Skagablaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 12
Skagamaður náði
sér í 250 þúsund
Einn Skagamaður náði 12 rétt-
um í síðustu viku og hafði að auki
4 seðla með 11 réttum. Nældi séi
þannig í 250 þúsund krónur. Dá-
lagleg upphæð það og kemur sér
vel fyrir jólin því vinningurinn er
greiddur þremur vikum eftir að
leikirnir hafa farið fram. Auk
þess náði einn Skagamaður til
viðbótar 11 réttum og bar um
5000 krónur úr býtum.
Eins og við höfum marggreint
frá í Skagablaðinu hefur sala
getraunaseðla hér á Akranesi tek-
ið mjög mikinn kipp ( vetur.
Næstkomandi þriðjudag ætla
körfuboltakapparnir að ganga í
hús og bjóða seðla og ætla þannig
að freista þess að setja enn eitt
sölumetið. Núverandi met er um
16.000 raðir.
Sölustaðir körfuboltamann-
anna eru sem hér segir: Skaga-
nesi, BSA, verslun Axels Svein-
björnssonar, rakarastofa Jóns
Hjartarsonar, Skútan, Stjörnu-
kaffi, Skaga-vídeó, Bílás, Haf-
örninn, SR, Akur, HB & Co.,
P&E, Heimaskagi og íslenska
járnblendifélagið.
Þráinn í bílskúrnum með vélina góðu.
„Treysti mér til að anna
allri innan landsþörfinni'
—segir Þráinn Sigurðsson, sem notar sjátfvirka tölvustýrða „snittvél11
Pétur Pétursson skoraði loks á
Spáni.
Fyrsta mark Péturs fyr-
ir Hercules um helgina
Skagamanninum Pétri Péturs-
syni tókst loks að opna marka-
reikning sinn hjá Hercules Ali-
cante um helgina er hann skoraði
eitt marka liðsins í 5:2 sigri þess
yfir Celta Vigo. Pétur kom inn á
í síðari hálfleik sem varamaður
Nýtt fyrirtæki, Skertækni-Þráinn Sigurðsson, hefur tekið til starfa
hér á Akranesi. Fyrirtækið sérhæfir sig í að snitta rörbúa af öllum
stærðum og gerðum. Snittvélin, sem er hreint galdratæki út af fyrir
sig, er tölvustýrð og mjög fullkomin. Það þarf aðeins að mata hana
og hún sér um afganginn. Sama er með sögina, sem sagar bútana
niður. Hún er sjálfvirk, aðeins þarf að leggja röralengjumar í hana.
„Það tók um 14 mánuði að
útbúa vélarnar í það form sem
þær eru núna. Allan heiður af
tölvustýrikerfunum á Hörður
Ragnarsson en hann hannaði og
smíðaði stóran hluta af þeim.
Hugmyndin að þessu var, að um
60% af snittuðum rörbútum, sem
notaðir eru hér á landi, eru inn-
fluttir. Einnig það, að það var
hægt að gera svona tæki hér en
ekki nauðsynlegt að kaupa þau
erlendis frá. Ég myndi treysta
mér til að anna allri innanlands-
þörfinni með þessum vélum því
að vélin getur framleitt 3000 búta
a 10 tímum. Þessi framleiðsla er
fyllilega samkeppnisfær við er-
lenda framleiðslu að öllu leyti,“
sagði Þráinn Sigurðsson þegar við
ræddum við hann um vélina góðu.
Skertækni er til húsa að Víði-
grund 16, nánar tiltekið í bílskúr
Þráins þar sem hann vinnur við
þetta með fjölskyldu sinni. Öll
framleiðslan er sett í umbúðir
ýmist 10 eða 50 stk. eftir þörf
viðskiptavinarins. Svona vél
keypt erlendis frá, myndi kosta á
við eitt einbýlishús en Þráinn
hefur smíðað sína fyrir brot af
þeirri upphæð. Núna hefur hann
snittað um 30 þúsund búta eftir að
allir byrjunarörðugleikar voru
yfirstignir.
— hefur ekki átt fast sæti í liðinu
undanfarið. Við sigurinn vænk-
aðist staða Hercules nokkuð en
liðið er enn í botnslagnum.
Skagablaðið reyndi ítrekað að
ná tali af Pétri eftir leikinn án
árangurs.
„Við komum aft
ur. sanniði til“
Sýning kínverska badmin-
tonsnillinga annað kvöld
Úrval kínverskra badminton- verður blandað saman liðum en 1976, sem þótti með eindæmum
spilara verður með sýningu í Kínverjarnir spila sín á milli góð og er ekki að efa að þessi
íþróttahúsinu á morgun, í tokin.Óhætt er að telja Kín- hópur verður svipaður ef ekki
fimmtudag kl. 20. Þetta er 10 Verja með bestu badmintonspil- betri.
manna hópur, 6 karlmenn og 4 urum í heimi, reyndar í fleiri Aðgangseyrir verður kr. 100
konur, og er hér á vegum Bad- íþróttagreinum, og ætti fólk að fyrir fullorðna en kr. 50 fyrir 14
mintonsambands Islands. fá að sjá hér badminton eins og ára og yngri, sýningunni lýkur
Fyrst keppa badmintonspilar- það gerist best. Síðast komu um kl. 22 eða þar um bil.
ar frá ÍA við gestina, síðan hingað Kínverjar með sýningu
Á síðasta sunnudag urðu nokkrir félagar úr Skagaleikflokknum
varir við þrusk er þeir voru að vinna við leiktjöld í Bíóhöllinni. Þegar
betur var að gáð voru þrjár konur með barnavagna að fela sig en ekki
var neitt barn í vagninum. Var hringt á lögregluna og mættu tveir
verðir laganna til að kanna málið.
Kom þá í ljós að þessar konur höfðu strokið frá einhverju hæli og
því ákveðið á stundinni að senda þær til Reykjavíkur með Akraborg-
inni. Voru konurnar ásamt vagninum færðar út í löggæslubifreið og
ekið sem leið lá niður á bryggju og tryggilega séð til þess að þær færu
um borð. í landganginum snéri ein þeirra sér við og sagði: „Við
komum aftur, sanniði til.“
Myndin sýnirhvar lögreglanfylgir konunum um borð íAkraborgina.