Skagablaðið - 20.11.1985, Side 7
E 0 S1 □ E E ® B H [d] [u] [m]
Sanfokii vii Jaiarsbakkana:
Ibúamir í ná-
grenni bíða
spenntir eftir
næstu aðgerðum
fræðinganna
Ekki verður annað sagt en Sandabrautin beri nafn með réttu eftir
veðurhaminn að undanförnu. A götunni og í húsagörðum við hana
hafa myndast allt að eins metra háir sandskaflar. Voru jafnvel brögð
að því að fólk þyrfti að moka sandi frá dyrum húsa sinna til
að komast út með góðu móti.
Sandhóll
Ástandið er sömuleiðis slæmt
við Jaðarsbrautina hvað þetta
varðar. Hóllinn, sem tyrfður var
fyrir þremur árum cr nú orðinn
að sandhóli.
Einhver kynni að spyrja
hverju þetta sandfok neðan af
Langasandi og upp um allan bæ
sætti.
Fyrir nokkrum árum var þetta
nefnilega svo til óþekkt fyrir-
brigði. Fyrst er til að taka, að
sandurinn hefur hækkað mjög
upp við bakkana, sennilega
vegna tilkomu grjótgarðsins
fram af hafnargarðinum, sem
breytt hefur sjávarstraumum í
víkinni.
Svo hafa fræðingar bæjarins
látið setja fláa á bakkana alveg
niður í fjöruborð þannig að nú á
sandurinn greiða leið neðan úr
fjörunni og upp í hverfin sem
liggja næst bökkunum og um efri
hluta Skagans þegar slíkur veð-
urofsi geisar sem um helgina.
Hvað næst
Við íbúar í næsta nágrenni við
bakkana bíðum nú spenntir eftir
að sjá næstu aðgerðir hjá fræð-
ingunum til að hefta sandfokið.
I fyrra var send jarðýta niður
á sand og nú skyldi hefta sand-
fokið. Fyrst var hún látin ýta
sandinum frá grjótgarðinum sem
er fyrir neðan Jaðarsbakkana,
síðan var ýtt upp u.þ.b. þriggja
metra háum sandgarði fyrir neð-
an sundskálann, sem svo er
nefndur fyrir neðan íþróttavöll-
inn. Var sá garður um 30 metra
langur. Ég held að jarðýtan hafi
varla verið komið upp á bakkana
þegar þessi mannvirki voru öll
orðin sjávargangi að bráð. Allir.
gátu séð það fyrir nema fræð-
ingarnir.
Sandþró SR
Og ennþá fýkur sandurinn úr
sandgeymslu Sementsverk-
smiðjunnar. Og í framhaldi af
þessum hugleiðingum um sand-
inn mætti spyrja hvers vegna
Sementsverksmiðjan er ekki lát-
in steypa vegg alveg niður að
stóra leðjugeyminum. Varla
myndi leika vafi á því að sandfok
úr sandþrónni myndi minnka til
muna ef slíkur veggur yrði
steyptur. Það sést best þar sem
veggurinn er með Jaðarsbraut-
inni. Þar ver ekki sandur úr
þrónni að neinu marki svo fram-
arlega sem hliðið, sem snýr upp
að götunni er lokað. Það var
hins vegar ekki svo í rokinu um
helgina þannig að sandurinn
komst þar greiðlega út eins og
gefur að skilja.
í framhaldi af þessu mætti svo
benda ráðamönnum SR á að það
þarf að hreinsa sandinn frá sand-
varnargirðingunni sem snýr upp
að Suðurgötunni ef hún á að
gera eitthvert gagn. Því ætti að
gefa auga leið að þegar sandur
hefur myndast jafnhátt girðing-
unni að utanverðu gerir hún lítið
gagn. Jón Pétursson.
Fjölmennum
Leikhúsgestur skrifar:
Ég var einn þeirra fáu, sem
börðust gegn veðurhamnum sl.
föstudag og mætti á frumsýningu
Skagaleikflokksins á verkinu
Margt býr í þokunni. Ég
skemmti mér konunglega en
óneitanlega var það sorglegt að
sjá hversu fáir voru mættir. Mér
taldist til að frumsýningargestir
hefðu ekki náð hundraðinu.
Mig langar aðeins til þess að
hvetja bæjarbúa til þess að sjá
þetta ágæta stykki Skagaleik-
flokksins áður en sýningum
verður hætt. Það hefur mikil
vinna verið lögð í æfingar og
undirbúning og sorglegt til þess
að vita að hún skuli eyðilögð af
veðurguðunum.
Allir kannast við hlut. sem hefur verið til frá ómunatíð, fægiskúffuna. Þett er úthugsað áhald, skófla með
niðurbrettan fremsta kantinn, til þess að sem best sé að sópa ruslinu upp á skóflublaðið. Þessi hlutur var fundinn
upp áður en „fræðingarnir" urðu til.
Galdur
Þess vegna hefur það farið fram hjá þeim fræðingum sem „hönnuðu" nýjustu breytinguna á Jaðarsbökkum við
Langasand, að með því að skásneiða bakkana niður að sandinum eins og gert er, er verið að taka í notkun galdur
fægiskúffunnar við að veita sandinum yfir nágrennið á áhrifaríkan hátt. Og ekki bara næsta nágrenni. Sönnun
þess fékkst, svo ekki verður um villst, nú í óveðrinu 15. nóv. þegar stór hluti bæjarins var bókstaflega þakinn
sandinum af Langasandi.
Háþróuð
Að vísu er talað um að gott sé að strá sandi á mosaþembur í túnblettinum til þess að fá betri rækt í blettina.
Kannski er þessi sandveita svo háþróuð að fólk áttar sig ekki á henni án frekari athugunar? Líklegast verður þó
að telja að garðeigendur vilji hér eftir sem hingað til sjá um þá hlið sjálfir.
Án allra útúrsnúninga: Elskurnar takið þessa hluti til endurskoðunar sem fyrst, bæjarbúar hafa enga löngun til
að þurfa að þvo hús sín að utan og moka sandi af lóðum sínum þótt eitthvað hreyfi vind. Unnur Leifsdóttir.
Er ekki hægt
að hefta sand-
fokið eitthvað?
Ibúi við Suðurgötu hringdi:
Mig langar til þess að koma
þeirri fyrirspurn á framfæri til
forráðamanna Sementsverk-
smiðju ríkisins hvort ekki sé
hægt að gera eitthvað við þessu
sandfoki úr sandgeymslu þeirra.
í óveðrinu um helgina virtist
afskaplega lítið gagn vera að
skjólgirðingunni, sem sett hefur
verið upp til þess að hindra
sandfokið. Ég sá ekki betur en
sandurinn ætti greiða leið yfir
hana vegna þess hve hátt hann
hafði hlaðist upp hinu megin.
Og svo dreifðist þetta um allt,
smýgur jafnvel inn um smæstu
glufur á gluggum og inn í stofu.
Endilega reynið að koma í veg
fyrir þetta, góðu ráðamenn.
6
íslenska hljómsveitin:
Aðrir áskrift-
artónleikam-
ir í Bíóhöll-
inni á sunnudag
Önnur efnisskrá Islensku
hljómsveitarinnar á fjórða starfs-
ári hennar verður frumflutt hér í
Bíóhöllinni á Akranesi sunnudag-
inn 24. nóvember kl. 15.30. Þessi
sama dagskrá verður síðan flutt á
Selfossi, í Keflavík og í Langholts-
kirkju í kjölfarið. Þessir tónleikar
bera yfirskriftina „Konur í ís-
lensku tónlistarlífi" og eru haldnir
til heiðurs íslenskum konum í lok
kvennaáratugar. Guðmundur
Emilsson mun stjórna hljómsveit-
inni á þessum tónleikum. Á fyrri
hluta tónleikanna eru verk eftir
Jórunni Yiðar, Karólínu Eiríks-
dóttur og Misti Þorkelsdóttur. Á
síðari hlutanum er píanókonsert
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Ander Josephsson syngur þrjú
sönglög eftir Jórunni Viðar við
undirleik Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur. Hljómsveitin leikur
fimm lög fyrir kammerhljómsveit
eftir Karólínu Eiríksdóttur og
Davíð 116 eftir Misti Þorkelsdótt-
ur, en bæði þessi tónverk voru
samin að tilhlutan íslensku hljóm-
sveitarinnar og frumflutt af henni
á sínum tíma. Anders Josephsson
syngur einsöng í síðara verkinu.
Þær Karólína og Misti munu
kynna verk sín í upphafi tónleik-
anna.
Á síðari hluta tónleikanna leik-
ur Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanókonsert í C-dúr (K415) eftir
Wolfgang Amadeus Mozart, en
píanókonsert þessi er einn þeirra
er Mozart tileinkaði konu.
Jórunn Viðar, tónskáld og pí-
anóleikari, er elst þeirra kvenna
er eiga tónverk á þessum tónleik-
um. Hún er fædd í Reykjavík
1918. Jórunn stundaði tónlistar-
nám hér heima, í Berlín, Banda-
ríkjunum og Vínarborg. Hún hef-
ur komið fram bæði sem píanó-
leikari og tónskáld.
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanóleikari, lauk prófi frá
Guildhall School of Music and
Drama 1981. Hún hefur frá upp-
hafi verið einn mikilvirkasti félagi
íslensku hljómsveitarinnar. Anna
Guðný hefur haldið fjölmarga
sjálfstæða tónleika.
Karólína Eiríksdóttir, tón-
skáld, lauk MA-prófi frá tón-
listarskólanum í Michigan 1978 og
hefur stundað tónsmíðar og
kennslustörf hér heima undanfar-
in ár. Verk hennar hafa verið flutt
víða um lönd.
Mist Þorkelsdóttir, tónskáld,
stundaði tónlistarnám bæði hér
heima og í Bandaríkjunum. Mist
hlaut 2. verðlaun í tónskálda-
keppni Ríkisútvarpsins nú í
haust.
Anders Josephsson, bariton-
söngvari, er fæddur og uppalinn í
Svíþjóð en fluttist til íslands 1980.
Hann stundar söngnám við kenn-
aradeild Tónlistarskólans í
Reykjavík samhliða guðfræði-
námi við Háskóla íslands.
Auglýsið i
Skagablaðinu
NYTT-NYTT-NYTT-NYTT-NYTT
Slendertone
Skagamenn
áframí
bikarnum
Skagamenn eru komnir áfram í
bikarkeppni Körfuknattleiks-
sambands íslands eftir góðan sig-
ur á Árvakri, 68:54.
Leikurinn gegn Árvakri var
ágætur af hálfu Skagamanna og
að vanda var Gísli Gíslason stiga-
hæsti leikmaðurinn. Skoraði
bæjarritarinn 21 stig. Jóhann
Guðmundsson, bróðir Samúels,
sem nú leikur með KR-ingum,
skoraði 12 stig og Sigurdór 10 stig.
NOTAR
ÞÚ?
Andlitsböð,. hand- og
fótsnyrting.
Litanir og vax.
Make-up við öll
tækifæri.
TBiodroqa
snyrtivörur
Krókatúni 12 ■ S. 2644
Nágranuaslagur
í íþróttahúshiu
Það verður fmrt barist í íþróttahúsimi við Vestur-
götu í 3. deiíd ísíandsmótsins í fiandknattieik
í kvöúd þegar Skadagrímsmenn frá Borgamesi
mceta Skagamönnum í kvöid kí. Z0.
Getum rtú boðið upp á Slendertone-undratækið.
Hefur reynst vel við vöðvastyrkingu, vöðvabólgu
sem og til grenningar og í baráttu
við staðbundna fitu.
Keppuisboltinn cr gefiun af
versliin Einars Ólafssonar.
Sólbrekka S. 2944
HAKDMAmEIKSRÁÐ
SÉRVERSLUN MEÐ BARNAFATNAÐ AÐ KIRKJUBRAUT 6
Bjóöum upp á mikið úrval af jólafötum, einnig svarta lakkskó í stærðum
27 til 35.
Einnig ný gerð af kuldaúlpum og buxum.
Eigum ennfremur mjög fallega útigalla á börn frá
6 mánaða aldri, heila eða tvískipta.
Kíkið við — sjón er sögu ríkari.
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ 9 TIL 12. PÓSTSENDUM.
7