Skagablaðið - 02.10.1985, Page 1
37. TBL. 2. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1985
VERÐ KR. 50.-
ur út Ijóðabók
- margt góðra bóka væntanlegt frá Hörpu-
útgáfunni á 25. starfsári fyrirtækisins
Hörpuútgáfan, sem fagnar 25
ára afmæli sínu um þessar
mundir, sendir frá sér hvorki
fleiri né færri en 16 bækur fyrir
þessi jól að því er Bragi Þórðar-
son, eigandi Hörpuútgáfunnar,
tjáði Skagablaðinu. Af þessum 16
titlum eru 8 eftir höfunda úr
Borgarfjarðarhéraði.
í útgáfunni að þessu sinni kenn-
ir ýmissa grasa en vafalítið vekur
það athygli að á meðal bóka, sem
át koma nú fyrir jólin, er ljóða-
bók eftir Stefán Sigurkarlsson,
lyfsala. Auk ljóðagerðar mun
Stefán hafa fengist við bæði laga-
smíðar og listmálun. Sannarlega
fjölhæfur lyfsali það.
Ljóðabækur skipa veglegan
sess í útgáfu Hörpuútgáfunnar í
ár og er óhætt að segja, að ekkert
sé til sparað í þeim efnum. Fjórar
ljóðabækur koma út á næstu vik-
um þar af tvær eftir systkinin
Guðnýju og Pétur Beinteinsbörn
frá Grafardal. Þá endurútgefur
Hörpuútgáfan bók þriðja systk-
insins, Sveinbjarnar Beinteins-
sonar.
Á meðal nýjunga Hörpuútgáf-
unnar í haust má nefna mat-
reiðslubók, þá fyrstu frá útgáf-
unni. Höfundur hennar er Mar-
grét Þorvaldsdóttir en bókin er
skreytt litmyndum eftir Magnús
Hjörleifsson.
Víkingur með fyrstu loonuna
Víkingur AK-100 kom í gær með fyrstu loðnuna til Akraness, alls um 1100 tonn en skipið tekur
fullhlaðið um 1350 lestir. Ástæðan fyrir því.að skipið kom til hafnar án þess að vera með fullfermi var
sú, að bilun varð um borð í skipinu. Víkingur heldur aftur út um leið og viðgerð er lokið.
Alþýðubandalagið hafnar
sameiginlegu prófkjöri
- Alþýðuflokkurinn telur ótímabært að taka
ákvörðun um slíkt.
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hlynntir.
Alþýðubandalagið hefur hafnað þeirri tillögu Sjálfstæðismanna að
efna til sameiginlegs prófkjörs stjórnmálaflokkanna eins og fyrir
síðustu kosningar. Þá telur Alþýðuflokkurinn ekki tímabært að taka
afstöðu til sameiginlegs prófkjörs. Aðeins Framsóknarflokkurinn
hefur lýst sig hlynntan sameiginlegu prófkjöri og því er Ijóst að ekkert
verður úr því fyrir næstu kosningar.
„Ef á að efna til prófkjörs er eiginlegt en málið er bara það, að
besta aðferðin að hafa það sam- prófkjör þjónar engum tilgangi,“
sagði Garðar Norðdal hjá Al-
þýðubandalaginu. Sagði Garðar
það stefnuna hjá Alþýðubanda-
laginu að flokksmenn ákvæðu
sjálfir hverjir færu í framboð fyrir
flokkinn, ekki einhverjir utan
hans.
Böðvar Björgvinsson hjá Al-
þýðuflokknum sagði sína menn
álíta að ekki væri tímabært að
taka afstöðu til sameiginlegs
prófkjörs. Gallarnir á sameigin-
legu prófkjöri væru að auki fleiri
en kostirnir. Flokksmenn væru
óbundnir af prófkjörum og há-
værar raddir væru uppi um að
flokksmenn einir ættu að ráða því
hverjir færu í framboð fyrir Al-
þýðuflokkinn.
Bergmann Þorleifsson hjá
Framsóknarflokknum sagði að
ákveðið hefði verið að samþykkja
sameiginlegt prófkjör og hefðu
Sjálfstæðismönnum verið tilkynnt
sú ákvörðun.
Pálína Dúadóttir hjá Sjálf-
stæðisflokknum hafði ekki fengið
svör nema frá Framsókn og AI-
þýðubandalagi er við höfðum
samband við hana á mánudags-
kvöld. Þótt Alþýðuflokkurinn
ætti þá enn eftir að tilkynna
afstöðu sína breytir það ekki
þeirri staðreynd, að sameiginlegt
prófkjör er úr sögunni að sinni.
Bruna
trygg
ingar
lækka
Húsa- og íbúðareigendur á
Akranesi og reyndar víðar á
landinu fengu óvæntan glaðn-
ing í vikunni þegar tilkynnt
var að brunatryggingarið-
gjöld myndu lækka allt að
70%. Þá var ennfremur til-
kynnt að iðgjald af stein- og
timburhúsum yrði hið sama.
Þessi lækkun nær einvörð-
ungu til þeirra byggðarlaga
þar sem hitaveita er eða fjar-
varmaveita. Lætur nærri að
þessi ákvörðun spari hús- og
íbúðareigendum á lands-
byggðinni um 40 millj. króna.
Lyfsalinn gef
Tilraunírmed þuirsteypu vekja
athygli mkfræðmga um landallt
Lesendur • munið ókeypis smáauglýsingar Skagablaósinsí
i