet í sundi.
Stúlkurnar í meistaraflokki kvenna taka til hendinni og hreinsa
steypumót.
Þátttakan í sjálfboóavinnunni ævintýri líkust:
Fyrsta áfang-
anum er lokiö
Tvær sleggjur á lofti. Strákarnir í Badmintonfelaginu handleku
sleggjurnar eins og badmintonspaða og ráku niður hœla af miklum
krafti.
Það er óhætt að segja að sjálfboðavinnan hjá IA gangi vel. Tæpum
fjórum vikum eftir að fyrsta skóflustungan var tekin er lokið við fyrsta
áfangann og þann áfanga sem stefnt var að að ljúka í haust. Sá áfangi
var sökklar neðan gólfplötu. Síðustu steypunni var rennt í sökklamótin
á mánudaginn var, og þar með er lokið við að steypa sökkulinn allan
hringinn. Samkvæmt viðtölum við þá í A menn hafa þeir umtalsverðan
hug á að halda áfram og byrja á þeim hluta veggjanna, sem eru
steinsteyptir. Ákvörðun um það verður tekin á næstunni.
Laxveiðitímabilinu lokið á þessu ári:
Misjöfn veiði í ám SVFA
Þá er laxveiðitímabilið á enda þetta árið. Misjafnlega fiskaðist
hinum ýmsu ám eins og verða vill. Það fer eftir einu og öðru hve vel
fiskast í hverri á. Hér á suðvesturlandi var mikil þurrkatíð í sumar og
hefur það trúlega átt sinn þátt í því að frekar illa fiskaðist í þeim ám
sem Stangaveiðifélag Akraness var með á leigu í sumar, en þær voru
Andakflsá, Flekkudalsá, Fáskrúð og Glerá.
Veitt var með tveimur stöngum en þrjár stangir eru leyfðar í
í ánni. f fyrra komu 106 laxar á henni á dag. Hún rétti laxveiði-
land úr Andakílsá en 102 í sumar
þannig að segja má, að veiðin hafi
verið svipuð bæði árin. Andakílsá
hefur þó nokkra sérstöðu því
meira en helmingur aflans, alls 52
laxar, kom á flugu.
Segja má að sæmilega hafi
veiðst í Fáskrúð í sumar en úr
henni komu 253 laxar sem er mun
skárra en í fyrra. Þá gaf hún af sér
165 laxa. í Fáskrúð er veitt á 2
stangir.
Úr Glerá komu aðeins þrír
fiskar þetta sumarið en í fyrra
komu nokkrir tugir laxa úr ánni.
Loks er að nefna Flekkudalsá
köppunum 133 laxa, sem er mun
minna en í fyrra en þá gaf hún af
sér 189 fiska. Og líklega er þetta
eitt lakasta sumar í henni frá því
SVFA tók hana fyrst á leigu fyrir
25 árum.
En þótt illa gangi við veiðarnar
eitt sumarið gleymist það yfir
veturinn og menn sækja í veiði-
leyfin að vori fullir áhuga og
vonar um góða veiði. Og þannig
seljast öll veiðileyfi þótt menn
hafi í flimtingum að hætta laxveið-
um þegar illa gengur. En sá sem
einu sinni hefur dregið lax á stöng
losnar ekki svo auðveldlega við
veiðibakteríuna.
Góður fengur — þó ekkifrá nýliðnu sumri.
„Skoðið bara kálfana“
„Farið þið bara upp í sveit að hjóla og skoða kálfana.“ Þannig
svaraði bæjarstjórinn sjálfur nokkrum ungmennum bæjarins er þau
gengu á funda hans fyrir skemmstu til þess að mótmæla aldurstak-
marki á spilasal einum hér í bæ.“
Þessi úrdráttur er úr bréfi sem Skagablaðinu hefur borist frá hópi
unglinga í 7. og 8. bekkjum grunnskólanna. Eru krakkarnir ekki
allt of ánægðir með þá aðstöðu sem unglingum bæjarins er sköpuð.
Segjast ekki vilja vera í Arnardal því þar sé ekkert gaman.
Á meðal spurninga, sem krakkarnir leggja fyrir bæjarstjórnar-
menn eru þessar: 1. Getiði nefnt okkur rökrétta ástæðu fyrir því að
við megum ekki vera í spilasalnum? 2. Hvað eiga unglingar á
Akranesi að gera af sér? 3. Er ekki hægt að bæta úr þessu með því
að efla eftirlit með spilasalnum um helgar?
Þessu er hér með komið á framfæri.
Spuming
vikunnar
Hvað ætlar þú að vera
þegar þú verður stór?
Björgvin Guðjónsson: — Etna-
fræðingur, það er svo skemmti-
legt.
Vignir Elísson: — Atvinnumaður
í fótbolta, annars lögga.
Gunnlaugur Þór Guðmundsson:
— Atvinnumaður, annars járn-
iðnaðarmaður.
Stefán Þórðarson: — Atvinnu-
maður, eða þá að hjálpa til hjá
afa.
Skagabladið
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson g| Blaðamaður og Ijósmyndari: Arni S. Árnason |
Auglýsingar: Steinunn Árnadóttir (heimasími 2955) ■ Umsjón með dreifingu, áskriftum og
innheimtu: Sigríður Árnadóttir | Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent | Útlit:
Skagablaðið H Ritstjórnarskrifstofa er að Suðurgötu 16 og opin alla daga | Símar 2261 og 1397
| Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes.
2