Skagablaðið - 25.09.1985, Side 11
Líf og fjör
við höfnina
Lífæð bæjarins er réttnefni á Akraneshöfn. Þótt dauft sé yfir
bæjarlífinu er óhætt að segja að aldrci ríki deyfð við höfnina. Það
sannaðist er við Skagablaðsmenn vorum á rölti við höfnina í
blíðunni á mánudag.
Á Litlu bryggjunni sem svo er enfnd voru menn að bisa við að
færa bát úr stað til viðgerða en eins og hann stóð lokaði hann nánast
fyrir alla umferð. Stór krani var notaður til verksins og gekk það
skjótt fyrir sig eftir að menn höfðu eytt þó nokkrum tíma í
vangaveltur.
Víkingur AK-100 er að búa sig undir loðnuvertíðina og þar sem
hann lá við bryggju voru menn um allt skip að mála og snurfusa.
Þá var sömuleiðis verið að koma fyrir loðnudælurörum við
hafnarkantinn á Stóru bryggjunni er við vorum þarna á ferð.
Fjöldi smábáta virðist stöðugt fara vaxandi og sem við vorum
niður við höfn kom einn, Særún, öslandi og var að færa sig úr stað.
Fjöldi báta lá við smábátabryggjuna og vaggaði þar í blíðunni —
áhyggjulaust að því er best varð séð enda vita þeir eflaust ekkert
um kvótafyrirkomulagið þótt eigendurnir viti sumir ekki sitt
rjúkandi ráð í kjölfar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra.
Myndirnar sem fylgja hér með segja annars eflaust meira en mörg
orð.
Örnólfur Þorleifsson. Skúli Garðarsson.
Óhætt er að segja að engin bönd haldi Örnólfi Þorleifssyni,
bankastjóra Samvinnubankans, hér í getraunaleiknum á Skagablað-
inu. Hann ruddi síðustu hindruninni, Eyjólfi Harðarsyni, úr vegi án
þess að blása úr nös og nældi sér í 8 rétta. Eyjólfur fékk aðeins4 rétta.
Andstæðingur Örnólfs að þessu sinni er Skúli Garðarsson, alræmdur
getraunaspekingur og „kerfiskarl". Hann var einmitt sá sem nældi sér
í 12 rétta hér á Skaganum fyrir skemmstu. Við fréttum af því að hann
hefði undirbúið sig sérstaklega fyrir viðureignina við Örnólf, m.a.
lagst á bæn. Skúli er einlægur aðdáandi Arsenal og tippar að sjálfsögðu
á sína menn. Hilmir SU kom að bryggju
Spár spekinganna fylgja hér á eftir: Örnólfur Skúli hér á Akranesi á þriðjudag í
Arsenal-Newcastle 1 1 síðustu viku. Unnið var við að
Aston Villa-Everton 2 2 taka rækjubúnaðinn, sem settur
Coventry-WBA 1 1 var í skipið hér í vor. Þetta er
Leicester-Ipswich 1 X gert, þar sem hann er að halda
Liverpool-Tottenham 1 2 til loðnuveiða og þá er áður-
Manc.United-Southampton 1 1 nefndur búnaður fyrir. Þetta
Oxford-Machester City 2 X verk var unnið af starfsmönnum
OPR-Birmingham X 1 Þ&E.
Sheffield Wednesday-Luton 1 1 Nýr bátur kom hingað tii
West Ham-Nottingham Forest 1 X Akraness í síðustu viku. Bátur-
Portsmouth-Blackburn 1 1 inn er rúmar 10 lestir að stærð og
Stoke-Crystal Palace 1 X
E 0 [3 □ [E ta [E ŒDIH11HIH
Birgir Jónsson fær nýjan
10 tonna bát, Reyni AK-18
Undanfarna daga hefur
Höfrungur legið við viðlegu-
kantinn hjá Skipasmíöastöö
Þorgeirs & Ellerts. Unnið hefur
verið við að stækka brú skipsins
og settur hefur verið í hann nýr
krani ásamt ýmsum öðrum lag-
færingum.
Höfrungur hélt til loðnuveiða
á sunnudagskvöld. Þar með eru
tveir bátar héðan komnir á
loðnuveiðar. Hinn er Rauðsey
og hefur hún aflað vel og er búin
að fá um 2500 tonn að því er best
er vitað.
ber nafnið Reynir AK-18. Hét
hann áður Percy IS-777. Eigandi
bátsins er Birgir Jónsson og mun
hann verða gerður út á neta- og
línuveiðar. Reynir hélt til veiða
með net um helgina.
Síðastliðinn föstudag kom til
framkvæmda veiðibann hjá bát-
um undir 10 lestum að stærð og
verða þá netabátarnir að taka
upp net sín og þau má síðan ekki
leggja aftur fyrr en 4. október.
Lítill afli hefur verið að
undanförnu hjá þeim sem stund-
að hafa netaveiðar og ekki neitt
hjá þeim sem reynt hafa fyrir sér
með línu.
Flutningaskipið Suðurland
kom hér að bryggju á þriðjudag-
inn í síðustu viku. Skipið tók hér
100 lestir af saltfiski frá HB &
Co. og Haferni. Allurfarmurinn
fór um borð pakkaður í plast-
poka á brettum.
Höfðavíkin kom inn til
löndunar á mánudagsmorgun.
Afli hennar var um 170 lestir,
aðallega karfi. Á mánudags-
kvöld kom Haraldur Böðvarsson
svo að landi. Landað var úr
honum á þriðjudag. Aflinn var
um 150 tonn, aðallega karfi.
Reynir AK-18 í höfninni.
11