Skagablaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 1
Söguleg ræöukeppni Fjölbrautaskólans á Akranesi og Fjölbrautaskólans í Breiöholti um siöprúöa meirihlutann:
Stööugur fúkyröaf laumur og
Akranes sagt Sódóma íslands
- keppnin dæmd ógild og Breiöhyltingum
vísaö úr henni fyrir brot á grundvallarreglum
mælsku- og rökræöufélags framhaldsskóla
Hún varð heldur betur söguleg í meira lagi kappræðukeppnin á milli
Fjölbrautaskólans á Akranesi og Fjölbrautaskólans í Breiðholti í
síðustu viku. Umræðuefnið var siðprúði meirihlutinn (Moral major-
ity) og áttu gestirnir að verja stofnuns líkra samtaka en heimamenn
að andmæla. Svo fór að lokum að Breiðhyltingar báru sigur úr býtum
í ræðukeppninni en í ákafa sínum þverbrutu þeir grundvallarreglur
MORFIS, Mælsku- og rökræðufélags framhaldsskólanna á íslandi,
með því að sverta nöfn andstæðinga sinna á ómaklegan hátt auk þess
að draga nöfn utanaðkomandi einstaklinga og fyrirtækja inn í mál sitt
og sverta á sama hátt. Þá var Akranes sagt Sódóma Islands.
Frá kapprœðufundinum á fimmtudag í Bíóhöllinni. Húsið var þéttskipað og hundruð manna urðu vitni
að því er rœðumenn Fjölbrautaskólans í Breiðholti svertu nafn einstaklinga, fyrirtœkja og bæjarins sjáfls í
ræðum sínum. „Fordæmislaust athæfi, “ segir stjórn MORFIS.
Þótt ótrúlegt megi virðast yfir-
sást dómnefnd kvöldsins þetta
augljósa brot FB en málinu var
skotið til framkvæmdastjórnar
MORFISr-Hún kom hingað upp
á Akranes á sunnudag, hlustaði á
segulbandsupptökur af keppninni
og hvað síðan upp þann úrskurð
að keppnin skyldi dæmd ógild og
Breiðhyltingarnir jafnframt úr
leik. Fjölbrautaskólinn á Akra-
nesi er því enn með í keppninni.
Skagablaðið náði að taka fund-
inn upp á segulband og hér á eftir
fara þær glefsur úr ræðum Breið-
hyltinga, sem sviðu hvað sárast.
Þykir fullvfst, að einn eða fleiri
þeirra, sem eiga hlut að máli, kæri
ræðumenn FB fyrir ærumeiðandi
ummæli.
Svall á Bárunni
„... það var laugardagskvöld.
Úr einu horninu berst til okkar
lj úfur ómur slaghörpunnar og fólk
situr í ró og næði og ræðir saman.
Við erum stödd á Bárunni.
Tíminn líður. Inn koma hjóna-
leysin Bjarni Jónsson og unnusta
hans Þóra Beta. Áfengisdrykkja
er þegar hafin og eru þau ekki
gesta slökust í drykkjunni. Geng-
ur svo fram eftir nóttu. Ekki er að
orðlengja það, að í ölæði og
nautnavímu fremja þau
skammarlegt athæfi úti í horni.
Vart þarf að taka það fram, að
þau sváfu úr sér á Kirkjubraut 8.
En hvað er til ráða? Hvernig
getum við bjargað Bjarna litla og
jómfrú Þóru Betu frá ginnungag-
api alkóhólisma og kynsvalls? Það
er aðeins ein leið fær. Hana förum
við, boðberar friðar og bræðra-
lags. Við stofnum samtök, sem
berjast gegn áfengismisnotkun,
berjast gegn hvers kyns sora og
ósóma í samfélagi okkar. Við
stofnum Skaga-samtökin. En um
leið rísa þessir hringormar hrein-
lífis upp og emja hjáróma: við
viljum frelsi, við viljum frelsi.
En það eru ekki aðeins hring-
ormar heldur líka maðkar í mys-
unni. Frelsi ykkar er aðeins frelsi
í orði en helsi á borði. Því þau öfl,
sem þið viljið þjóna láta sér ekki
þjónustu nægja. Þau heimta
þrældóm og hlekki. Þrælar þeirra
eru þið og hlekkirnir heimskan.
Þeir verða ekki rofnir svo auð-
veldlega. Það er engu líkara en að
einn staður vilji ekki losna við
hlekkina. Það er Akranes, Só-
dóma íslands. Þar sitja þessir
prúðbúnu grislingar í eigin skít
upp fyrir haus og sjá ekki út úr
augum...“
Svo mörg voru þau orð og
mergjuð. Síðar fylgdi þessi fúk-
yrðagusa.
Yideosori
„... Bjarni (Jónsson, einn
ræðumanna FA, innsk. Sk.bl.)
þetta er ekki spurning um skerð-
ingu persónufrelsis heldur and-
lega rækt íslensku þjóðarinnar
því þeir foreldrar sem ala börn sín
upp á ruslafæði sjá þau verða að
aumingjum, en þá er of seint að
koma með betrumbætur. Hið
sama má ekki gerast með heila
þjóð, að hún verði að engu vegna
þriggja sinnulausra sauðhuga því
andlegur næringarskortur hefur
sett mark sitt á þessa steypukarla
sem vita ekki hvernig ástandið er
í borg. Borg, sem að næstum hálf
íslenska þjóðin byggir. Þau eru
blinduð af videósoranum sem fæst
á myndbandaleigunni Ás hér í
bæ...“
Já, ótrúlegt en satt, en Breið-
hyltingar gáfust ekki upp og
hnykktu á með ummælunum sem
fara hér á eftir.
Ónáttúra
„... ring, ring, ring. Síminn á
Presthúsabraut hringirákaft. Upp
úr gömlum hægindastól rís Níels
Arason. Hann lyftir tólinu upp og
svara: Já, halíó. Ekkert svar,
aðeins þungur andardráttur. Ní-
els segir aftur: Halió, er þetta
Sæli? (einn ræðumanna FA,
innsk. Sk.bl.) Þá svarar honum
stynjandi og slepjuleg rödd: Níels
minn, Nilli, Nilli minn. Níels
missir símtólið eins og það væri
heitt straujárn. Slíkt hefur aldrei
komið fyrir hann áður. En þetta
er bara byrjunin. Á hverjum degi
fær hann símhringingar frá öfug-
ugganum sem svívirðir hann og
niðurlægir á allan hátt. Að lokum
flýr Níels af landi brott til að
forðast viðbjóðinn. En Níels er
ekkert einsdæmi hér á Akranesi
og Akranes er ekkert einsdæmi
hér á íslandi fyrir hvers kyns
ónáttúru og subbuskap...“
„Viljum koma í veg fyrir
að slíkt endurtaki sig“
—segir Hulda Gústafsdóttir, í stjóm MORFIS
„Niöurstaða inalsins af okkar hálfu er sú aö keppnin var dæmd „Þeir hafa tekið þessu aíar
ógild og Breiöhyltingarnir jafnframt úr leik,“ sagöi Hulda Gústafs- illa, en við stöndum fast á
dóttir, einn ineðlima framkvæmdastjórnar MORFIS, er Skagablað- ákvörðun okkar. Fulltrúar
iðræddistuttlegaviðhanaámánudagskvöld,þarsemframkvæmda- þeirra eru reyndar þessa stund-
stjórnin sat á fundi. ina á fundi með okkur en okkar
afstöðu verður ekki haggað,"
„Þessi framkoma ræðumanna „Á þeim forsendum að FB sagði Hulda.
Fjölbrautaskólans í Breiðholti hefði brotið gegn grundvallar- Alls taka 15 skólar þátt í
er aigerlega fordæmislaus og við iögum MORFIS," svaraði rökræðukeppni MORFIS áþess-
viljum með þessum hörðu að- Hulda. „Það gerist iðulega að um vetri og Fjölbrautaskóiinn á
gerðum okkar koma í veg fyrir dæmi eru sett upp og aðstæður Akranesi er því enn með í
að sh'kt endurtaki sig,“ sagði settar sviðsettar en að nöfn keppninni þrátt fyrir að hafa
Hulda ennfremur. ákveðinna aðila séu dregin inn í tapað slagnum gegn FB sl.
— Á hvaða forsendum dæmd- umræðuna er nýnæmi.“ fimmtudag í sögulegustu kapp-
uð þið keppnina á milli FA og —Hverníg taka Breiðhylting- ræðuviðureign hér á Akranesi
FB ógilda? ar þessu? um langt árabil.